Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2009, Blaðsíða 23

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2009, Blaðsíða 23
Sjómannablaðið Víkingur –  drottningarmannsins að toga með stjórn- borðs vörpu í sjó og kominn rétt út fyrir 1 sml. mörkin þegar við komum að. Hann þráaðist við í byrjun að stöðva og hélt áfram að toga til kl. 00:1 en þá var slegið úr blökkinni og byrjað að hífa inn trollið. Farið um borð Þegar hér var komið sögu var Zodiac- báturinn kominn á flot við bakborðs- síðuna á Óðni og sagði skipherra mér nú að fara niður og gera mig klárann að fara yfir í togarann með tveim hásetum og sækja skipstjórann, en koma við uppi í brú áður. Snaraðist ég með það sama niður í káetu og vippaði mér í föður- landsbrækur sem ég hafði tröllatrú á ef ég dytti í sjóinn, þykka peysu og tók með mér góða úlpu og fór svo upp í brú. Þegar þangað var komið rétti skipherr- ann mér 8 Cal. Colt skammbyssuna (eina af þeim sem hann geymdi sjálfur) ásamt tilheyrandi belti og pakka af skot- um. Byrjaði ég á því að gyrða mig belt- inu, tók síðan skammbyssuna, sem er með sex skota tromlu og stakk 5 skotum í hana en skildi fyrsta gatið sem kæmi í skotstöðu viljandi eftir tómt, en það var öryggisráðstöfun sem við gerðum þannig að engin hætta væri á að maður skyti úr byssunni nema að mjög yfirveguðu ráði. Með þessu var tryggt að ef haninn yrði spenntur færi tóma gatið fyrst í skot- stöðu, en ef skjóta ætti með því að taka bara í gikkinn varð að gera það tvisvar í fyrsta skiptið. Það sem var e.t.v. merki- legast við þennan vopnaburð var að það voru yfirleitt III stýrimenn sem voru látnir fara vopnaðir yfir í togara án nokk- urrar þjálfunar í meðhöndlun skamm- byssu, sú þjálfun var ekki veitt fyrr en í „Lordinum“. Eldri stýrimenn „með Lord- inn“ voru reyndar búnir að leiðbeina manni stuttlega hvernig ætti að með- höndla hana, maður vissi að byssuna ætti aðeins að nota í nauðvörn og þá til að skjóta beint á þann sem ógnar lífi mans. En nú var ég klár til að fara yfir og fór því rakleitt niður í Zodiacinn. Við vorum fjórir sem fórum yfir í tog- arann, sem var enn að hífa vörpuna. Um leið og Zodiacinn sveigði frá varðskipinu fann maður þessa einsemdartilfinningu sem sækir að á svona litlu horni út í ballarhafi með stefnuna beint til skips þar sem maður veit fyrirfram að maður er óvelkominn. Við fórum aftur fyrir togarann, vel laust af honum til að vera örygglega fríir af togvírunum og rennd- um svo fram með bakborðs síðunni á honum. Enginn var til að taka á móti þannig að nú varð að komast hjálpar- laust um borð. Listin fólst í því að renna að síðu togarans á öldu þannig að maður næði stökki inn fyrir borðstokkinn með fangalínu bátsins í kjaftinum. Þá var eft- irleikurinn léttur og gekk þetta eins og í sögu, enda veður ágætt. Við vorum þrír komnir um borð í togarann áður en hendi væri veifað og tókum strikið upp í brú þar sem rannsóknar var ekki þörf á dekki en varpan var að koma úr sjó. Enginn togarasjómaður var sýnilegur, allir að sinna trollinu. Þegar í brúna kom sá ég strax hvar skipstjórinn stóð við stjórnborðs brúar- gluggann og fylgdist með störfum sinna manna á dekkinu. Byrjaði ég á að heilsa og kynna mig sem og strákana sem voru með mér og tók annar þeirra sér stöðu bakborðs megin í brúnni en hinn mið- svæðis. Tjáði ég skipstjóranum að hann væri „handtekinn“ grunaður um að hafa verið að veiðum innan 1. sml. mörkin og sagðist ég vera kominn til að bjóða honum að koma yfir í Óðinn til að fara yfir okkar athuganir. Í fyrstu virtist hann ekki ætla að virða mig viðlits en þegar ég sagði honum að hann yrði hvort eð er að fylgja varðskipinu til hafnar varð hann allt í einu samvinnuþýður og samþykkti að koma með okkur yfir í Óðinn. Tók hann til skipspappírana, fól stýrimanni sínum stjórnina um borð og kom í Zodiacinn, sem enn dólaði við hlið tog- arans. Skildi ég hásetana tvo eftir um borð í togaranum. Þegar við komum um borð í Óðinn var skipstjóranum sýndar allar athuganir sem við gerðum á skipi hans og farið yfir tímasetningar á öðrum atburðum aðfararinnar. Fékk hann tæki- færi til að koma með athugasemdir ef einhverjar væru sem hann gerði ekki. Var honum nú sagt að farið yrði með hann til Ísafjarðar þar sem mál hans yrði tekið fyrir og var mér sagt að fara aftur með skipstjórann um borð í skip sitt og fara síðan með togaranum inn til Ísa- fjarðar. Eftir að búið var að búlka veiðarfæri togarans og búið að taka Zodi- acinn um borð í Óðinn var svo haldið af stað inn til Ísafjarðar. Var það tíðindalaus sigling og komið snemma um morgun- inn til Ísafjarðar þar sem togaranum var lagt utaná varðskipið við hafskipabryggj- una úti á Tanganum. Framundan voru löng og ströng rétt- arhöld, skyndilegur björgunarleiðangur með innsigluð siglingatæki og verjanda og saksóknara um borð, allt vegna réttar- hagsmuna, en frá því verður sagt í fram- haldsgrein í næsta blaði. Herskipin fóru ekki heim þótt 12 mílna þorskastríðinu lyki heldur dóluðu eitthvað áfram við Íslandsstrendur. Myndin er raunar tekin miklu síðar eða í 200 sjómílna deilunni af F-69 Bacchante og togaranum Artic Vandal. - Mynd: Jón Páll Ásgeirsson.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.