Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.05.2021, Blaðsíða 18

Læknablaðið - 01.05.2021, Blaðsíða 18
234 L ÆK N A BL AÐIÐ 2021/107 Inngangur Mikil aukning hefur verið í notkun rafskúta á höfuðborgarsvæð- inu síðustu ár. Einkum fjölgaði notendum verulega á árinu 2020 þar sem bæði hefur verið mikil sala slíkra farartækja til almenn- ings auk þess sem nokkur fyrirtæki eru farin að bjóða upp á leigu á slíkum skútum. Eru þessi farartæki hönnuð til að ferðast á allt að 25 km á klukkustund en hér á landi eru engin aldurstakmörk á notkun þeirra.1 Í öðrum löndum þar sem rafskútur hafa notið vinsælda hefur notkuninni fylgt slysatíðni, eins og á því miður við um flesta sam- göngumáta.2 Nokkru algengara er að karlmenn slasist við notkun rafskúta og fæstir þeirra sem slasast hafa notað hjálm.3-5 Í flestum tilvikum er um minniháttar áverka að ræða.6 Algeng- ustu tegundir áverka hafa verið höfuðáverkar, en brot á framhand- legg og úlnlið eru einnig algeng.2,7 Flestir sem slasast útskrifast heim af bráðamóttöku en 6-16% þurfa að jafnaði á sjúkrahúsinn- lögn að halda.2-5 Algengt er að þeir sem hljóta áverka eftir að hafa verið á raf- skútu hafi slasast undir áhrifum áfengis eða lyfja, eða í um fjórð- ungi til þriðjungi tilfella.8,9 Einnig hafa rannsóknir leitt í ljós að allt að 17% þeirra sem slasast vegna rafskúta hafi sjálfir ekki stýrt skútunni, heldur orðið fyrir skútu sem stýrt var af öðrum einstak- lingi.8 Ekki hafa verið gerðar rannsóknir á slysatíðni af völdum raf- Sigrún Guðný Pétursdóttir hjúkrunarfræðingur Jón Magnús Kristjánsson læknir Hjalti Már Björnsson læknir Höfundar starfa öll á bráðadeild Landspítala. Fyrirspurnum svarar Hjalti Már Björnsson, hjaltimb@landspitali.is Á G R I P INNGANGUR Rafskútur eru orðnar vinsæll samgöngumáti á höfuðborgarsvæðinu. Erlendis hefur notkun þeirra fylgt nokkur slysatíðni en ekki er vitað um tíðni slíkra slysa á Íslandi. Markmið rannsóknarinnar var að meta orsakir, eðli og afleiðingar rafskútuslysa á höfuðborgarsvæðinu sum- arið 2020. EFNIVIÐUR OG AÐFERÐIR Einstaklingar sem leituðu til bráðamóttöku Landspítala vegna rafskútu slysa á tímabilinu frá 1. júní til 31. ágúst 2020 voru beðnir um að skrá hvar slysið átti sér stað, ástæður slyss og notkun á hlífum og áfengi. Upplýsingum um áverka og afdrif var safnað úr sjúkraskrám Landspítala. NIÐURSTÖÐUR Á rannsóknartímabilinu leituðu 149 einstaklingar aðstoðar vegna raf- skútuslysa, að meðaltali 1,6 á dag. Aldursbilið var frá 8 árum upp í 77 ár; 45% voru yngri en 18 ára og 58% voru karlkyns. Í 60% tilvika reyndist orsök slyss vera að farið hafi verið of hratt, viðkomandi misst jafnvægi eða ójafna í götu. Reyndust 79% barna hafa notað hjálm en einungis 17% fullorðinna. Engin börn voru undir áhrifum áfengis eða vímuefna en meðal 18 ára og eldri sögðust 40% hafa verið undir áhrifum þegar slysið átti sér stað. Voru 38% með beinbrot og 6% þurftu innlögn á sjúkrahúsið til eftirlits eða meðferðar en enginn flokkaðist sem alvarlega slasaður samkvæmt AIS-flokkun. ÁLYKTUN Sumarið 2020 slösuðust einn til tveir einstaklingar á dag á höfuð- borgarsvæðinu vegna rafskúta en enginn hlaut alvarlega áverka. Reyna þarf að draga úr slysatíðni vegna rafskúta með því að bæta hjólastíga, hvetja til hjálmanotkunar og auka fræðslu um hættu af notkun rafskúta undir áhrifum áfengis og vímuefna. Rafskútuslys á höfuðborgarsvæðinu sumarið 2020

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.