Skólavarðan - 2021, Qupperneq 56
56 SKÓLAVARÐAN HAUST 2021
NEMANDINN / Umhverfisvernd
höfðum við verið í samskiptum við tvo
framhaldsskóla, Nordahl Grieg skólann
í Bergen og Örestad framhaldsskólann í
Kaupmannahöfn,“ segir Oskar Sjögren,
skólastjóri YBC. „Við vildum þróa
samstarf með þessum skólum og ýta
undir vilja ungs fólks til þess að skapa
betri framtíð. Þess vegna sóttum við
um styrk til Nordplus til að heimsækja
skólann í Bergen.“
Grænni framtíð sem þema innan
Nordplus
Umsókn skólans til Nordplus Junior
fyrir undirbúningsheimsókn var
samþykkt og fyrsti fundur kennara og
skólastjóra skólanna þriggja var haldinn
í Bergen í janúar 2020. Fundurinn
leiddi til sameiginlegrar umsóknar
til Nordplus Junior áætlunarinnar
fyrir þriggja ára verkefni sem nefnist
„Norrænir Changemaker skólar
takast á við heimsmarkmiðaáskorun
Sameinuðu þjóðanna“ sem var einnig
samþykkt. „Það var bæði skemmtilegt
og fræðandi að hittast og vinna saman á
ólíkum tungumálum. Við ræddum bæði
framtíðarsýn verkefnisins og hver væru
raunhæf markmið þess,“ segir Ylva
Broman, félagsfræði- og sænskukennari
hjá YBC. Verkefnið sem YBC vinnur að
fellur innan ramma Nordplus áætlunar-
innar um áherslu á græna framtíð.
Einn bekkur frá hverjum skóla
tekur þátt í verkefninu, en það
beinir sjónum að því hvernig við getum
uppfyllt þrjú af heimsmarkmiðum
Sameinuðu þjóðanna um sjálfbærni.
Nordplus styrkurinn var að mestu
eyrnamerktur ferðalögum, en þeim
þurfti að fresta vegna heimsfaraldursins
og því hafa nemendurnir hingað til
einungis hist á stafrænan máta.
Fyrsta árið vann sænski bekkurinn
sérstaklega að því að skoða hvaða
leiðir væru færar til að stöðva lofts-
lagsbreytingar. „Við vildum nýta virkni
nemendanna til að blása til aðgerða,“
segir Ylva Broman. „Við höfum unnið
að því hvernig hægt er að breyta eigin
hegðun og lífstílsvenjum og hafa út frá
því áhrif á samfélagið. Nemendurnir
hafa lokið mismunandi herferðum, til
dæmis búið til auglýsingar fyrir Nature
and Youth Sweden og einnig fyrir
verslun með notuð föt. Þau hafa líka
Þátttaka ungs fólks í nátt-
úruvernd er sífellt að aukast,
en sænski framhaldsskólinn
YBC hefur hafið samstarf við
danska og norska skóla og
sett á fót þriggja ára verkefni
til að skapa betri framtíð.
Y oung Business
Creatives (YBC)
er opinber
framhalds-
skóli í Nacka,
sveitarfélagi rétt
fyrir utan Stokkhólm, sem býður upp
á námsleiðir í frumkvöðlastarfsemi og
skapandi hugsun. Framtíðarsýn skólans
er „Við munum breyta heiminum“ og í
tengslum við það hefur hann tekið þátt
í alþjóðlegu samstarfsneti, svokölluðu
Changemaker Schools síðan 2014 á
vegum samtaka sem nefnast Ashoka
sem styðja við frumkvöðlastarfsemi um
allan heim.
„Í gegnum samstarfsnetið
Nordplus
Nemendur hvattir til aðgerða
í umhverfismálum
Höfundur er
Kristina Wall
hjá sænska
framhalds-
skólaráðinu.
Þýðing fyrir
Nordplus á
Íslandi.