Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2009, Blaðsíða 46
46 – Sjómannablaðið Víkingur
Ljósmyndakeppni
sjómanna 2009
Ljósmyndakeppni Sjómannablaðsins Víkings hefur notið
mikilla vinsælda meðal sjómanna og enn á ný leggjum við
af stað með landskeppni. Það er að miklu að stefna því þrjár
myndir munu hljóta verðlaun sem Sjómannablaðið Víkingur
veitir en síðan munu þær ásamt 12 öðrum, sem dómnefnd
velur, keppa til úrslita í norrænni ljósmyndakeppni sjómanna.
Norræna keppnin verður að þessu sinni haldin í Reykjavík í
byrjun febrúar n.k.
Reglur keppninnar eru einfaldar. Ljósmyndarinn þarf að
hafa verið til sjós en myndefnið þarf ekki að vera tengt skipum.
Þar hefur ljósmyndarinn frjálst val. Engin skilyrði eru fyrir á
hvaða formi myndirnar eru teknar, svart/hvítar, lit, skyggnur
eða stafrænar né að þær hafi verið teknar á líðandi ári. Því er
hægt að fara í gamla safnið sitt.
Frestur til að skila inn myndum er til 30. nóvember n.k. og
má senda þær rafrænt á iceship@heimsnet.is eða á Sjómanna-
blaðið Víkingur, Grensásvegi 13, 108 Reykjavík, merktar Ljós-
myndakeppni 2009.
Myndirnar eiga að hafa heiti og æskilegt væri að smálýsing á
myndefninu fylgdi með. Þegar hafa myndir borist í keppnina og
því er ykkur ekkert að vanbúnaði að senda ykkar myndir inn.
Skoðum að lokum fáeinar myndir úr fyrri keppnum, svona rétt
til að hita ykkur upp.
Í sundi, nefndi Sigvaldi Torfason þessa mynd sína.