Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2009, Blaðsíða 18

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2009, Blaðsíða 18
strönd. Þaðan var ferðinni heitið suður Atlantshaf og austur eftir Indlandshafi og Kyrrahafi. Á leið um Kílarskurð tók bát- urinn niðri og laskaðist og var siglt til Björgvinjar til viðgerðar. Enn tafðist förin af loftárás Breta á kafbátalægið í janúar, en báturinn hélt norður á bóginn í febr- úarbyrjun. Eitthvert basl var enn með vélar bátsins svo honum var snúið aftur til Björgvinjar. Bretar höfðu ráðið enigmaskeyti Þjóð- verja og vissu af ferð bátsins og erindi hans. Þeir sendu móti honum kafbát, HMS Venturer, með 37 manna áhöfn, sem Jimmy Launders lautinant stýrði. Leiðir bátanna lágu saman út af Fedjaey, um 50 km norðvestur af Björgvin. Báðir bátarnir voru í kafi þegar Bretarnir skutu hinn 9. febrúar fjórum tundurskeytum að Þjóðverjunum. Hið síðasta hæfði U- 864, sem sökk með allri áhöfn. Sam- kvæmt sumum heimildum voru í henni þýskir og japanskir sérfræðingar í smíði og meðferð þeirra hátæknivopna sem flutt voru með bátnum. Þetta mun vera eina þekkta orrustan í allri sögu kafbát- anna þar sem einn kafbátur grandaði öðrum og báðir voru neðansjávar. Þegar Norðmenn fréttu af kvikasilf- ursfarminum í U-864 varð þeim ekki um sel. Flak bátsins fannst í tveimur pörtum eftir fimm ára leit í október 2003. Einn brúsi náðist upp og var verulega farinn að tærast. Fiskveiðar eru ekki leyfðar í grennd við flakið vegna mengunarhættu. Ekki er talið óhætt að draga allt flakið upp, þar sem ætla má að við það losni kvikasilfur, auk þess sem nokkur tund- urskeyti eru í bátnum sem gætu sprung- ið. Í ráði er að reyna að ná heillegustu hlutum flaksins upp en urða annað á hafsbotni. Diplómatískur hnútur leystur ástúðlega Inn á Japanshaf, strandhafið á milli Japans og meginlands Asíu, er aðeins fært af sjó um nokkur sund, sem öll voru vel varin tundurduflum. Banda- ríkjamenn gerðu þó ráð fyrir að sigla mætti kafbátum nærri yfirborði um Tsugarusund, á milli nyrstu japönsku heimaeyjarinnar, Hokkaidó, og Sjakalín, því þar var fjölfarin siglingaleið rúss- neskra skipa, og friður milli Sovétríkj- anna og Japans. Þetta sannreyndu áhaf- nirnar á þremur bandarískum kafbátum, sem fyrstir sigldu inn á Japanshaf þjóð- hátíðardaginn 4. júlí árið 1943. Þegar inn var komið urðu kafbátsmenn varir mikilla umsvifa Japana á sjó, sem greini- lega voru óviðbúnir óvinaárás. En leið- indaveður og ratsjárbilanir urðu til þess að kafbátarnir sneru fljótlega brott sömu leið og þeir komu og hafði aðeins einn þeirra grandað tveimur óvinaskipum, og hvorugu stóru. Á heimleið sigldi einn báturinn, USS Permit, fram á skip sem skipherrann, Wreford Chapple, taldi japanskan varð- bát og lét skjóta á hann úr fallbyssu. Þegar skipverjar drógu upp hvítan fána sáu kafbátsmenn sér til skelfingar að hér stefndi í diplómatíska deilu: Þeir höfðu ráðist á bandamenn sína í Evrópustríð- inu, því þetta var sovéskt fiskiskip. Skip- ið sökk og með því einn skipverji, en þrettán var bjargað um borð í kafbátinn. Einn var dauðvona, en meðal hinna, sem af komust, voru fimm konur. Chapple skipherra hugðist skila „gestunum“ til sovéskrar hafnar en yfirmaður hans, Lockwood aðmíráll, skipaði honum að fara með þá til Hollandshafnar á Aljút- eyjum í Alaska, þaðan sem þeim yrði skilað til heimalandsins. Kafbátsmenn sýndu þessum óvæntu farþegum alla þá gestrisni sem þrengslin í kafbátnum leyfðu, og svo kært var með ungu kaf- bátsmönnunum og sovésku dömunum (kannski einmitt vegna þrengslanna) að þær táruðust á kveðjustund. Skipstjóri fiskiskipsins endurgalt góð kynni. Í skýrslu hans til sovéskra yfirvalda stendur að Bandaríkjamennirnir hafi bjargað skipshöfninni eftir árás óþekkts kafbáts. Kafbátsrán á Kyrrahafi Í febrúar 1968 sendu Sovétmenn K- 129, tvinnkafbát af „Golf“-flokki, út á Kyrrahaf til æfinga og eftirlits með um- svifum andstæðinganna. Eftirlitið var gagnkvæmt. Eitthvað kom fyrir K-129 og hann hvarf í hafið 8. mars. Rússarnir voru þá búnir að missa samband við bát- inn, en Ameríkumenn, sem áttu ná- kvæmari miðunartæki en Rússar, höfðu fylgst með honum og fundið flakið nærri Hawaiieyjum á fimm kílómetra dýpi. Bandaríska leyniþjónustan, CIA, sá sér leik á borði og lagði til að útvegaður yrði djúpköfunarbúnaður til að ná K-129 sem heillegustum upp úr sjónum. Miklu skipti að hvorki Rússar né almenningur og fjölmiðlar í Bandaríkjunum kæmust á snoðir um þetta laumuspil, sem gekk undir lykilnafninu „Jennifer“. Yfirmenn bandaríska flotans voru til dæmis ekki hafðir með í ráðum. Í K-129 voru þrjár eldflaugar af nýjustu gerð, hlaðnar kjarnaoddum, auk þess sem búast mátti við verðmætum kóðavélum, kóðaskrám og öðrum gögnum, og ekki spillti að kommarnir myndu ekki hafa hugmynd um að þessar upplýsingar væru í hönd- um andstæðinganna. Nixon Bandaríkjaforseti tók hug- myndinni fagnandi og sá til þess að nóg fé væri fyrir hendi. Til framkvæmda var ráðinn sérlundaður amerískur auðkýf- ingur, Howard Hughes, sem unnið hafði við ýmis hátækniverkefni í heimsstyrj- öldinni, sem flest höfðu raunar mislán- ast, svo sem gerð stærstu flugvélar í heimi, átta hreyfla flugbáts, Hercules, sem átti að brúka til herflutninga en stríðinu lauk áður en risinn var tilbúinn. Með Hughes við stýrið lyftist ferlíkið aðeins einu sinni nokka metra yfir hafs- borð úti fyrir Long Beach í Kaliforníu en var síðan lokað inni í skýli. Nú boðaði Hughes smíði djúpsjávar- könnunarskips, Glomar Explorer, sem að nafninu til átti að leita að mangani og öðrum verðmætum málmum á hafsbotni en var í raun leppfyrirtæki fyrir sjóráns- áform CIA. Undir skipinu var gríðarstór prammi með gripkló, sem sagt er að hefði getað spannað fótboltavöll. Þessi búnaður var í júlí 1974 látinn síga niður á hafsbotn í gildum köplum og flakið skorðað í gripklónni. En ekki tókst betur til en svo að klóin brast á uppleið, kaf- báturinn brotnaði í tvennt og upp kom aðeins 12 metra hluti af þessum 100 metra langa kafbáti. Aldrei hefur fengist uppgefið, hvað í þessum hluta var. Þó er ljóst að þar voru afar geislavirk lík sex bátsverja, sem sett voru í málmhylki og lögð til hinstu hvílu í hafi með tilhlýði- legri virðingu. Myndband af athöfninni var sent ættingjum hinna látnu. HMS Venturer. Þessi breski kafbátur varð fyrsti og eini kafbátur sögunnar, að því er best er vitað, til að sökkva öðrum kafbáti þar sem báðir voru í kafi, þegar hann grandaði U-864 út af strönd Noregs í febrúar 1945. (McCartney 2006) 18 – Sjómannablaðið Víkingur

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.