Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2009, Side 12

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2009, Side 12
Sigurður Guðmundsson, háseti, Árni Jóhannsson, kyndari, Stefán Olsen, kyndari. Loftur Jóhannsson, kyndari, var einnig í áhöfninni, en hann lá á sjúkra- húsi í Halifax og fór ekki til baka þessa örlagaríku ferð. Loftur hafði veikzt af botnlangabólgu á leiðinni út og verið fluttur yfir í spítalaskip skipalestarinnar, þar sem hann gekkst undir skurðaðgerð. Var það 8 dögum, áður en komið var með hann til Halifax í Kanada. Gröftur komst í sárið, og hann varð að dvelja þar í 5 vikur, áður en hann var útskrifaður (fór heim með Fjallfossi, sem var í klöss- un). Þetta var önnur ferð Lofts með Goðafossi. Í þeirri fyrstu var myndin af þeim fé- lögum tekin á Empire State byggingunni, sem birtist í síðustu grein. Loftur var bróðir Árna Jóhannssonar, sem einnig var kyndari á Goðafossi og var með skip- inu, þegar það fórst. Árni var staddur niðri í matsal, þegar sprengingin varð. Hann varð að ganga upp stiga með sjó- inn fossandi á móti sér, en hann komst upp, gat synt frá skipinu og bjargaðist á fleka eins og sagt er frá í viðtalinu. Dráttarbáturinn Empire Wold fórst með allri áhöfn 10. eða 11. nóvember 19. Ekki er vitað, hve margir voru þá í áhöfn bátsins, en kunnugt er um nöfn eftirfarandi 7 skipverja, sem fórust: Henry S. Clark, kyndari, Frank R. Hack- ney, háseti, Tom Moody, háseti, David J. Morris, lieutenant, William F. Mudd, kyndari, Herbert R. Steele, signalmaður og William Wiggins, háseti. Talið er líklegt, að fleiri hafi verið á bátnum en þessir 7. http://naval-history.net/xDK- Cas19-11NOV.htm Viðtalið við Stefán Olsen, kyndara, sem hér birtist, var tekið í september 1995. Stefán vildi, að sögurnar, sem hann hafði svo oft sagt, varðveittust og minningin um þá, sem hann hafði verið með til sjós. Hann taldi sig hafa verið heppinn, já, heppinn, að það var á há- flóði, þegar karlinn sigldi Svölunni í ófært Lambhúsasund á Akranesi, og bát- urinn kastaðist svo ofarlega í brim-garð- inn, að þegar fjaraði undan þeim um nóttina, gátu þeir vaðið í land. Heppinn að sofa aftur í á togaranum Braga, þegar hann lá á ytri höfninni í Fleetwood hlaðinn fiski og beið eftir löndun og sofa laust, spretta strax fram úr, án þess að hugsa sig um, og ganga þurrum fótum upp á kjöl, þegar afturparti skipsins hvolfdi. Hann var þá þakklátur útgerð- inni fyrir að borga fötin, sem hann tapaði og sængina líka. En var það manndráp af gáleysi að sigla .5 tonna skipi á 17 mílna ferð ljóslaust um hánótt upp við strönd, vitandi ekkert, hvert var verið að fara og keyra niður togara, sem beið þar löndunar og drepa 10 manns? Engum sögum fer hér af því, hvernig brezkt rétt- arfar tók á því máli. Hann var heppinn að skeppa upp úr vélarrúminu á Goða- fossi og út á dekkið, rétt áður en tundur- skeytið hæfði skipið og bjarga sér á fleka, áður en vopnað fylgdarskip kom og varpaði djúpsprengjum, sem drap alla, sem þá voru enn í sjónum. Þetta var á stríðstímum, og flest hefur verið rétt- lætt af því, sem sigurvegararnir gerðu. Hann sagðist hafa verið heppinn með yfirmenn, honum líkaði húmorinn þeirra, sjómannahúmor stýrimannanna Jónasar Böðvarssonar og Óskars Sigur- geirssonar, sem seinna urðu þekktir skip- stjórar hjá Eimskip og hann mat báða mikils þótt ólíkir væru. Sama gilti um vélstjórana, sem Stefán hafði eðlilega meira af að segja, þá Hafliða Jónsson, Hafliða Hafliðason, Eyjólf Júlíus Einars- son. Sjómennskan er hættulegt starf, og út yfir tók á stríðsárunum seinni. Því kynntist Stefán, hann sigldi öll stríðsárin. Að viðtalinu loknu varð skrásetjara ljóst, að hann hafði talað við alþýðuhetju eins og þær gerast beztar. Stefán Olsen lézt 11. ágúst 1997. 1 – Sjómannablaðið Víkingur Alhliða þjónusta við sjávarútveginn YANMAR báta- og skipavélar hafa í gegn um árin verið rómaðar fyrir mikla endingu, hagkvæmni í rekstri og ekki síst hversu hljóðlátar þær eru. YANMAR er einn öflugasti vélaframleiðandi í heims í dag með vélaúrval frá 9 til 4500 hestöfl. Marás Vélar ehf. Akralind 2 - 201 Kópavogur S: 555 6444 - F: 565 7230 www.maras.is NorSap brúarstóla má finna víða í Íslenska flotanum enda sérstaklega hannaðir í samráði við óskir sjómanna. Rafmagnsstjórntæki í skip og báta hafa átt vaxandi vinsældum að fagna á síðustu árum. Marás er með mikla reynslu af uppsetningu á slíkum búnaði frá ZF Marine í Bandaríkjunum. Alhliða þjónusta við sjávarútveginn

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.