Skólavarðan - 2021, Qupperneq 27
HAUST 2021 SKÓLAVARÐAN 27
Náms- og starfsráðgjöf / KENNARASAMBANDIÐ
Pallborðið
Hvað segja náms- og starfsráðgjafar um nýja menntastefnu og starfsþróun?
Ásthildur G. Guðlaugsdóttir, náms- og
starfsráðgjafi í Kársnesskóla
X Starf náms- og starfsráðgjafa er afar mik-
ilvægt þegar kemur að stoðunum fimm, en við
veitum nemendum m.a. snemmbæran stuðning
bæði varðandi nám og félagslegan þroska og í
náms- og starfsfræðslu kynnum við fyrir nem-
endum náms- og starfsmöguleika í framtíðinni
og þá hæfni sem þau þurfa til að bera fyrir störf
framtíðar. Við erum einnig talsmenn nemenda
og komum þeirra röddum á framfæri og vinnum
að ýmsum verkefnum sem tengjast forvörnum,
heilsueflingu og geðrækt en vellíðan er einmitt
sett í öndvegi í nýrri menntastefnu.
Íris Björg Árnadóttir, náms- og
starfsráðgjafi í Kvennaskólanum
X Starf náms- og starfsráðgjafa er afar
fjölbreytt og því eru fjölmargar áherslur í nýrri
menntastefnu sem tengjast beint inn í starf
þeirra. Ég tel þess vegna afar mikilvægt og
mjög gleðilegt að sjá það vægi sem hlutverk
náms- og starfsráðgjafar fær í nýrri mennta-
stefnu. Reyndar tel ég náms- og starfsráðgjöf
nátengda markmiðum og gildum stefnunnar,
þ.e. menntun alla ævi sem og menntun við
hæfi hvers og eins með áherslu á styrkleika og
áhuga þar sem þessir þættir eru í raun kjarni
náms- og starfsráðgjafar.
Heimir Haraldsson, náms- og starfs-
ráðgjafi í Menntaskólanum á Akureyri
X Það að náms- og starfsráðgjöf sé ein af
fimm stoðum nýrrar menntastefnu þykir mér
skipta mjög miklu máli. Náms- og starfsráðgjöf
eykur líkur á því að einstaklingar velji nám og
störf út frá styrkleikum og eigin áhugasviðum.
Við það aukast líkur á að þeir komist í umhverfi
sem þeim líður vel í. Vellíðan í starfi eykur
líkur á að einstaklingar hugi að sinni starfsþró-
un út ævina og þá eru allir að græða. Yfirvöld
þurfa því að tryggja að náms- og starfsráðgjöf
sé í boði fyrir alla.
X Tækifæri náms- og starfsráðgjafa til
starfsþróunar eru fjölmörg. Ýmis námskeið og
fyrirlestrar eru í boði og svo er mjög gaman
að fara til annarra landa og kynnast því sem
náms- og starfsráðgjafar eru að gera þar og
getur það verið mjög lærdómsríkt. Ég hef verið
nokkuð dugleg að nýta mér þessi tækifæri, því
þegar maður er hálfgerður einyrki í starfi á
sínum vinnustað þá er nauðsynlegt að víkka
sjóndeildarhringinn og hitta aðra náms- og
starfsráðgjafa.
X Ef ég horfi til síðustu tveggja ára, sem hafa
auðvitað ekki verið hefðbundin, þá verð ég að
viðurkenna að það hefur of lítill tími gefist í
að skoða og nýta þau tækifæri sem í boði hafa
verið til starfsþróunar. Alla jafna er þó ýmislegt
í boði og ég hef reynt að nýta mér það sem
mér hefur fundist gagnast best eða vakið mest
áhuga minn en ég myndi samt sem áður vilja
hafa meiri tækifæri til starfsþróunar.
X Að mínu mati er nóg framboð af tæki-
færum til starfsþróunar. Ábyrgðin liggur hjá
okkur sjálfum að nýta þau og mikilvægt er að
við höfum opinn huga fyrir tækifærum og það
er í góðu lagi að horfa út fyrir kassann í þeim
efnum. Þetta þarf ekki alltaf að vera flókið, smá
sykur fyrir sálina í formi fyrirlestrar í hádeginu
eða á netinu getur gert heilmargt fyrir okkur
sem fagfólk. Að því sögðu mætti ég vera miklu
duglegri að nýta mér þessi tækifæri, en það
stendur allt til bóta.
Hversu mikilvægt er að náms- og starfsráðgjöf sé ein af fimm stoðum
nýrrar menntastefnu?
Eru tækifæri til starfsþróunar næg? Nýtirðu þér þau?
Hvað er ánægjulegast við starfið?
X Ánægjulegast finnst mér að finna að
starfið þitt skipti máli. Mér finnast samskiptin
líka sérlega skemmtileg og ég held að það
fyrirfinnist varla vinnustaður sem býður upp á
meiri fjölbreytni en grunnskóli. Bæði er starfið
mjög fjölbreytt, en engir dagar eru eins, og svo
er flóra nemenda og starfsmanna svo mikil.
Maður kemst ekki hjá því að læra eitthvað nýtt
á hverjum degi og hvað er meira gefandi en
það!
X Ánægjulegast við starfið er að fá að starfa
með ungu fólki í krefjandi umhverfi og styðja
við nemendur að taka góðar ákvarðanir
sem hafa áhrif á farsæld þeirra til framtíðar.
Ungmenni í dag eru duglegri að leita sér
aðstoðar og eru meðvitaðri um það hvað líðan
þeirra hefur mikil áhrif á námið. Ég er líka
heppinn með vinnustað og samstarfsmenn
því í krefjandi starfsumhverfi er stuðningur og
handleiðsla samstarfsmanna mjög mikilvægur
þáttur fyrir vellíðan í starfi.
X Það er einstaklega gefandi og ánægjulegt
að fá tækifæri til að styðja við unga einstak-
linga sem eru að stíga sín fyrstu skref út í
lífið og fá að taka þátt í því með þeim að finna
styrkleika sína, áhugasvið, gildi og stefnu og
aðstoða þá í að setja sér markmið. Því er það
að sjá nemendur ná markmiðum sínum, hvort
sem þau eru lítil eða stór og auka þannig trú á
eigin getu, það sem mér finnst hvað ánægjuleg-
ast við starfið.