Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2009, Page 29
löppina, vaggaði skottinu ofurlítið og hjó
síðan trýininu ofan í ána.
Ja hérna hér, það eru þó undarlegar
aðfarir við að fá sér vatn að drekka, sagði
ég upphátt við sjálfan mig því enginn var
að hlusta.
Nokkur kuldaleg hross stóðu í höm
neðar við ána og hvutti virtist ekki hafa
nokkurn tíma til að hlusta á mig.
Nú hjó hann trýninu aftur í ána og
síðan einu sinni enn.
Loksins kviknaði á perunni hjá mér.
Ég sá glampa á lítið hornsíli í straumn-
um og fylgdist með spennunni hlaðast
upp í hundinum þegar það barst nær
bakkanum. Á hárréttu augnabliki sökkti
hundurinn kjaftinum leiftursnöggt í ána,
lyfti upp höfðinu kjamsandi á góðgætinu
og vatnið flóði út um munnvikin. Mér
sýndist hann brosa.
Ég kallaði á veiðifélaga minn, sagði að
hann yrði að koma og sjá þetta.
Hvutta virtist alls ekki illa við að fá
óskipta athygli okkar beggja. Hann
minnti helst á veiðimann sem sperrist
allur upp þegar fólk drífur að til að
fylgjast með honum landa stórlaxi. Það
bar ekki á öðru en að rakkinn væri
dálítið grobbinn yfir fengsæld sinni.
Þetta er nú meiri sílahundurinn, sagði
félaginn.
Já, það er furðulegt þetta veiðieðli,
svaraði ég og virti fyrir mér hundinn sem
hafði nú komið auga á hornsílatorfu því
hann hamaðist með höfuðið hálft í vatn-
inu svo gusurnar stóðu í allar áttir.
Og þá varð mér hugsað til minksins
í hænsnakofanum, barnanna á bryggjun-
um og heimiliskattanna sem fara
pakksaddir út að drepa mýs, já og
kannski síðast en ekki síst varð mér
hugsað til veiðimannanna sem híma úti í
nístandi norðanáttinni til að veiða fiska,
jafnvel þótt öll fiskborð í búðum bæjar-
ins séu yfirfull af glænýjum fiski á hag-
stæðu verði.
Veiðieðlið lætur ekki að sér hæða.
Veiðifélaginn hvutti heggur hausnum í vatnið.
Til félagsmanna FS
Upp hefur komið sú hugmynd að efna til golfmóts meðal félagsmanna FS á sumri
komanda. Áhugi á golfíþróttinni hefur almennt farið vaxandi, ekki síst meðal sjómanna. Með
þessari auglýsingu er ætlunin að kanna áhuga félagsmanna á að taka þátt í móti þar sem þátt-
taka væri bundin við félagsmenn og fjölskyldur þeirra. Stefnt yrði að því að fá inni á góðum
golfvelli og síðan gefið út með góðum fyrirvara hvar og hvænær mótið yrði haldið.
Þeir sem áhuga hafa eru beðnir að senda e mail á netfangið ab@skipstjorn.is eða
hringja í síma 520 1284. Ef næg þátttaka fæst verður hafist handa við að koma þessu á
koppinn og menn upplýstir um leið og fyrir lægi hvar og hvenær þessi
merkisatburður ætti sér stað.
Sjómannablaðið Víkingur – 29