Skólavarðan - 2021, Síða 57
HAUST 2021 SKÓLAVARÐAN 57
Vinnumarkaður / NEMANDINN
Einn bekkur frá
hverjum skóla tekur
þátt í verkefninu, en
það beinir sjónum
að því hvernig við
getum uppfyllt þrjú
af heimsmarkmiðum
Sameinuðu þjóðanna
um sjálfbærni.
búið til tónlistarmyndband sem vekur
athygli á umhverfisspjöllum og hitt
stjórnmálamenn til að fræðast um hvað
sveitarfélagið þeirra er að gera til að
uppfylla heimsmarkmið Sameinuðu
þjóðanna um sjálfbærni.“
Nemendur ánægðir með verkefna-
vinnuna
Vonir standa til að bekkirnir sem taka
þátt í verkefninu geti hist í Bergen í
mars 2022 til að halda áfram samstarf-
inu og vinna saman að heimsmarkmiði
tengdu hafinu og sjávarauðlindum. Í
framhaldi af því verður lögð áhersla á
sjálfbærni borga og samfélaga þegar
bekkirnir hittast í Kaupmannahöfn.
Þrátt fyrir að fyrsta árið hafi ekki
farið alveg samkvæmt áætlun vegna
heimsfaraldursins hefur það heppnast
vel: „Það hefur farið fram úr björtustu
vonum,” segir Ylva Boman. „Við höfum
gert mat á verkefninu og nemendunum
finnst Nordplus verkefnið vera með því
skemmtilegasta sem þau hafa gert allt
árið! Þau eru stolt af lokaafurðunum og
þrátt fyrir stafræna umhverfið og engin
ferðalög hafa þau til dæmis eignast
nýja Snapchat vini. Sumt hefur þó
verið erfitt, eins og að skilja tungumál
hvers annars og taka þátt í stafrænum
fundum.“ „Við höfum sérstaklega getað
unnið með framtíðarsýnina okkar, að
breyta heiminum og á sama tíma höfum
við aukið skilning okkar á norrænni
menningu og tungumálum,“ segir
Oskar Sjögren, skólastjóri YBC. „Það
er frábært að sjá hversu líkir skólarnir
okkar eru og hve vel þeim gengur að
vinna að sameiginlegu verkefni. Við
viljum sýna fram á að skoðanir ungs
fólks séu ákaflega mikilvægar og að þær
geti skipt máli hér og nú.“
V R heldur áfram að
bjóða upp á VR-Skóla
lífsins í vetur og nú
er enn einfaldara
fyrir framhaldsskóla
að fá aðgang að
netnáminu. Eftir gagnlegar ábendingar
varðandi skyldur framhaldsskóla um vernd
persónuupplýsinga nemenda hafa verið
gerðar uppfærslur á VR-Skóla lífsins sem fela í
sér tæknilegar og skipulagslegar ráðstafanir til
að auka öryggi vinnslu persónuverndarupp-
lýsinga þátttakenda.
VR-Skóli lífsins er netnámskeið fyrir
ungt fólk á aldrinum 16-24 ára sem er að stíga
sín fyrstu skref á vinnumarkaði. „Hvernig fæ
ég vinnu?“ „Hvað á ég að fá í laun?“ „Hvað er
jafnaðarkaup?“ - þessum spurningum og ótal
fleiri er svarað á mannamáli með líflegum
myndböndum og stuttum verkefnum í lok
hvers kafla. Nemendur fá einnig skírteini
þegar þeir klára netnámið sem er frábær
viðbót við ferilskrána. VR-Skóli lífsins hefur
verið starfræktur í 7 ár og yfir 6.500 ung-
menni hafa lokið við námið.
Kennarar fá aðgang að námsefninu
VR veitir skólunum aðgang að námsefninu
þeim að kostnaðarlausu og kennarar geta
fengið aðgang fyrir sína nemendahópa með
því að hafa samband við VR. Breytingarnar á
kerfinu fela það í sér að VR þarf nú einungis
nafn og netfang kennara til að stofna svokall-
aðan Ofurkennaraaðgang.
Kennarar fá þannig sjálfir aðgang inn í
VR-Skóla lífsins, geta útbúið hópa og boðið
nemendum inn í kerfið. Kennarar hafa áfram
yfirsýn yfir sína hópa og geta sent nemendum
boð um að skrá sig, kallað fram yfirlit yfir
þá nemendur sem hafa fengið boð en ekki
nýtt það, boðið öðrum kennurum að tengjast
hópnum og kallað eftir hóplista með nöfnum,
notendanöfnum og lykilorðum nemenda.
Kennari skilgreinir sjálfur til hve langs tíma
aðgangur er stofnaður en öllum óvirkum
aðgöngum er eytt eftir eitt ár.
Skilvirkt netnám
Fyrir framhaldsskólahópa tekur námið tvær
kennslustundir. Netnámið sjálft tekur um 60
mínútur og er hægt að fara í gegnum það í
kennslustund eða í heimavinnu.
Þá er verklegur tími með kennara ein
kennslustund eftir að nemendur hafa lokið
við netnámið. Til að nálgast námsefnið og fá
nánari upplýsingar má senda póst á
vrskolilifsins@vr.is eða hringja í
síma 510 1700.
Kynning
VR Skóli lífsins –
netnám um allt varðandi
vinnumarkaðinn
Umsagnir framhaldsskólakennara
um VR-Skóla lífsins
„Við teljum VR Skólann henta nemendum vel. Okkur finnst myndböndin skemmtileg viðbót við
kennsluna og nemendum finnst þetta fróðlegt og skemmtilegt. Lifandi umræður skapast oft í
verklega tímanum. Vinnan fyrir okkur kennarana er einföld og án erfiðleika. Það fylgja góðar
leiðbeiningar og auðvelt að fá svör frá VR ef spurningar vakna.“
Viðskiptagreinakennarar í Verzlunarskóla Íslands
„Ég nota VR Skólann í kennslu því hann nálgast nemendur og viðfangsefnið á skýran og skemmti-
legan hátt. Nemendur muna vel eftir efninu og vitna oft í það. Það er ekkert mál að leggja þetta
fyrir, leiðbeiningar eru skýrar og þetta er ekkert flókið.“
Lífsleiknikennari við Kvennaskólann í Reykjavík
„Við notum VR-Skóla lífsins vegna þess að hann höfðar til krakkanna, þeim finnst hann skemmti-
legur og áhugaverður. Frábært að fá VR Skóla skírteinið til að setja með ferilskránni. Okkur finnst
gott að geta fylgst með framvindu nemenda með kennaraaðganginum okkar og fáum alltaf snögg
svör við fyrirspurnum okkar hjá VR.“
Lífsleiknikennarar við Fjölbrautaskólann við Ármúla