Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2009, Síða 10
10 – Sjómannablaðið Víkingur
Víkingnum þótti við hæfi , í tilefni af
70 árunum sem eru að baki, að biðja
Jón Bjarnason, sem fer með sjávarút-
vegsmál í núverandi ríkisstjórn, að rifja
upp eftirminnilega sjóferð er hann hefði
farið. Jón brást vel við, eins og hans
var von og vísa, og sendi okkur þessa
skemmtilegu og fróðlegu frásögn sem er
mjög í anda Víkingsins.
Vorið 1951 ákváðu foreldrar mínir að
taka sig upp með fjölskylduna alla, sam-
tals 14 manns, og flytja búferlum frá
Asparvík í Strandasýslu að Bjarnarhöfn á
Snæfellsnesi. Faðir minn, Bjarni Jónsson,
var útvegsbóndi og tekjur heimilisins
byggðust að miklu á sjósókn. En fiskurinn
í Húnaflóanum hafði brugðist í nokkur ár
og því var valinn sá kostur að söðla alveg
um og flytja á annan landshluta. Foreldrar
mínir höfðu þá fest kaup á Bjarnarhöfn,
einni af mestu kostajörðum landsins.
Ferðin sjóleiðis frá Asparvík til Bjarnarhafnar er mér afar
minnistæð en ég var þá barn að aldri. Hún hófst með því að
fjölskyldan gekk um borð í Síldina, hákarlaskipið og trilluna
sem í senn hafði þjónað farsællega til sjóróðra, flutt lækni og
ljósmóður sem aðra farþega um áratugi í misjöfnum veðrum
Húnaflóans. Nú var ferðinni heitið inn á Drangsnes í veg fyrir
strandferðaskipið Skjaldbreið sem átti að flytja okkur til Bjarn-
arhafnar.
Síldin var mikið listasjóskip en skipar nú heiðurssæti á safni
og í gestamóttöku Hildibrands bróður míns og fjölskyldu hans í
Bjarnarhöfn.
Langt var liðið á júní og túnin græn. Þótt spenningurinn og
eftirvæntingin væri mikil fannst okkur krökkunum sárt að
kveðja fjöruna, hlíðarnar, steinana og hamrana sem höfðu verið
leikvöllur okkar allt frá fyrstu skrefum. Aksjónin var yfirstaðin
en þá höfðu allir húsmunir og amboð sem ekki var hægt að
flytja með sér verið boðin upp. Enn er mér nokkur óhugur í
minni að hafa horft á allt þetta
ókunnuga fólk sem kom og
gramsaði í eigum okkar og
hafði með sér á burt.
Sjóferðin með Síldinni
En hvað um það, ferðin var
hafin. Það var hægur sunnan-
andvari og hlýtt þegar Síldin
renndi frá Kvíanesinu í Asp-
arvík og stefnan var tekin inn
Húnaflóann á Drangsnes. Bát-
urinn var hlaðinn fólki og far-
angri og því betra að fá gott
sjóveður. En skyndilega rauk
hann upp með sunnanstormi,
hvítfyssandi sjó og ágjöfum.
Okkur krökkunum var stappað
saman fremst í bátinn undir
hvalbaknum og breitt yfir okkur segl.
Síldin tók miklar dýfur í öldurótinu.
Móðir mín kunni rokinu og ágjöfinni vel.
Kallaði þetta fruss. Þannig var kveðju-
myndin, faðir minn við stýrið á Síldinni
og móðir mín sem sat keik á þóftunni og
leit ekki undan þótt löðraði yfir bátinn.
Þegar inn á Drangsnes kom gekk brim-
rokið yfir bryggjuna og því ekki hægt að
lenda. Þar hafði safnast saman hópur
vaskra manna úr þorpinu til að taka á
móti okkur. Faðir minn hélt bátnum eins
nálægt bryggjunni og hann þorði og síðan
var okkur kastað í land á milli laganna. Ég
man óljóst eftir stórum og sterkum örm-
um sem gripu mig og báru í öruggt var.
Siglt með Skjaldbreið
Degi síðar kom Skjaldbreið. Þá var
veðrið gengið niður og búslóðin og fólkið
komst auðveldlega um borð. Mér fannst
Skjaldbreið hreint ævintýri með herbergj-
um, kojum og matsal. Þar var líka bryti sem var okkur mjög
góður og ég undraðist að hægt væri að elda svo góðan mat um
borð í skipi.
Á Norðurfirði var stoppað og hópur ættingja kom um borð
til að kveðja okkur en móðir mín, Laufey Valgeirsdóttir, var þar
fædd og uppalin.
Næst var stoppað á Ísafirði en annars var þoka fyrir öllum
Vestfjörðum og lítið að sjá.
Kýrnar höfðum við orðið að skilja eftir en tveir kálfar voru
með í för.
Að morgni 27. júní 1951 varpaði Skjaldbreið akkerum inni á
hinni fornu höfn í Kumbaravogi við Bjarnarhöfn. Þar var versl-
unarstaður um aldir. Við, fjölskyldan sem var fædd og uppalin
að hálfu á sjó, vorum komin til nýrra heimkynna. Tígulegt
Bjarnarhafnarfjallið og víðlend tún og engi blöstu við.
Ferðin hafði gengið giftusamlega en við uppskipunina slas-
aðist faðir minn á hendi og þótti súrt þegar fara þurfti með
hann til Stykkishólms í læknis-
aðgerð meðan aðrir skipuðu
upp búslóðinni.
Í Bjarnarhöfn var mættur
hópur Helgfellinga, nýrra sveit-
unga okkar, sem hjálpuðu við
að skipa upp og flytja búslóð-
ina heim. Þessari löngu og við-
burðarríku sjóferð minni var
lokið.
Mér er enn minnistætt þegar
ég, sem stuttur en léttfættur
drengur, hljóp frá sjónum upp
túnið í Bjarnarhöfn og heim að
bænum. Ég hafði aldrei getað
ímyndað mér að til væri svo
mikið samfellt graslendi og þar
blasti við.
Jón Bjarnason, sjávarútvegsráðherra
Frá Asparvík til Bjarnarhafnar
Jón Bjarnason.
Síldin skipar nú heiðurssæti á hákarlasafni Hildibrands, bróður Jóns, og fjöl-
skyldu hans í Bjarnarhöfn á norðanverðu Snæfellsnesi í Helgafellssveit.