Skólavarðan - 2021, Blaðsíða 33
HAUST 2021 SKÓLAVARÐAN 33
Tónlistarnám / RANNSÓKNIR
á sama hátt og undir venjulegum
kringumstæðum.
Flestir nemendur gátu nýtt sér
fjarkennslu en þó voru sumir nemendur
sem höfðu ekki aðgang að viðeigandi
tölvubúnaði og notuðust eingöngu
við síma með ófullnægjandi hljóð- og
myndgæðum. Skortur á tækjabúnaði
kom jafnvel alveg í veg fyrir fjarkennslu.
Mæting nemenda var almennt góð,
jafnvel betri en í hefðbundna kennslu.
Þátttakendur rannsóknarinnar mátu
það svo að flestum nemendum hefði
gengið vel að taka leiðbeiningum í gegn-
um fjarkennslubúnað og að einbeiting
þeirra hefði verið góð.
Öflugri búnað skortir til að gera
fjarkennslu meira spennandi
„Ég tel að tæknin hafi mikil áhrif á
hvernig fjarkennsla í tónlist muni
þróast. Af niðurstöðum rannsóknar-
innar má sjá að tæknin sem nýtt var
í samkomubanninu hentar ekkert
sérstaklega vel til fjarkennslu en öflugri
búnaður mun hugsanlega gera hana
meira spennandi. Þá sé ég fyrir mér að
tónlistarskólar komi sér upp tækni-
búnaði. Það var auðvitað sláandi að
langflestir kennarar notuðu sínar eigin
tölvur og búnað til að sinna kennsl-
unni,“ segir Karen Karólínudóttir.
Kennarar voru almennt ánægðir
með hvernig til tókst en þeim leið ekki
vel og upplifðu þreytu og líkamleg
einkenni í meira mæli en í hefðbund-
inni kennslu. Eldri kennarar fundu fyrir
meiri þreytu en yngri kennarar en ekki
fannst munur eftir kyni, starfshlutfalli
eða menntun. Körlum leið að meðaltali
betur en konum og tónlistarkennurum
utan höfuðborgarsvæðisins leið betur
en tónlistarkennurum á höfuðborgar-
svæðinu.
Í eðlilegu árferði í framtíðinni taldi
tæplega þriðjungur þátttakenda sennilegt
að þeir muni nýta sér fjarkennslubúnað,
flestir þó sem neyðarúrræði þegar stað-
kennslu verður ekki komið við. Kennarar
á landsbyggðinni sáu frekar fyrir sér
að kenna fjarkennslu í framtíðinni en
kennarar á höfuðborgarsvæðinu. Karen
Karen Erla
Karólínudóttir tón-
listarskólakennari
og Ingunn Jóns-
dóttir tónlistar-
skólakennari.
Rannsóknasjóður KÍ
- Var stofnaður í apríl 2019 samkvæmt
samþykkt á 8. þingi KÍ vorið 2018.
Markmið sjóðsins er að veita styrki
til rannsókna sem styðja við skólastarf
og dagleg störf félagsmanna Kennara-
sambands Íslands í skólum, þróa nýja
fræðiþekkingu sem félagsmenn KÍ hafa
þörf fyrir og stuðla að auknum gæðum í
skólastarfi.
bætir við: „Ég held að tónlistarkennarar
séu stoltir af því að hafa náð að halda
kennslu á floti í samkomubanninu, þó
skoðanir séu mjög skiptar á nýtingu
fjarkennslu í framtíðinni.“
Ljóst er að að þessi reynsla felur
í sér tækifæri til að læra nýjar leiðir í
tónlistarkennslu en hvort sú þekking
sem varð til muni breyta starfsháttum
tónlistarkennara mun framtíðin ein
leiða í ljós.