Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2009, Blaðsíða 6

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2009, Blaðsíða 6
Í júní 1939 kom fyrsta tölublað Víkingsins fyrir sjónir al- mennings. Ritstjóri var Bárður Jakobsson, hálfþrítugur laganemi úr Bolungarvík. Hann fylgdi blaðinu úr garði og sagði meðal annars: „Blað þetta, sem nú og framvegis mun bera nafnið „Víking- urinn“, er til orðið vegna sjómannastéttarinnar og fyrir hana. Það á að vera sá vettvangur, sem sjómennirnir sjálfir geta rætt sín áhugamál og fylgst með þeim, án alls ágreinings í stjórn- málum og dægurþrasi. En það fer auðvitað bezt á því að sjó- menn sjálfir ræði og riti um það, sem þeim er viðkomandi. Þeir hafa þekkingu og reynslu á sínum eigin málefnum og störfum. Þess vegna: Það er ekki nóg að blaðið komi út og að sjómenn kaupi það og lesi. Þeir verða sjálfir að skrifa það. Ella má búast við, að það missi marks að nokkru leyti.“ Í næsta tölublaði á eftir hafði nafninu verið breytt, úr Víkingurinn í Sjómannablaðið Víkingur og á fyrstu síðu þessa 2. - 3. tölublaðs stappaði Fr. Halldórsson stálinu í sjómenn: Komdu heill! Komdu „Víkingur“ heill! Þú átt trúnað og traust þeirra, er takmörkin velja sér há. — Láttu vakningar-rödd þína viðstöðulaust benda verkefnin framundan á. Hefðu raustina djarft yfir dægurþras allt, strjúktu draumhöfga af svefnþungri brá, vertu markviss í sókn, flyttu mál þeirra snjallt, er sem málsvara treysta þig á. Ekkert viðkvæmnishjal. Láttu að víkinga sið hljóma vígorð þín djarflega og hreint. Þú átt sókndjarft að baki þér sameinað lið ef þú sækir að markinu beint. Vertu hrópandans rödd, þar sem hálfvelgjan býr þar sem hikandi stefnan er sett — vertu í örðugri baráttu aflgjafi nýr hinni íslenzku sjómannastétt. Í þessu tölublaði sem flutti meðal annars smásögu eftir Rud- yard Kipling og fyrsta hluta framhaldssögunnar um Úlf Larsen eftir Jack London gat einnig að lesa tilkynningar til vélstjóra og loftskeytamanna. Við hættum nú að gefa vélstjóraritið út mánaðarlega, skrifaði Hallgrímur Jónsson, formaður Vélstjóra- félagsins. Ritið mun þó ekki alveg hverfa heldur koma út þegar aðstæður krefjast svo sem um áramót og í kjölfar aðalfunda félagsins. Við ætlum hins vegar, útskýrði formaðurinn, að einhenda okkur í það, vélstjórar, að styðja við bakið á hinu nýja sjó- mannablaði, þar munum við ekki láta okkur vanta. Halldór Jónsson skrifaði svipaða hvatningu til loftskeyta- manna: „Félag íslenzkra loftskeytamanna hefir gerzt aðili í út- gáfu sjómannablaðsins „Víkingur“, og er það í samræmi við stefnu félags vors, að styðja alla þá viðleitni, sem stefnir fram.“ Halldóri svall hugur í brjósti. Hið nýja tímarit var að rísa upp sem sameiningartákn sjómannastéttarinnar og Halldór hnýtti við: „Frá nafninu „Víkingur“ ymur hljómur um dáðríkar athafn- ir forfeðra vorra, en einnig í nútíð hefir nafnið fullt gildi, því að hin íslenzka sjómannastétt á marga víkinga. En víkingar mega ekki fara dreifðir, því að þá er ósigur vís í hverri baráttu. Sjó- mannablaðið „Víkingur“ á að vera það merki, sem sjómenn geta fylkt sér um og fylgt til sigurs.“ Í þessum anda varð Sjómannablaðið Víkingur til. 6 – Sjómannablaðið Víkingur Þetta er kápumyndin sem notuð var á fyrstu tölublöð Víkingsins eða þar til febrúarblaðið 1940 kom út. Svo breyttist kápan og upp frá þessu hefur kápumynd Víkingsins verið breytileg frá einu tölublaði til annars. VÍKINGUR sjötugur

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.