Skólavarðan - 2021, Síða 53
HAUST 2021 SKÓLAVARÐAN 53
Núvitund / RADDIR
Vissir þú?
Lífeyrispunktar
frá LSR
X Að með því að nýta þér séreignarsparnað
færðu 2% beina launahækkun frá vinnuveitanda?
X Að allir sjóðfélagar LSR geta nýtt sér sér-
eignarsparnað LSR? Séreign LSR – Leið I skilaði
13,3% raunávöxtun á síðasta ári og hefur skilað
6,3% raunávöxtun að meðaltali sl. 10 ár.
X Að skv. tölum frá Seðlabanka Íslands er
ávöxtun í Séreign LSR - Leið I hjá LSR vel
umfram meðaltal séreignarsjóða banka og
sparisjóða (sem var 5,63% á síðasta ári og 2,99%
að meðaltali á ári sl. 10% ár)?
X Að skv. Seðlabanka Íslands er kostnaður
við rekstur séreignarsjóða að jafnaði lægri hjá
séreignardeildum lífeyrissjóða heldur en hjá
bönkum og sparisjóðum?
X Að sjóðfélögum LSR bjóðast bæði verðtryggð
og óverðtryggð fasteignalán hjá sjóðnum sem
geta numið allt að 70% af veðhlutfalli fasteignar?
X Að engin uppgreiðsluþóknun er tekin af
lánum LSR og hægt er að greiða inn á lánin
hvenær sem er án gjalds?
X Að vextir LSR lána eru fastir í 36 mánuði
í senn en einnig er hægt að fá verðtryggð lán
með föstum vöxtum út allan lánstímann?
X Að lífeyrisréttindi sjóðfélaga LSR eru nokk-
uð mismunandi milli A- og B-deilda sjóðsins?
B-deildinni var lokað árið 1997, þannig að þeir
sem hófu að greiða til sjóðsins eftir það eru allir
í A-deild.
X Að þú getur séð hvort þú sért í A- eða
B-deild LSR með því að skrá þig inn á Mínar
síður á vef LSR?
X Að þú getur séð áunnin réttindi þín hjá LSR
á Mínum síðum lsr.is?
X Að sjóðfélagar í A-deild LSR eiga rétt á
örorkulífeyri ef mat á örorku er a.m.k. 40%
í þrjá mánuði eða lengur? Hjá B-deild er
hlutfallið 10%.
X Að fjárhæð örorkulífeyris í A-deild LSR
fer eftir þeim réttindum sem sjóðfélagi hefur
áunnið sér? Hafi sjóðfélagi hins vegar greitt
iðgjald í a.m.k. 3 af síðustu 4 almanaksárum og 6
af síðustu 12 mánuðum gæti hann, að uppfylltum
ákveðnum skilyrðum, átt rétt á að réttindin séu
framreiknuð, þannig að fjárhæðin sé reiknuð út
frá því sem sjóðfélagi hefði áunnið sér fram til 65
ára aldurs.
X Að ef sjóðfélagi LSR fellur frá geta
eftirlifandi maki og börn átt rétt á maka- og
barnalífeyri?
Þ að er gefandi en
jafnframt krefjandi
að kenna. Mikil
umræða er um álag
í kennarastarfinu
og áhyggjuefni hve
hátt hlutfall kennara upplifir mikla
streitu og kulnun í starfi. Mikilvægt
er að bregðast við þessu og skapa
heilsueflandi starfsaðstæður í skólum.
Þar er hlutverk menntamálayfirvalda
og stjórnenda mjög mikilvægt og setja
þarf skýr markmið og varða leiðir sem
efla velfarnað allra þeirra sem í skólum
starfa, bæði nemenda og starfsfólks.
Styðja þarf kennara til starfsþróunar á
þessu fræðasviði líkt og öðrum. Eitt af
því sem hefur verið reynt og rannsakað
erlendis er að innleiða núvitund í
skólastarf með það að markmiði að
efla velfarnað. Hérlendis hafa nokkrir
skólar þegar stigið skref í þessa átt
en rannsóknir sýna að núvitundar-
þjálfun er t.d. öflug leið til að auka
vellíðan, sjálfsþekkingu og seiglu, efla
einbeitingu og athygli, draga úr kvíða
og þunglyndi, efla samskiptahæfni og
styrkja ónæmiskerfið. Þá sýna rann-
sóknir að núvitundarþjálfun stuðlar
að aukinni samkennd bæði í eigin garð
og til annarra sem er verndandi þáttur
gegn streitu og kulnun.
Núvitund snýst um meðvitund
um það sem er að gerast innra með
okkur og í umhverfinu ásamt því að
veita viðbrögðum okkar athygli. Við
tileinkum okkur umburðarlyndi,
opið hugarfar, forvitni og mildi bæði
gagnvart okkur sjálfum og öðrum. Við
leggjum okkur fram um að vera sem
oftast til staðar, andlega og líkamlega.
Við þjálfum athyglina og æfum okkur í
að veita hugsunum okkar, tilfinningum
og líkama meðvitaða athygli, hvort sem
upplifunin er góð eða slæm. Við þjálfum
okkur í því að meðtaka, viðurkenna og
finna fyrir því sem við upplifum og velja
meðvitað hjálpleg viðbrögð.
Núvitund er annars vegar þjálfuð
með formlegum hætti, með núvit-
undarhugleiðslu, og hins vegar með
óformlegum hætti í daglegu lífi. Þá
leggjum við okkur fram um að hafa fulla
athygli á því sem við erum að gera en
tækifærin til að þjálfa okkur í daglegu
lífi og starfi eru óteljandi. Í skólastarfi
eru fjölbreytt verkefni á degi hverjum
en ef hugurinn er sífellt að flakka á milli
þess sem við erum að gera og þess sem
við vorum að gera eða eigum eftir að
gera þá eykst hættan á þreytu og streitu.
Það styður mjög við þessa færni í dag-
legu lífi að þjálfa okkur formlega en það
þarf ekki að vera flókið, það þarf ekki
neinn sérstakan búnað eða aðstæður
til að hugleiða. Æfingarnar geta verið
allt frá einni til tveimur mínútum og
upp í 20 til 30 mínútur en mikilvægt
er að finna sér fastan æfingatíma í dag-
skipulaginu. Sumir kennarar hafa t.d.
vanið sig á að hinkra aðeins lengur við í
stofunni í nokkrar mínútur eftir kennslu
og hugleiða stutta stund. Þá er hægt að
venja sig á að staldra við í bílnum eða
velja sér lengstu röðina í búðinni. Það er
dýrmætt að skapa sér andrými reglulega
yfir daginn en rannsóknir sýna að með
því er streitustigið í huga og líkama mun
lægra við lok dags en annars hefði verið.
Ef innleiða á núvitund í skóla þarf
að byrja á að gefa starfsfólkinu tækifæri
til að kynna sér hvað núvitund er, síðan
að æfa sig og loks að kenna núvitund
hafi það áhuga á því. Hægt er að nýta
leiddar hugleiðslur og spila fyrir hópinn
eða leiða æfingar sjálf. Þá geta kennarar
farið á kennsluþjálfunarnámskeið til
að fá sérstakt námsefni í núvitund og
öðlast aukið öryggi í að miðla núvitund
til nemenda sinna. Það að vinna með
núvitund með nemendum getur stutt
okkur í að hlúa að eigin núvitund og þar
með stíga mikilvæg skref til að hlúa að
heilsu okkar. Eitt af því sem núvitund
getur hjálpað okkur með er að næra
neistann okkar og vera meðvituð um
það þegar álagið verður of mikið og geta
brugðist við á hjálplegan máta áður en í
óefni er komið.
Stuðningur stjórnenda skiptir
höfuðmáli þegar kemur að því að efla
velfarnað í skólum hvort sem um er að
ræða núvitund eða aðra heilsueflandi
þætti. Þeir þurfa að setja skýr markmið
og skapa aðstæður og rými til að hlúa
að þáttum velfarnaðar alveg eins og þeir
leggja línur varðandi annað í skólastarf-
inu. Með því að gefa kennurum og öðru
starfsfólki kost á að kynna sér núvitund
má stuðla að bættum skólabrag, aukinni
heilsueflingu og velfarnaði allra sem
skólasamfélaginu tilheyra.
Aðsend grein
Að næra neistann
með núvitund
Bryndís Jóna Jónsdóttir, núvitundarkennari,
grunnskólakennari og náms- og starfsráðgjafi