Skólavarðan - 2021, Síða 22
22 SKÓLAVARÐAN HAUST 2021
KENNARINN / Kjaramál
Á vef Kennarasambands Íslands má
finna reiknivélar á nýju formi sem
auðvelda fólki að kynna sér ýmislegt
sem snýr að skóla- og kjaramálum.
Reiknivélarnar eru afar aðgengilegar
og betri en fyrri reiknivélar að því
leyti að auðvelt er að nota þær í síma eða spjaldtölvu. Auk
hinna hefðbundnu launareiknivéla má finna nokkrar nýjar
reiknivélar.
Meðal þeirra má nefna Laun fullvinnandi á íslenskum
vinnumarkaði frá árinu 2014. Þar má finna mjög áhugaverðar
upplýsingar um laun á þessu tímabili og verða hér nokkrar
staðreyndir settar fram myndrænt.
Allt um laun
og launaþróun
Hvað eru regluleg laun og heildarlaun
Í reiknivélunum er hægt að velja regluleg laun og heildarlaun.
Skilgreiningar á þessum tveimur tegundum eru:
Regluleg laun eru greidd mánaðarlaun fyrir umsaminn vinnutíma,
hvort sem um er að ræða dagvinnu eða vaktavinnu. Í þessum launum
eru hvers konar álags- og bónusgreiðslur sem tilheyra launaliðum
sem eru gerðir upp á hverju útborgunartímabili hjá launagreiðanda.
Dæmi um slíkar greiðslur geta verið föst yfirvinna, fastar álags-
greiðslur, bónusar í framleiðslu, sölubónusar, vaktaálag og eftirvinna.
Regluleg laun hlutastarfsfólks eru umreiknuð í laun fyrir fullt starf.
Við samanburð á reglulegum launum milli starfa eða starfsstétta er
gott að hafa í huga að í þeim störfum þar sem fastlaunasamningar
eru algengir, eða föst yfirvinna, þá er ekki haldið sérstaklega utan
um yfirvinnugreiðslur í launakerfi og eru þær greiðslur því hluti af
reglulegum launum.
Heildarlaun eru öll laun einstaklingsins, þ.e. regluleg heildarlaun
auk ýmissa óreglulegra greiðslna s.s. orlofs- og desemberuppbótar,
eingreiðslna, ákvæðisgreiðslna og uppgjörs vegna uppmælinga. Við
útreikninga er hvorki tekið tillit til hlunninda né akstursgreiðslna.
35%
30%
25%
20%
15%
10%
5%
0%
-5%
-10%
-15%
-20%
33% 33%
23%
20%
11%
7%
4%
-4%
-17%
2%
0%
Fj
ár
m
ál
a-
og
v
át
ry
gg
in
ga
st
ar
fs
em
i
R
af
m
ag
ns
-,
ga
s-
o
g
hi
ta
ve
itu
r
B
yg
gi
ng
as
ta
rf
se
m
i o
g
m
an
nv
ir
kj
ag
er
ð
H
ei
lb
ri
gð
is
-
og
fé
la
gs
þj
ón
us
ta
Fr
am
le
ið
sl
a
(C
)
H
ei
ld
-
og
s
m
ás
öl
uv
er
sl
un
Fl
ut
ni
ng
ar
o
g
ge
ym
sl
a
O
pi
nb
er
s
tjó
rn
sý
sl
a
og
v
ar
na
rm
ál
A
lls
U
pp
lý
si
ng
ar
o
g
fja
rs
ki
pt
i
Fr
æ
ðs
lu
st
ar
fs
em
i
Sérfræðingar – frávik frá meðaltali 2020
Mynd 1: Myndin sýnir hvernig heildarlaun sérfræðinga víkja frá meðaltali eftir
atvinnugreinum. Þar má sjá að atvinnugreinin fræðslustarfsemi sker sig töluvert
úr – þar eru heildarlaun sautján prósentum lægri en meðaltalið og myndin nokkuð
sláandi.