Skólavarðan - 2021, Page 54
54 SKÓLAVARÐAN HAUST 2021
KENNARASAMBANDIÐ / Félagsstarf
F élagsmenn KÍ eru orðnir
þrælvanir að sækja fundi og
viðburði á netinu. Þannig fóru
leikar að mestu fram á síðasta
ári og langt fram eftir þessu ári.
Skólamálaþing KÍ, sem jafnan
er vel sótt, var til dæmis netviðburður annað árið í
röð.
Á haustdögum rofaði loks ofurlítið til og
samkomutakmörkunum var að miklu leyti aflétt.
Mörg aðildarfélaga KÍ nýttu tækifærið og efndu
til staðfunda. Á öllum þessum fundum var ítrustu
varkárni gætt og sóttvarnareglum fylgt út í ystu
æsar. Covid-próf fyrir fund, spritt á staðnum,
grímur og sömu sæti út daginn eru nú eðlilegasti
hlutur í heimi.
Þegar þetta er skrifað um miðjan nóv-
ember eru því miður blikur á lofti og harðari
samkomutakmarkanir hafa tekið gildi. Hversu
lengi það varir veit enginn en vonandi gefst
aðildarfélögunum kostur á að hóa sínu fólki saman
á nýju ári.
Hér eru myndir frá nokkrum viðburðum á
haustönn.
Félagsstarf aðildarfélaganna
Félagsmenn komu
saman eftir hlé
Fulltrúar FG á ársfundi félagsins 23. september.
Fundað var í Hvammi á Grand Hótel Reykjavík.
Félag grunnskólakennara efndi til ársfundar á Grand
Hótel Reykjavík 23. september. Á myndinni sjást
meðal annars Jens Guðjón Einarsson, varaformað-
ur FG, Þorgerður Laufey Diðriksdóttir, formaður
FG, og Jón Ingi Gíslason, formaður Kennarafélags
Reykjavíkur.
Ríflega þrjú hundruð félagar í Skólastjórafélagi
Íslands komu saman á námstefnu á Akureyri í byrjun
október. Dagskráin var þéttskipuð sem endranær,
meðal annars var fjallað um ómeðvitaða hlutdrægni,
meðvirkni í stjórnun og markþjálfun í skólasamfé-
lagi.
Framhaldsskólakennarar komu saman á full-
trúafundi 6. nóvember. Fundað var í Stórholti, sal
Kennarasambandsins við Borgartún. Fulltrúafundur
er haldinn þau ár sem ekki er aðalfundur. Boðað
verður til aðalfundar á næsta ári.
Góð mæting var á Svæðisþing tónlistarskóla á
höfuðborgarsvæðinu sem fram fór á Grand Hótel
Reykjavík 6. október. Meðal þess sem var til umræðu
var „Tónlistarskóli sem lærdómssamfélag“, skipulag
kennslu og starfsþróunarmöguleikar. Svæðisþing
FT voru haldin í nítjánda sinn í þetta sinn en þau eru
vettvangur faglegrar umræðu um málefni tónlistar-
skólans og tónlistarnáms.
Jafnréttisstefnu-
mót aftur að ári
Jafnréttisnefndir Kennarasam-
bands Íslands og Menntavís-
indasviðs HÍ efndu til þriggja
jafnréttisstefnumóta í nóvember.
Fyrsta stefnumótið bar
yfirskriftina Jafnrétti í skóla- og
frístundastarfi. Svandís Anna
Sigurðardóttir, frá Mann-
réttindastofu Reykjavíkur,
fjallaði um Regnbogavottun og
hinsegin málefni. Eva Halldóra
Guðmundsdóttir, verkefnastjóri
hjá Tjörninni, fjallaði um hvernig
nálgast má samtöl um erfið mál-
efni við ungt fólk og Sigrún Birna
Björnsdóttir, sérfræðingur hjá
KÍ, kynnti vef jafnréttisnefndar
KÍ. Hanna Björg Vilhjálmsdóttir,
forkona jafnréttisnefndar KÍ,
stýrði fundinum.
Skilningur ekki nægur
Annað stefnumótið bar yfir-
skriftina Jaðarsetning í skóla-
menningu, hvað þarf að ræða?
Ungmenni sögðu frá hugðarefn-
um sem lúta að jaðarsetningu og
hvernig nálgast má það málefni
í skólasamfélaginu. Þar komu
fram Antirasistarnir Kristín og
Valgerður Reynisdætur, Anna
María Kjeld, frá Q-félagi hinsegin
stúdenta, Phoebe Jarina, frá
Femínistafélagi Kvennaskólans,
og Eiður Welding, framhalds-
skólanemi og stjórnarmaður í
Öryrkjabandalagi Íslands.
Fram kom í máli þeirra að
skilningur margra kennara á mál-
efnum sem þessum er ekki nægur.
Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir,
verkefnastýra Jafnréttisskóla
Reykjavíkur, stýrði fundinum.
Ærið verk fyrir höndum
Þriðja stefnumótið bar yfirskrift-
ina Forréttindi, forréttindablinda
og jafnrétti í skólastarfi. Þessu
lokastefnumóti var ætlað að
draga saman og kortleggja
stöðu jafnréttismála í skóla- og
frístundastarfi en einnig var lagt
á ráðin um hvernig skapa má
rými réttlætis og jöfnuðar í þeim
stofnunum sem þátttakendur
starfa í. Meðal annars kom í
ljós að skilningi á stöðu ýmissa
þjóðfélagshópa og einstaklinga
er ábótavant þegar kemur að vali
á námsefni, kennsluaðferðum
og umræðum innan skólasamfé-
lagsins og því ærið verk enn fyrir
höndum.