Skólavarðan - 2021, Síða 41
HAUST 2021 SKÓLAVARÐAN 41
Nýsköpun / RADDIR
Tölvulæsi og gagn-
rýnin hugsun eru
tveir samhangandi
þættir sem skipta
sköpum í samfé-
laginu okkar og
þess vegna leggur
Evrópusamstarf mik-
ið upp úr stuðningi
svo hægt sé að nýta
tæknina til fullnustu í
skólastarfi.
vel heppnað dæmi um hvernig kennarar
geta tileinkað sér nýjar aðferðir og
nemendur tekið virkari þátt í námi sínu
og þannig tekið enn meiri ábyrgð á því.
Þemað er stafræn væðing í námi og
kennslu
Evrópuverkefni eru mikilvæg leið
fyrir skóla og aðrar fræðslustofnanir
í landinu til að skiptast á reynslu við
erlenda samstarfsaðila og innleiða nýj-
ungar í sínum náms- og kennsluháttum,
eins og þessi dæmi sýna glögglega. Þetta
á ekki síst við þema ársins hjá Evrópu-
verðlaununum, sem er stafræn væðing
í námi og kennslu með megináherslu á
fjarnám og blandað nám. Öllum er ljóst
þvílíkt þrekvirki var unnið í skólum
landsins þegar heimsfaraldurinn reið
yfir og kennarar þurftu fyrirvaralaust að
taka upp nýja kennsluhætti.
Í kjölfar faraldursins er um að gera
að byggja á þeim lærdómi sem hlaust á
síðustu árum en taka um leið skrefið í
átt að auknum gæðum í notkun tölvu-
og upplýsingatækni, sem getur gert
námið meira hvetjandi og inngildandi
fyrir fjölbreyttan hóp nemenda.
Tölvulæsi og gagnrýnin hugsun eru
tveir samhangandi þættir sem skipta
sköpum í samfélaginu okkar og þess
vegna leggur Evrópusamstarf mikið upp
úr stuðningi svo hægt sé að
nýta tæknina til fullnustu í
skólastarfi.
Þjálfun og menntun
kennara í brennidepli
Í hverju felst þessi stuðn-
ingur? Í fyrsta lagi hafa
Erasmus+, eTwinning og
School Education Gateway,
sem er vefgátt fyrir skóla- og
fræðslustofnanir, öll sannað
gildi sitt þegar kemur að því
að læra hvert af öðru, meðal
annars við að tileinka sér
notkun stafrænna miðla. Í
öðru lagi má nefna Kennara-
akademíur Erasmus+ sem
eru nýjar af nálinni. Hér er
þjálfun og menntun kennara
í brennidepli, bæði þeirra
sem starfa nú þegar á sviði
kennslu og líka kennara-
nema. Akademíunum er ætlað að ýta
undir menningarlega fjölbreytni og
þróa kennaramenntun í takt við nýja
tíma – með áherslu á stafrænt nám,
sjálfbærni, jafnrétti og inngildingu.
Í þriðja lagi má nefna sérstakt
evrópskt vefsvæði – European
Digital Education Hub – sem
stendur til að opna til að gera
samræmingu, rannsóknir
og deilingu niðurstaðna úr
góðum verkefnum á þessu
sviði auðveldari. Markmiðið
með vefnum verður að auka
samstarf milli ólíkra sviða,
búa til samstarfsnet um staf-
ræna menntun innan hvers
lands og skiptast á góðum
reynslusögum.
Um leið og við óskum
handhöfum Evrópuverðlauna
fyrir nýsköpun í kennslu
hjartanlega til hamingju með
árangurinn hvetjum við alla
kennara og starfsfólk skóla,
stjórnendur þeirra og sveitar-
félög á Íslandi eindregið til
að kynna sér þann hafsjó
af tækifærum sem felast í
Evrópusamstarfi. Besta leiðin í átt að
menntun til framtíðar er að vinna í
sameiningu að nýbreytni og lausnum.
Tækifærin hefjast hér
www.erasmusplus.is
Opnar hugann, auðgar líf