Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2009, Blaðsíða 22

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2009, Blaðsíða 22
 – Sjómannablaðið Víkingur vorum tveir við hana. Þegar ég hófst handa við að setja út í kortið snaraðist . stýrimaður inn úr dyrunum á kortaklefa- num og kom beint að kortinu til að fylg- jast með útsetningunni. Hann hafði verið í fastasvefni þegar bjöllurnar gullu. Nú var fullskipað lið í brúnni samkvæmt því skipulagi sem unnið var eftir í aðför að skipum. Í aðför að meintum landhelgisbrjótum var oft miðað við að hafa 6 mín. þ.e. 1/10 úr klst. milli staðarákvarðana til þæginda við hraðaútreikning. Yfirstýri- maður mældi, II stýrimaður fylgdist með og staðfesti að rétt væri mælt, en III. stýrimaður skráði tímann og mælingar- nar niður og setti út í kortið. Skipherr- ann var þá tekinn við stjórn skipsins og fylgdist jafnframt með í kortinu eftir því sem staðsetningarnar birtust hver af annarri. Á milli mælinga fóru svo stýri- mennirnir fram í brú til að reyna að sjá skipið sem fyrst því mjög áríðandi var að sjá hvort það snéri með skut, stefni, til stb. eða bb. frá varðskipinu séð, hvort það hefði uppi ljós- eða dagbendingar sem segðu til um hvað það væri að gera og hvort veiðarfæri sæust í sjó. Allt var þetta skráð og tímasett um leið og tveir eða fleiri gátu staðfest að þeir sæju það sama. Á sama tíma og allt þetta gekk fyrir sig í brúnni voru tveir hásetar að paufast í myrkrinu fram á fallbyssupall- inum þar sem þeir voru að taka yfir- breiðsluna af byssunni og koma fyrir kassa af skotfærum. Aftur á bátadekki voru aðrir hásetar að gera Zodiacbát klárann til að fara á yfir í togarann þegar þar að kæmi og í talkerfinu heyrðist í hásetum sem voru að gera klára bauju til að setja út í kjölfar togarans, þegar komið yrði að honum, þannig að mæla mætti staðinn upp betur ef þörf krefði. Loftskeytamaðurinn var kominn að sínum tækjum tilbúinn að hafa samband við togarann, stjórnstöð eða herskip eftir atvikum, en þau voru enn á vakt við Ís- landsstrendur þótt 1 sml. þorskastríð- inu væri lokið. Yfirvélstjóri var tekinn við yfirumsjón með vélstjórninni. . vél- stjóri gerði sig klárann til að fara yfir í togarann ásamt smyrjara til að keyra vélar ef togaramenn myndu stræka og brytinn var kominn í eldhúsið til að taka til nesti fyrir þá sem myndu fara yfir í togarann og sigla honum í land. Varðskipsmenn máttu ekki þiggja veit- ingar af torgaramönnum eftir handtöku vegna hættu á að þeim væri byrluð ólyfjan. Þeir urðu að vera sjálfum sér nógir með allt. Þetta kvöld gekk allt fyrir sig sam- kvæmt venju, mælingarnar voru gerðar reglulega hver af annarri og fljótlega sáust ljósin á skipunum sem voru að veiðum út af Barðanum, sem er á milli Dýrafjarðar og Önundarfjarðar. Kl. :1 mældist enn einn togari, sem fékk mæl- ingarnúmerið IV í r.v. 59° og 10 sml. fjarlægð og samtímis var fjarlægðin í Fjallaskaga mæld 10.55 sml. og í Kóp 9. sml. Var hann afgerandi lengst innan við 1 mílna mörkin og var aðförinni nú beint að honum einum. Dómsreynsla var komin fyrir því að hæpið var að taka fleiri en einn togara, þótt fleiri væru fyrir innan línu, því dómarar litu svo á að í hvert sinn sem athyglin beindist frá einu skipi yfir á annað, þá rofni eftirförin, en það mátti hún alls ekki gera. Frá því að skip uppgötvast innan landhelginnar og þar til búið er að „taka það höndum“ má eftirförin aldrei rofna. Kl. : þegar um 9 sml. voru í skip IV var byrjað að morsa á það með ljós- kastara stafinn „K“ sem þýðir „stöðvið tafarlaust“. Haldið var áfram að mæla stað skipanna kl. :7, :5, 00:06 og 00:1, auk þess sem á milli mælinga var sent „K“ merkið viðstöðulaust á skipið. Kl. :5 sást að togarinn var með log- andi rauða togljósið og voru þá 7 sml. í togarann. Þessi atriði, ljósmorsið og hvenær við sáum togljósið á togaranum, áttu eftir að setja mark sitt á réttarhöldin sem framundan voru, en þau urðu bæði löng og erfið þar sem mörgum álitamál- um var velt upp. Kl. 00:1 stöðvaði skip- herrann á Óðni varðskipið við hlið tog- arans sem reyndist bera nafn eiginmanns hennar hátignar Elísabetar drottningar, „Prince Philip FD 00“. Var þessi nafni Óðinn á Önundarfirði 1963. - Mynd: Helgi Hallvarðsson. Breskir togarakarlar taka lífinu með ró. Myndin er tekin í miðju 12 sjómílna stríðinu. Hinn 1. september 1958 tóku gildi lög um útfærsluna í 12 mílur en þessu fyrsta þorskastríði lauk hinn 27. febrúar 1961 þegar Alþingi Íslendinga féllst á samkomulag við Breta. Ægir er í baksýn. - Mynd: Sigurður Lýðsson.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.