Skólavarðan - 2021, Qupperneq 55

Skólavarðan - 2021, Qupperneq 55
HAUST 2021 SKÓLAVARÐAN 55 Vinnuumhverfismál / RADDIR Kennarar eru með áttavita sem leitar oft í aðrar áttir en hann ætti að gera. Sú truflun sem áttavit- inn verður fyrir er sú hugsun og staðreynd að kennarar hafi ekki gert nóg fyrir nem- endur sína; hafi ekki sinnt skyldu sinni. H vað er samviska? Samviska getur m.a. þýtt „að vita með sjálfum sér“ og „ sú tilfinning sem við höfum fyrir því hvað sé rétt og rangt.“ Margir kennarar glíma við samviskuna og áttavitann sem býr innra með þeim. Innri rödd okkar má líkja við áttavita, segir Anna Valdimarsdóttir (2010). Hann er afar næmur og því þarf ekki mikið til að trufla hann. Ef áttaviti á að vísa okkur rétta leið verðum við að búa honum rétt skilyrði. Ef við gerum það ekki er hætt við að við lendum á villigötum (Anna Valdimarsdóttir, 2010). Kennarar skera sig úr, það þarf mikið til að trufla áttavita kennara þó næmur sé og samvisku. Hvað skilyrðin varðar er það í höndum þeirra sem stjórna og reka skólana að móta þau. Kennarar eru með áttavita sem leitar oft í aðrar áttir en hann ætti að gera. Sú truflun sem áttavitinn verður fyrir er sú hugsun og staðreynd að kennarar hafi ekki gert nóg fyrir nemendur sína; hafi ekki sinnt skyldu sinni. Slíkt heyrist t.d. meðal grunnskólakennara. Áttavitinn og samviskan benda kennurum á að þeir hafi ekki sinnt nemendum eins og þeim ber samkvæmt lögum um grunnskóla. Þegar kennari fer heim með þá hugsun að hann hafi ekki komið til móts við alla nemendur sína hefur það áhrif á starfið og andlega líðan hans. Kennari upplifir að hann hafi ekki getað lagt námsefnið fyrir eins og honum ber, það vanti vinnufrið meðal nemenda, agaleysið sé of mikið. Kennari upplifir að uppeldismál séu fyrirferðarmeiri en kennsla. Slíkt gerist dag eftir dag eftir dag. Kennari mætir dapur í bragði daginn eftir og tekst eina ferðina enn á við dag þar sem samviskan segir að hann geri ekki nóg. Anna (2010) segir: „Samviskan er viskan sem gerir mig að meiri manneskju. Ég öðlast ekki visku nema ég hlýði rödd samvisku minnar. Það liggur í orðinu sjálfu: Sam-viska.“ Því miður geta margir kennar- ar, starfsskilyrða vegna, ekki hlýtt rödd samvisku sinnar. Ytri og innri starfsskilyrði í skólastarfi eru ekki á valdi kennara heldur rekstraraðila skóla. Hvað er til ráða Grunnskólinn er skylda. Í grunnskóla er engum vísað frá eigi nemandi lögheimili í hverfi skólans. Þar skiptir engu hvort bekkurinn sé fjölmennur eða erfiður. Mörg sveitarfélög eru treg til að bæta við kennurum þegar krefjandi nemendur bætast í yfirfulla og erfiða bekki. Stuðningsfulltrúar eru frekar ráðnir sem ódýrari vinnukraftur en kennarar. Stjórnendur skóla horfa ekki til gæða skólastarfs og faglegrar færni starfs- manns. Yfirboðarar þeirra, sveitarfélögin, hafa sennilega sitt að segja með þann ráðahag. Starfsmenn leikskóla benda á að festa þurfi í lög fjölda barna á hvern starfsmann. Taka má heilshugar undir það. Aðsend grein Er samviska vinnuumhverfismál? Helga Dögg Sverrisdóttir, formaður vinnuumhverfisnefndar KÍ Sveitarfélögin eiga að sjá sóma sinn í að bjóða börnum og unglingum upp á góða skóladvöl frá upphafi til enda. Það þarf að koma á fjöldatakmörkun í bekki í fjölmennum grunnskólum. Raunhæfri fjöldatakmörkun. Auk þess á samsetning hóps að ráða fjölda í einstaka bekkjum. Agavandamál, geðraskanir, fjölmenning og hvers konar fötlun á að setja á vogarskálar þegar vigtað er inn í bekk. Þegar nemendur sem tala ekki íslensku eru fleiri en einn kallar það á fleiri fasta kennara í bekk til að sinna faglegu starfi. Ekki í stakar kennslustundir heldur allar. Samvisku kennara sem stendur einn með fjölbreyttan hóp er ógnað. Slík ógnun er vinnuumhverfismál. Hlusta á samviskuna Kennarar eru stétt sem lætur ýmislegt yfir sig ganga og réttlæta það með því að um börn sé að ræða. Kennarar eru duglegir að drekkja eigin samvisku þegar skólastarf er annars vegar og telja það í þágu barnanna. Ég tek undir með Önnu þegar hún segir: „En mannshugurinn er meistari í að réttlæta fyrir sér alls kyns sjálfsblekkingar. Þegar við erum týnd sjálfum okkur drukknar rödd samviskunnar í hávaðanum sem umlykur okkur þegar við eigum erfitt með að hvíla í eigin huga og gerum hvað sem er til að heyra ekki í nagandi röddinni innra með sjálfum okkur né velviljaðar raddir annarra“ (Anna Valdimarsdóttir, 2010). Þegar kennarar leita hjálpar, hjá t.d. trúnaðar- mönnum, vegna bugunar verður oft lítið úr að þeir fari að þeim ráðum sem þeir fá. Samviskan leyfir það ekki. Samviskan er harður húsbóndi kennara og hefur áhrif á vinnuumhverfi þeirra. Já, samviska er vinnuumhverfismál Til að svara fyrirsögninni má benda á rök málinu til stuðnings. Barátta við samviskuna kallar á hugarangur sem hefur áhrif á vinnuframlag. Barátta við samviskuna kallar á vanlíðan í starfi sem hefur áhrif á vinnuframlag. Barátta við samviskuna kallar fram óánægju sem hefur áhrif á vinnuframlag og staðblæ vinnustaðar. Barátta við samviskuna kallar fram magnleysi sem hefur áhrif á vinnuframlag og líðan. Barátta við samviskuna getur leitt af sér andleg veikindi, sem klárlega er vinnuumhverfismál þegar skólastarfið er aðalorsakavaldur- inn. Barátta við samviskuna kallar á sektarkennd. Barátta við samviskuna kallar á íhugun um að yfirgefa kennarastarfið. Barátta við samviskuna er orsakavaldur að því að kennarar hætti kennslu. Ytri og innri þættir skólastarfs hafa áhrif á samvisku og áttavita kennara. Þeir þættir eiga að beina áttavitanum og samviskunni í rétta átt þannig að kennarar gangi sáttir frá starfi sínu, nánast daglega. Betur má ef duga skal hjá mörgum stjórnendum og rekstraraðilum skólanna. Heimild: Anna Valdimarsdóttir. (2010). Ástríðufull samviska. Vefrit Sálfræðingafélags Íslands. Sótt 17. október af Ástríðu- full samviska | Vefrit Sálfræðinga- félags Íslands (wordpress.com).

x

Skólavarðan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.