Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2009, Side 46
46 – Sjómannablaðið Víkingur
Ég ætla ekki að draga neina dul á að
ég hef alltaf verið ákaflega veikur
fyrir sushi og stæri mig af að hafa
borðað það bæði vestan hafs og austan.
Hvergi hef ég þó fengið betra sushi en í
Grófargili á Akureyri – talandi um að
leita langt yfir skammt. Í gilinu miðju
er veitingastaður sem býður upp á kjöt,
fisk og sushi.
Það fyrsta sem vekur athygli við stað-
inn er nafnið, RUB 23. Ég velti því fyrir
mér þegar ég geng inn – RUB, hvað
skyldi þetta RUB eiginlega vera?
„Því skal ég svara,“ segir annar aðal-
eigandi staðarins, Kristján Þórir
Kristjánsson – hinn er margverðlaunað-
ur Einar Geirsson, sem valinn var mat-
reiðslumaður ársins 2003 og í landsliði
matreiðslumeistara – í sama bili og ég
geng með honum inn í einkar notalegan,
lítinn sal. Á eina hönd er eldhúsið sem
blasir við gestum þar sem þeir sitja í
lágværum samræðum og njóta greinilega
þess sem upp á er boðið.
„RUB eru tilbúnar kryddblöndur sem
matargestirnir velja sjálfir og er nuddað
inn í kjöt eða fisk eftir því sem gesturinn
vill.“
– En ef maður þjáist af ákvörðunar-
fælni? vil ég fá að vita.
„Ekki málið,“ svarar Kristján. „Við
erum líka með á matseðlinum uppáhalds
samsetningar okkar kokkanna þannig að
þú þarft ekkert að óttast. Við erum líka
með barnamatseðla þannig að hér eiga
allir, ungir sem gamlir, að geta fundið
eitthvað við sitt hæfi.“
Ég lít á hann óttalaus. Ég er nefnilega
löngu búinn að ákveða að prófa uppá-
haldið mitt, hið japansk ættaða sushi.
Þegar það kemur á borðið rennur fljót-
lega upp fyrir mér þessi, að mér finnst,
furðulegi sannleikur – besta sushi í
heimi fæst nánast í bakgarðinum heima
hjá mér, á matsölustaðnum RUB 23.
Ég smjatta ákaft og hef svo orð á
þessu við Kristján. „Hefurðu komið
til Japans?“ spyr hann svo og glottir
skelmislega.
– Nei, viðurkenni ég.
„Jæja, en þakka þér samt fyrir. Sann-
leikurinn er sá að sjávarréttir eru okkar
sérgrein enda engin tilviljun að staðurinn
heitir fullu nafni RUB 23 UMI RESTAU-
RANT. Umi er sjór á japönsku.“
Ég ætla ekki að þreyta þig lesandi
góður á frekari lýsingum þeirra dýrðar-
rétta sem mér voru bornir en mikið yrði
ég undrandi ef þú færir svekktur af
RUB 23 þar sem sjón, lykt og bragð
renna saman í eina dýrðlega upplifun.
Bleikja og þorskhnakki
– Byrjum á forréttinum, segir Kristján,
þegar ég bið hann um uppskrift til að
heilla með konuna. Hann veit sem er að
matseldin verður að vera einföld.
Forrétturinn er bleikja tempura með
asískusalati og unagisósu. Miðum
skammtinn við fjóra.
300 gr bleikja
Tempura mix (Hagkaup)
RUB 23 er á tveimur hæðum,
þakið er yfir vinnuaðstöðu
kokkanna en undir svölunum
þar sem ljósmyndarinn stendur er
salurinn sem við Kristján gengum
fyrst inn í. - Finnbogi Marinósson
Í kjallaranum er þessi notalega koníaks-stofa þar sem litlir hópar geta fengið einkathvarf.
- Finnbogi Marinósson
[ RUB 23 ]