Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2009, Side 6

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2009, Side 6
„Þá kom fylgdarskipið og henti djúpsprengjum, og ... það stórfækkaði í hópnum“ - Ólafur Grímur Björnsson ræðir við Stefán Olsen kyndara Hér lýkur afar athyglisverðu viðtali Ólafs Gríms við Stefán Olsen. Ólafi Grími þökkum við kærlega fyrir að leyfa lesendum Víkings að njóta frásagnarinnar. Skipstjórinn yfirgaf aldrei skipið Sigurð sá ég fyrst, eftir að ég var kom- inn á flekann. Hann stóð þarna úti á brúarvængnum stjórnborðsmegin, róleg- ur eins og hetja og horfði á allt, sem gerðist. Hann stóð, þar til að hann flaut uppi og allt var komið í kaf. Hann hefur farið á kaf, en flotið upp, og þá er þessi fleki við frammastrið nærri honum, og hann gat synt til hans. Sigurður var flug- syndur. Við Hermann sáum aldrei þennan björgunarbát. Fólkið í sjónum var komið fjær, þar sáum við marga, og þá kom fylgdarskipið og henti djúpsprengjum, og þá tókum við eftir því, að það stór- fækkaði í hópnum. Þeir hafa ábyggilega drepið þarna fleiri manns. Í stað þess að snúa sér að því að bjarga fókinu – þeir hefðu átt sjens á að bjarga mörgum – keyrðu þeir bara um og hentu sprengj- um. Það komst ekkert annað að en að eyðileggja kafbátinn. Þetta er fólkið, sem var í kringum björgunarbátinn, og það bjargaðist ekkert af því. - Hann hélt, að hann væri sloppinn? Já, það héldu víst allir, að við værum sloppin. Maður hélt það, skipið var kom- ið alveg upp að landi. Ég heyrði talað um, að hann hefði ekki átt að gera þetta og hitt. Hann hefði ekki átt að stoppa þarna. Og úr því að hann stoppaði, þá hefði hann á eftir átt að fara beint inn til Keflavíkur. Svona heyrði maður talað. - Aðeins nánar um það þegar þið sigld- uð fyrir Reykjanesskagann. Siglingaleiðin meðfram Reykjanes- skaga er hérna. Hann siglir um  sjómíl- ur frá landi yfirleitt. En það eru flúðir út af Garðskaga, sem alltaf brýtur á, einnig á flóði. Nálægt þeim er ekki siglt. Þegar hann er kominn vel fyrir Garðskagann, tekur hann stefnuna beint á Reykjavík, en í þetta sinn beygir hann þá meira inn fyrir til þess að bjarga mannskapnum í bátnum. Við sáum vel húsin í landi af flekanum. Flekann rak út flóann, lík- legast í norðvestur. Á honum erum við útaf Garði. Olíudallurinn hét Shirvan. Hann var utar, og það var eldur í hon- um. Hann var svona vel rúma sjómílu í burtu. Þetta var víst 6.000 tonna skip. Það var á okkar siglingaleið. Kafbátur- inn hefur séð okkur og fylgzt með okk- ur, þegar að við stoppuðum og tókum 6 – Sjómannablaðið Víkingur Goðafoss II við festar utan við Akraneshöfn; óvíst er, hvenær myndin var tekin. Fyrsta skip Eimskipafélagsins með þessu nafni var í eigu félagsins frá 1915–1916, en þá strandaði það við Straumnes norðan við Aðalvík og eyðilagðist. Goðafoss II var smíðaður 1921 í Danmörku. Hann var lítið stærri en Goðafoss I, en afl meiri. - Héraðsskjalasafn Akraness.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.