Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2009, Page 32

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2009, Page 32
32 – Sjómannablaðið Víkingur þrotlaust starf í þeirra þágu og líta til þess með væntingum að fá að snúa aftur heim til fjölskyldna og ættingja sinna. Inter- national Chamber of Shipping og International Shipping Feder- ation gáfu út sameiginlega yfirlýsingu þar sem lýst var þeirri von að í ljósi gagna í þessu máli tæki hæstiréttur rétt á málum sjómannanna sem voru sýknaðir í undirrétti. Stutt ending Það er alltaf spennandi að fá ný skip afhent og þeir hafa sannarlega verið kátir Norðmennirnir sem stóðu um miðjan mars mánuð í skipasmíðastöðinni Samjin Shipbuilding Indus- tries Co í Weihai í Kína þegar nýja bílaskipið þeirra fékk nafnið Dyvi Pacific. Rúmri viku síðar átti sú gleði eftir að hverfa eins og dögg fyrir sólu. Þann 29. mars sl., þegar verið var að færa skipið til í ánni þar sem smíði þess fór fram áður en prufu- siglingar áttu að hefjast, rakst skipið á klett í ánni með þeim afleiðingum að leki kom að því. Var þegar farið með skipið að bryggju en þar lagðist það á hliðina. Engan sakaði í óhappinu. Skipið var það fyrsta af þremur 6.500 eininga bílaskipum sem verið var að smíða fyrir Fleischer & Co A/S í Osló og áttu að fara í siglingar fyrir Høegh Autoliners. Búið er að dæma skipið ónýtt en ekki mun þetta óhapp hafa áhrif á markað fyrir bíla- skip þar sem mörg liggja eða hafa verið seld til niðurrifs. Engu að síður sjá menn að 80 milljónir dollara hafa runnið út í sand- inn. Dyvi Pacifi c á hliðinni efi r að hafa tekið niðri skömmu áður en fara átti í prufu- siglingu. Syam Chetan yfi rstýrimaður og Jasprit Chawla skipstjóri (th) ásamt eigin- konum sínum eftir að þeir voru leystir úr haldi gegn tryggingu. Ögun skólabarna Skólakennari nokkur þýskur á 18. öld getur þess – sjálfum sér til hróss og öðrum til góðs eftirdæmis og fyrirmyndar – hverjum refsingum hann hafi beitt börnin til lífernisbetrunar. Hann hafði verið kennari í 52 ár og skrifað hjá sér daglega afrek sín í þessu efni; um leið og hann svo lítur yfir ævistarfið, leggur hann þau saman og er þá skráin svona: 11.527 stafshögg, 124.010 vandarhögg, 1.6755 handskellir, 10.235 kjafts- högg, 7.905 löðrungar, 111.800 kollbeygjur, 777 kropningar á baunum, 613 kropningar á þrístrendri spýtu, 3.001 asnaburður – nú verð ég að spyrja, veit einhver lesandi hvað hér er átt við, kollbeygjur, kroppningar og asnaburður? Ennfremur notaði hann um 3.000 skammaryrði til frekari áréttingar „ ... og þriðjunginn af þeim smíðaði ég sjálfur,“ stærði hann sig af. Sigurjón Bergvinsson Gátan Þó að ég sé mögur og mjó margra næ ég hylli, ég í skógi eitt sinn bjó aldintrjánna milli. Svo var ég í fjötur færð felld að höfði gríma, inn í búri bundin særð, beið svo langa tíma. Nístir mig þín harða hönd, húmið gín mér nauða; lifna ég er leysist önd, ljós þitt verð í dauða. Sjá svarið í Röddum af sjónum. Þar er líka eilítið um Sigurjón.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.