Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2009, Page 8

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2009, Page 8
mennina um borð. Hann leyfir okkur að taka þá um borð og skýtur svo allt niður. Þó veit maður ekki, hvernig hann hefur hugsað sér þetta. Það hefur kannski tekið hann tíma að komast í rétt sikti. - Þegar þið stoppið, sigldu þá hin skipin fram úr ykkur? Þau voru yfirleitt á undan okkur, lík- legast var ekkert á eftir okkur, við erum síðasta skipið af þessum  skipum. Þetta voru togarar, ekki tundurspillar eins og við fengum, þegar farið var yfir Atlants- hafið. Þessi fylgdarskip gengu 10–1 mílur. Goðafoss sekkur Við horfðum á skipið sökkva frá flek- anum, ég og Hermann Bæringsson, og við erum að segja, að þeir séu heppnir, að skipið stoppaði, hætti að síga, og við gizkuðum á, að skipið stæði þá upp á endann í botni. En svo þótti okkur það eiginlega ótrúlegt, og þá héldum við, að það væri svona mikið loft í honum að framan, því lúkarinn var tómur, sko, það gæti verið, að það héldi honum uppi. Hann stoppaði þannig, að frammastrið var svona rúmar tvær mannhæðir eða  til 5 metra fyrir ofan sjávarflötinn. Og þá stóð hann næstum því lóðréttur, og mastrið var eiginlega alveg flatt. Og við Hermann erum einmitt að tala um það, hvort mastrið muni taka flekann með sér. Og svo þegar hann sekkur, þá fer hann allur fram á við, stefnið sekkur fram, sko! Ef skipið var ekki komið í botn að aftan, þá mátti búast við, að það hefði haldið áfram að síga aftur og niður. Lengdin á Goðafossi var um 7 metr- ar, og dýptarlínur sýna mest 0 til 50 metra sjávardýpi þarna í Faxaflóanum, og dýpið gæti hafa verið aðeins 0 til 0 metrar. - Hvaða fyrirmæli heldur þú, að fylgd- arskipin hafi haft? Það skilur maður ekki, að þau skyldu ekki hafa haft fyrirmæli um að bjarga mannskapnum. Þau hafa haft fyrirmæli um að elta kafbátinn, það er gefið mál. Fylgdarskipið kemur þarna inn í kösina, þar sem allt er á floti, bæði flekar og mannskapurinn í sjónum, þarna kemur það og hendir sprengjum í kösina. Eftir það hurfu margir. - Var fólkið, sem var í kringum björg- unarbátinn? Já. - Var mikið sog, þegar að skipið fór niður? Það hefur ekki verið mikið, og það voru engir í sjónum í kringum stefnið, þegar það sökk, bara flekinn, sem við höfðum áhyggjur af. Fólkið, sem var í sjónum, var komið utar, undan vindin- um og öllu saman. Vindurinn stóð út flóann, svo fólkið fjarlægist skipið, eftir að það var komið í sjóinn. Auk þess var skipið komið upp í 8 mílna ferð, þegar það fékk skotið og heldur eitthvað áfram að skríða eftir það. Þarna voru fleiri manns á floti, og Bretarnir hefðu hæg- lega getað bjargað því í staðinn fyrir að sprengja það upp ... og drepa fólkið. Og eftir þetta komu flugvélar, en þær flugu utar og vörpuðu ekki sprengjum nærri okkur. - Ykkur á flekunum var bjargað tveimur til þremur tímum seinna. Okkur var bjargað um fjögur leytið í þetta herskip. Þegar við vorum komnir um borð í björgunarskipið, þá var Sig- urður sleginn að sjá. Hann var ekki eins upplitsdjarfur eins og hann var venju- lega. Hann hafði áttað sig á því, að það vantaði marga. Þetta fékk á hann. Við fengum allir klæðnað í björgunarskipinu, önnur föt, en hann vildi þau ekki. Hann sagðist vera í íslenzkum ullarfötum, og þau myndu þorna. Ég talaði aldrei við hann. Við fengum allir rommsjúss, sem vildum. En enga skýringu fengum við á því, af hverju þeir björguðu okkur ekki Þorbjörg Sturlaugsdóttir með son sinn Stefán í garðinum á Hringbraut 82 í Reykjavík. Móðir Þor- bjargar bjó á nr. 82, en við hliðina, á nr. 84, bjuggu þau Þorbjörg og Stefán. Stefán yngri er elzta barn þeirra hjóna. Brezka olíuskipið S S Shirvan við akkeri í Halifax, Nova Scotia, Kanada. Myndin var tekin 4. október 1943. - National Maritime Museum, Greenwich, London. 8 – Sjómannablaðið Víkingur Fritz Hein, kafbátsforingi U-300, Oberleutnant zur Zee. Fritz Hein fórst með kafbáti sínum 22. febrúar 1945 vestan við Cadiz í Frakklandi. Flestir í áhöfn bátsins björguðust.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.