Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2009, Side 31

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2009, Side 31
Sjómannablaðið Víkingur – 31 gerðir ekki draga úr þessum kostnaði til að lenda ekki í vand- ræðum í framtíðinni. Stærstur allra Líberíufáni er nú orðinn stærsti skráningafáni heims en nú nýlega náði tala skipa undir þeim fána 3.000 þegar gríska aframax tankskipið (tankskip á bilinu 80 til 120 þúsund tonn) Ise Princess var skráð þar. Líberíufáninn er ekki gamall skrán- ingafáni fyrir skip en það var árið 1949 sem fyrsta skipið, World Peace, var skráð undir þessum fána og kom honum þar með á kortið sem áhugaverðum siglingafána. Í mörg ár var þessi skráningafáni ekki vel liðinn en á því hefur heldur betur orðið breyting sem sjá má á því að fyrstu þrjá mánuði ársins 2009 voru 110 skip skráð þar. Líberíufáninn er vinsælasti skráninga- fáni grískra útgerðar, fyrir utan þann gríska, en yfir 600 skip Grikkja eru þar skráð. Mistökin dýr Formaður Liberian Shipowners Council (útgerðarmanna- samtök Líberíu), Joe Ludwiczak, vakti nýlega athygli á því að kostnaður vegna slysa sem mætti rekja til mannlegra mistaka kostaði skipaiðnaðinn eina milljón dollara á dag. Sagði hann að í nýlegri rannsókn hefði komið fram að helstu ástæður eldsvoða og sprenginga um borð í tankskipum síðustu tvo áratugina mætti rekja til þess að ekki væri farið að þeim stöðluðu leið- beiningum og vinnureglum sem settar höfðu verið. Benti hann á að nú yrði atvinnuvegurinn að fara út á sömu braut og flugið hvað varðar þjálfun á mannlegum þáttum til að tryggja öryggið. Flugfélög hefðu lagt ríka áherslu á að koma í veg fyrir streitu, þreytu, vinnuálag, lélega ákvörðunartöku, léleg samskipti milli starfsmanna og tilslökun á vinnureglum hjá áhöfnum sínum. Slíku yrði einnig að koma á í skipaheiminum. Enn af Coral Sea Í síðustu blöðum hefur verið sagt frá þeirri skelfilegu með- ferð sem skipstjóri, yfirstýrimaður og bátsmaður kæliskipsins Coral Sea fengu eftir að eiturlyf fundust í farmi skips þeirra. Í janúar sl. lést yfirstýrimaður skipsins Konstantin Metelev á sjúkrahúsi í heimabæ sínum Klaipeda í Litháen sem var af- leiðing af handtöku hans og skipsfélaga hans. Meðan hann sat saklaus í fangelsi fór hann í hungurverkfall auk þess sem hann varð fyrir bæði andlegu og líkamlegu áfalli í kjölfarið. Var hann lagður inn á fangelsissjúkrahús í Grikklandi en eftir að dóm- urinn sýknaði hann og félaga hans var hann fluttur á sjúkrahús í Klaipeda til að hann gæti verið hjá ættingjum sínum. Hann átti aldrei afturkvæmt út af sjúkrahúsi. ITF hefur lýst því yfir að Metelev sé enn eitt fórnarlamb illrar meðferðar á sjómönn- um. Fleiri handtökur Það eru fleiri en skipverjar Coral Sea sem hafa lent í hand- tökum og verið ákærðir fyrir smygl á eiturlyfjum sem þeir höfðu enga hugmynd um að væru um borð í skipi þeirra. Nú átján mánuðum eftir að eiturlyf fundust fest utan á botn búlk- skipsins B Atlantic, sem er í ítalskri eigu, eru skipstjóri og yfirstýrimaður skipsins enn í haldi í Venezuela. Volodymyr Ustymenko og Yuri Datchenko voru handteknir eftir að 128 kg af kókaíni fundust 10 metrum undir sjólínu skipsins þar sem það lá í höfninni í Lake Maracaibo. Ustymenko skipstjóri lýsti því yfir að þeir væru með öllu saklausir enda væri þeim ógjörningur að komast þá 10 metra undir sjólínu og það aftur við skrúfu skipsins til að koma eiturlyfjunum þar fyrir. Nú hafa tveir yfirmenn til viðbótar verið handteknir þar í landi fyrir sömu sakir en það eru Grikkirnir Georgios Koutikas skipstjóri og Athanasios Ntoustasias yfirstýrimaður tankskipsins Astro Saturn en á botni þess skips fundust 98 kg af kókaíni og 2 kg af heróíni. Samkvæmt sérfræðingum er talið að skipverj- arnir séu leiksoppar pólitískra deilna milli forseta Venezuela, Hugo Chavez, og pólitískra andstæðinga í Bandaríkjunum. Stjórnvöld í Venezuela séu með þessu að sýna fram á að þeir séu að „gera eitthvað“ til að stemma stigu við eiturlyfjasmygli. Ótrúleg niðurstaða Menn eru í áfalli eftir úrskurð Mannréttindadómstóls Evrópu í máli skipstjórans á olíuskipinu Prestige, Apostolos Mangou- ras, en honum var haldið í fangelsi í 83 daga árið 2002 eftir að skip hans sökk undan ströndum Spánar. Mikið hefur verið fjall- að um þetta mál hér fyrr í blaðinu en Prestige brotnaði í tvennt og sökk í óveðri eftir að skipstjóranum hafði verið neitað um að leita neyðarhafnar á Spáni. Þrátt fyrir margra daga þraut- seigju við að freista þessa að bjarga skipi sínu sem og að takast að bjarga öllum skipverjum var Mangouras fangelsaður um leið og hann steig út úr björgunarþyrlu sem kom með hann að landi. Fékkst hann leystur úr fangelsi gegn 3 milljón evra trygg- ingu. Málið var kært til Mannréttindadómstólsins sem í janúar sl. úrskurðaði á þann veg að frelsissviptingin og tryggingin hefði ekki verið nægjanlega mikil í ljósi mengunarafleiðinga slyssins. Talsmaður Greek Shipping Co-operation Committee (GSCC) lét hafa eftir sér að mannréttindi sjómanna væru fótum troðin. Stjórnmálamenn væru fljótir að grípa gæsina og taka þátt í leiknum ef þeir teldu sig geta aukið hylli sína með því að kasta skít í sjómenn. Það væri skiljanlegt að sjómenn væru hafðir í haldi þegar sjóræningjar ráðast um borð í skip þeirra en þegar Evrópuríki gera slíkt með blessun Mannréttindadómstólsins þá væri það með öllu ólíðandi og til skammar. Hebei Spirit Í síðasta blaði sagði ég frá fangelsun skipstjóra og yfirstýri- manns á Hebei Spirit eftir að kranaprammi rakst á skip þeirra þar sem þeir lágu til akkeris í Suður Kóreu. Síðan þá hafa þeir verið leystir úr haldi gegn tryggingu upp á 10.000 dollar hvor. Búið var að blása til mótmæla í London af hálfu stéttarfélaga, samtaka flutningsaðila og útgerðar skipsins þegar dómstólar ákváðu að sleppa þeim lausum gegn tryggingu meðan málið væri skoðað enn á ný. Undirréttur hafði sýknað báða skiptjórn- armennina en hæstiréttur dæmdi þá seka. Dómurinn hefur nú verið tekinn til endurskoðunar og var þar af leiðandi hætt við mótmælin sem fyrirhuguð höfðu verið. Jasprit Chawla skip- stjóri og Syam Chetan yfirstýrimaður, sem hafa verið í Kóreu í meira en 400 daga, sögðu það vera mikla huggun fyrir þá hversu mikla vinnu siglingaheimurinn hefði lagt á sig til að fá þá lausa úr haldi og ná fram réttindum þeirra. Vildu þeir jafn- framt koma á framfæri þakklæti til allra þeirra sem hafa unnið

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.