Skólavarðan - 2021, Blaðsíða 36

Skólavarðan - 2021, Blaðsíða 36
36 SKÓLAVARÐAN HAUST 2021 SKÓLINN / Náttúra aldan lendir á ströndinni svo hægt væri að byggja upp fjöruna í stað þess að einungis verja hana. Þetta hefur heppnast vel og sandfangarar tryggja að það er sandfjara við Vík því annars hefði þetta orðið stórstraumsfjara með grjóti og sandurinn á endanum horfið að mestu. Þannig að þetta var mikil framsýni. Nú hefur seinni sandfangari verið reistur en hann er ekki að safna eins miklum sandi og hinn og þessi rannsókn mun sýna fram á hvort hann sé að safna upp eða ekki og hvort hann sé að verja strandásinn eða ekki. Svona rannsókn þarf fimm ár til að gögnin séu tölfræðilega marktæk um breytingar á ströndinni. Samfélagslega mun verkefnið hjálpa Mýrdalshreppi að skipuleggja byggð við Vík og Vega- gerðinni varðandi hugsanlegt nýtt vega- stæði og hvaða aðgerðir verður farið í á ströndinni en aðallega kennir verkefnið nemendum að gleyma ekki hvernig ástandið var hér við ströndina því þetta ástand getur alltaf komið aftur. Kolbrún: Nú eru fyrstubekkingarnir að byrja í verkefninu og hugsið ykkur hvað þau hafa lært mikið í lok tíunda bekkjar. Verkefnið á eftir að þróast og einnig má taka það fram að það byggir mikið á fólkinu sem það leiðir og því mikilvægt að halda í sérfræðingana. Jóhann Marteinn: Ég er ekki kennari og kann lítið að miðla til krakkanna og því er mikilvægt í samstarfinu að fá kennarana til að miðla efninu og upplýsingum til nemenda. Það sem ég segi er ekki endilega í þeim búningi að það miðli sem mestu og því er ómetanlegt að hafa kennarana sem eru sérfræðingar í því. Kolbrún: Ég vil nú skjóta hér inn að lokum að ég er sannfærð um að eftir tíu ár verður Jóhannes orðinn fullkominn kennari. Hann lærir jafnmikið af okkur kennurum og við af honum sem jarðfræðingi. Frásögn af rannsóknarferð nemenda í Víkurfjöru í maí 2021 Katla jarðvangur og nemend- ur í 3.-4. bekk fóru í stutta rannsóknarferð út í Víkurfjöru í morgun. Áður en haldið var út í fjöru lærðu nemendur um muninn á föstum jarðlögum og lausum, hvað setlagafræði er og hver munurinn er á milli jarðfræðinga sem rannsaka eldfjöll og setlög. Þegar komið var í fjöruna tóku við athuganir á sandinum í fjörunni og hvernig fjaran byggist upp. Grafin voru tvö lítil snið og lögin sem byggja upp fjöruna skoðuð, ásamt mismunandi kornastærð þeirra. Nemendur lærðu samhliða því af hverju það er mismunandi kornastærð í fjörunni og í hvernig aðstæðum má búast við að mismunandi lög byggist upp. Þá sigtuðu nemend- ur sand til að aðskilja mismun- andi kornastærð og tóku sýni. Þá var einnig rölt aðeins eftir fjörunni og mismunandi steinar skoðaðir, meðal annars móberg sem nýttist vel til að útskýra enn betur muninn á lausum og föstum jarðlögum. Veðurblíðan lék við nemendur og kennara, og varð ekki betur séð en að allir væru ánægðir með ferðina. Þá mældi 5.-10. bekkur einnig sniðin sem þau eru að fylgjast með í Víkurfjöru í lok apríl. Var þetta önnur mæling eldri nemenda í fjörunni og er hluti af rannsóknarverkefni Víkurskóla og Kötlu jarðvangs. Á næsta skólaári munu nemendur síðan fara að vinna úr þeim gögnum sem þau hafa aflað núna í vetur og vor, ásamt því að halda áfram rannsóknum sínum í Víkurfjöru. Nemendur Víkurskóla munu síðan gera grein fyrir fyrstu niðurstöðum sínum næsta vor, en þá verða þau búin að fylgjast með fjörunni í eitt ár. Frétt af vef katlageopark.is dagsett 21. maí 2021
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.