Skólavarðan - 2021, Qupperneq 7
HAUST 2021 SKÓLAVARÐAN 7
Fréttir / KENNARASAMBANDIÐ
Skýrsla frá því í haust leiðir í ljós að stjórnendur
leikskóla eiga margir hverjir á brattann að sækja
þegar kemur að samráði þeirra og rekstraraðila.
Fagleg rök eru jafnvel virt að vettugi þegar
ákveða á fjölda barna. Þetta er meðal niðurstaðna
vinnu starfshóps sem Félag leikskólakennara
og Félag stjórnenda leikskóla skipaði árið 2020
í kjölfar háværrar umræðu meðal leikskóla-
kennara og stjórnenda um vinnuaðstöðu barna
og fullorðinna í leikskólum. Kallað hefur verið
eftir endurskoðun reglugerðar um starfsumhverfi
leikskóla 655/2009 þar sem hvergi er minnst
á lágmarksrými barna við nám og leik eða
fullorðinna við vinnu.
Starfshópurinn skilaði skýrslu um rými,
réttindi og starfsaðstæður barna og fullorðinna
í leikskólum og um samráð leikskólastjóra og
rekstraraðila. Starfshópurinn leggur eftirfarandi
til:
Bæta þarf inn í reglugerð um leikskóla lág-
marksviðmiði um stærð leikrýmis sem tilheyrir
leikskóladeild, þ.e. þess svæðis sem nýtist til leiks
og náms allan daginn. Í samræmi við niðurstöður
kannananna leggur starfshópurinn til að það
viðmið verði ekki minna en 5,8 m2 fyrir hvert
barn.
Taka þarf tillit til reglugerðar um húsnæði
og vinnustaði 581/1995 um lágmarksviðmið um
rými fyrir hvern fullorðinn. Gera skal ráð fyrir
4,8 m2 til viðbótar við það rými sem tilheyrir
hverju barni.
Gera þarf ráð fyrir rými fyrir stoðtæki vegna
sérþarfa barna.
Samkvæmt núgildandi reglugerð um
starfsumhverfi leikskóla á leikskólastjóri að taka
ákvörðun um fjölda barna, að höfðu samráði
við sveitarstjórn eða nefnd sveitarfélags sem fer
með málefni leikskóla í sveitarfélaginu. Setja
þarf markvissar verklagsreglur um slíkt samráð
svo umboð leikskólastjóra verði afdráttarlaust til
að taka ákvörðun um barnafjölda í leikskólum
hverju sinni.
Starfshópurinn afhenti formönnum Félags
leikskólakennara og Félags stjórnenda leikskóla
skýrsluna og verður unnið úr henni í fram-
haldinu, meðal annars með því að funda með
hagaðilum.
Áttunda þing Kennarasam-
bands Íslands verður haldið
dagana 5. til 8. apríl 2022.
Þingað verður á Grand Hótel
Reykjavík og eiga um 250
félagsmenn KÍ seturétt á
þinginu.
Þingið hefur æðsta vald
í málum KÍ og þar er stefnan
mótuð til næstu fjögurra ára.
Síðasta þing, hið sjöunda,
var haldið í apríl 2018. Á því
þingi var samþykkt að efna
til aukaþings sem myndi
fjalla um skipulag KÍ. Auka-
þingið var haldið í nóvember
í fyrra en þá var því frestað
og fór framhaldsfundur fram
í apríl síðastliðnum.
Ragnar Þór Pétursson
mun láta af embætti for-
manns á þinginu og Magnús
Þór Jónsson tekur við.
Á þessari stundu er
ekki ljóst hver verður nýr
varaformaður KÍ þar sem
varaformannskjöri var
ekki lokið þegar blaðið fór
prentun.
Vinnuumhverfi barna og fullorðinna í leikskólum
Fagleg rök eru virt að
vettugi þegar ákveða á
fjölda barna í rými
Haraldur Freyr Gíslason, formaður Félags leik-
skólakennara, Sigrún Birna Björnsdóttir, fulltrúi
starfshópsins, og Sigurður Sigurjónsson, formaður
Félags stjórnenda leikskóla.
Stefna KÍ verður mótuð í apríl 2022
Myndin var tekin á VII
þingi KÍ árið 2018.
Loftslagið er
að breytast, við
ættum að gera
það líka!
Alþjóðasamtök kennara (EI) hafa verið
sýnileg á COP26, loftslagsráðstefnunni
í Skotlandi sem ætlað er að leiða
saman þjóðir heims í leit á lausnum á
umhverfisvandanum.
Einn þeirra viðburða sem EI stóðu
fyrir var erindi dr. Bertrand Piccard,
sem fyrstur manna flaug umhverfis
hnöttinn á flugvél sem knúin var af
sólarrafhlöðum. Eftir erindið voru pall-
borðsumræður. Ljóst er að menntakerf-
ið leikur lykilhlutverk í varanlegri lausn
loftslagsvandans, hvort sem það er með
því að ala upp lausnaleitandi frum-
kvöðla eða við miðlun þeirrar þekkingar
og viðhorfa sem nauðsynlegar eru til að
vandanum sé fundin lausn.
Sjáðu erindi og umræður á vefn-
um, með því að opna QR-kóðann.
ei-ie.org