Skólavarðan - 2021, Qupperneq 25

Skólavarðan - 2021, Qupperneq 25
HAUST 2021 SKÓLAVARÐAN 25 Hólmfríður K. Sigmarsdóttir / VIÐTAL starfsaðstæður er tilkoma viðbótar í þeim efnum klárlega til bóta. Ef ég horfi á vinnuumhverfið út frá mér sem persónu og ef við tengjum það saman við styttingu vinnuvikunnar þá er það klárlega betra fyrir mig sem starfsmann að fækka vinnustundunum sem ég þarf að vera á vinnustaðnum. Svo þarf maður líka að horfa á það út frá því sjónarhorni hvernig manni líður í vinnunni og þar finnst mér skipta svo miklu máli, og ég er búin að horfa svo mikið til þess, hvert leikskólinn er að þróast,“ segir Hólmfríður. Leikskólakennarinn er sérfræðingur „Lögin segja að leikskólinn sé fyrsta skólastigið, hann eigi að vera fyrir börnin og grunnþátturinn sem eigi að vinna út frá og það sem við leik- skólakennarar leggjum upp með í fagmennsku okkar sé að börn læri best í gegnum leik. Leikskólakennarinn er þar sérfræðingur; hann er búinn að mennta sig til þess í viðurkenndum stofnunum. Þegar út í vinnuumhverfið kemur þá er það þannig að lögin segja að leikskóla- kennarinn sé sérfræðingur og starf leikskólans skuli byggja á hans faglegu þekkingu. En svo er ákvæði í lögunum sem segir að ef ekki fæst starfsfólk með menntun þá megi ráða annað starfsfólk með annars konar menntun eða jafnvel litla sem enga. Þetta er raunveruleikinn okkar,“ segir Hólmfríður og bendir á að samkvæmt Hagstofu Íslands hafi árið 2018 einungis 28% leikskóla- starfsmanna verið menntaðir leikskóla- kennarar. „Raunveruleikinn er sá að það vantar ótrúlegan fjölda af leikskóla- kennurum til að geta skapað vinnu- umhverfi sem fyllir upp í væntingar Hólmfríður K. Sigmarsdóttir á að baki áratugalanga reynslu sem leikskóla- kennari. Hún talar hér um vinnuumhverfi leikskóla- kennara, leikinn og styttingu vinnuvikunnar en þetta tengist allt saman meira og minna. Vinnuumhverfi, leikurinn og stytting vinnuvikunnar tengist allt Svava Jónsdóttir skrifar

x

Skólavarðan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.