Skólavarðan - 2021, Síða 12
12 SKÓLAVARÐAN HAUST 2021
KENNARINN / Símenntun
U tís var haldið á Sauðárkróki 5. - 6. nóvember
síðastliðinn. Það fer ekki milli mála hjá þeim
sem hafa fylgst með ráðstefnunni síðustu ár hve
mikill kraftur býr í skólafólkinu okkar. Þetta árið
var engin undantekning, enda tvö ár síðan Utís
var haldið í raunheimum. Þótt Utís online 2020
hafi verið skemmtilegt er þetta tvennt ólíkt að mínu mati. Það er svo gott
að eiga samtöl augliti til auglitis, geta verið saman í hóp og grúskað í því
sem við erum að kynna okkur.
Þetta er ferðasagan mín, Hildar Örnu Håkansson, náttúrufræði-
kennara í Skarðshlíðarskóla í Hafnarfirði.
Fimmtudagurinn 4. nóvember
Ég og Theodóra, ferðafélaginn
minn og samstarfskona, lögðum
af stað úr Hafnarfirði rétt upp
úr klukkan 13. Fyrsta stopp
var í Borgarnesi þar sem við
hittum fullt af Utís-förum, meðal
annars gamla samstarfsfélaga úr
Hafnarfirði. Tilfinningin var eins
og ég væri á leið á ættarmót að
hitta ættingja sem ég hafði ekki
séð í lengri tíma.
Við komum inn á Sauð-
árkrók upp úr klukkan 17,
fundum gististaðinn okkar og
hittum fljótlega sex snillinga sem
deildu með okkur gististað. Það
mikilvægasta við ferð á Utís er að
koma við í Kaupfélaginu og kaupa
eitthvað fínerí svo við drifum
okkur þangað (ef þú hefur ekki
komið þangað þá er bara að drífa
sig á Krókinn!).
Næst var að finna sér bita og
svo héldum við á beint streymi
frá hlaðvarpsþættinum The
Partial Credit (Er á Spotify – ég
mæli með!) í 1238: The Battle
of Iceland. Tveir stjórnenda
þáttarins voru fyrirlesarar á
ráðstefnunni þetta árið, þeir Jesse
Lubinsky og Donnie Piercey. Já,
ekki er hægt að segja annað en að
gleði og hlátur hafi einkennt þetta
frábæra upphitunarkvöld fyrir
ráðstefnuna.
Föstudagurinn 5. nóvember
Ráðstefnugestir mættu galvaskir,
eins og beljur að vori, í íþróttahús-
ið í Árskóla klukkan níu. Ítrustu
sóttvarna var gætt þannig að allir
ráðstefnugestir þurftu að sýna
neikvætt hraðpróf. Leikurinn
Hver gæti verið með covid? var
virkjaður. Við fengum grímur,
límmiða með nafninu okkar,
nafnspjöld, ígrundunarbók og
fjölnota bollamál. Segja má að
fæst okkar hafi trúað því að við
værum komin á staðinn enda svo
ótrúlega margt sem getur gerst
á þessum covid-tímum. Gaman
var að heyra hlátrasköllin óma og
málbeinið lék lausum hala.
Dagskráin hófst og kynntir
voru níu erlendir fyrirlesarar;
þau Andrea Strutin, Christine
Lion-Bailey, Donnie Piercey,
Jesse Lubinsky, Leticia Britos
Cavagnaro, Micah Shippee,
Meenu Singh, Natalia LeMoyne
Hernandez og Pernille Ripp auk
þriggja íslenskra fyrirlesara sem
voru Hans Rúnar Snorrason,
Bergmann Guðmundsson og ég.
Fyrir hádegi leiddu Leticia
og Meenu, kennarar við Stanford
háskólann, ásamt Ingva Hrannari,
okkur í gegnum hópefli þar sem
allir ráðstefnugestir fóru saman í
skæri, blað, steinn, við eignuðu-
mst covid-„handabands“ vin og
sögðum frá sögu nafnsins okkar.
Þetta þjappaði þessum frábæra
hóp enn betur saman.
„Það sem Utís gaf var ótrúlega margt og mikið, hausinn er að springa úr
hugmyndum og þakklæti fyrir að hafa verið hluti af Utís 2021 fjölskyldunni,“
skrifar Hildur Arna. MYND: DAVÍÐ MÁR SIGURÐSSON
Ferðasöguhöfundurinn Hildur Arna
Håkansson segir Utís hafa gefið sér
ótrúlega margt og hún er þakklát
fyrir að vera hluti af „Utís 2021
fjölskyldunni“.
Ferðin á
Utís 2021
Ferðasaga Hilda Örnu Håkansson, náttúrufræði-
kennara í Skarðshlíðarskóla í Hafnarfirði