Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2009, Síða 24

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2009, Síða 24
uðu sérfræðingarnir að tæki Óðins væru rétt innan þeirra skekkjumarka sem framleiðandi gefur upp. Féll dómur yfir skipstjóranum seinna þann dag. Lög- fræðingarnir tveir sem fóru með í leitina lifðu af volkið og sjóuðust nokkuð. Í ferðinni lærðu þeir á eigin skinni vinnu- brögð varðskipsmanna í óvæntum uppá- komum. Störfuðu þeir báðir um árabil sem sækjandi annars vegar og verjandi hins vegar í fjölmörgum togaratökum eftir þetta. Var haldið beint til Reykjavíkur eftir að réttarhöldunum lauk á Ísafirði, en varðskipið Ægir var komið að leitinni að Snæfelli ásamt TF SIF og mörgum bát- um. Daginn eftir, 13. október settist ég svo á skólabekk í Lordinum. Með Mumma fórust fjórir menn og fjórir með Snæfellinu. Eftirmáli, Mummi ferst „Klukkan mun hafa verið um hálf þrjú síðdegis á laugardag þegar Mummi fékk á sig mikið brot. Skipstjórinn var í brú, tveir menn voru á framþilfari við spilið og einn í ganginum undir stýris- húsinu stb. megin. Hinir tveir voru niðri í lúkar. Skyndilega kom brot á bátinn og hann lagðist á hliðina. Enginn tími gafst til að losa gúmmíbát eða ná í björg- unarvesti. Allir skipverjar að matsvein- inum undanskildum komust upp á hlið stýrishússins þar sem báturinn maraði í hálfu kafi. Þrem mínútum eftir að brotið kom á bátinn var hann sokkinn og mennirnir svamlandi í sjónum. Þeir voru fimm en einn hvarf strax og þeir voru komnir í sjóinn og annar skömmu síðar beint fyrir augunum á þeim þrem sem eftir voru. Þeir voru búnir að svamla 10 til 15 mín. í sjónum þegar bjarghring skýtur skyndilega upp og þeir ná honum en þá aðeins tveir eftir og orðið óskap- lega kalt. Skyndilega sáu þeir kistu sem skotið hafði upp en nú magnaðist spenna því að um tvær gat verið að ræða kistu utanum björgunarbátinn eða matar- kistu. Létti þeirra verður ekki með orð- um lýst þegar þeir komust að því að þetta var kistan með björgunarbátnum. Þeir voru orðnir mjög þrekaðir þegar þeir náðu til bátsins. Erfitt reyndist að draga línuna út og næstum ógjörningur að kippa það fast í að báturinn blési upp. En það tókst og fyrir ofurmannlegt harð- fylgi tókst þeim að brölta upp í bátinn í stormi og stórsjó hálf dauðir úr vosbúð eftir hálftíma volk í sjónum. Á næstu 29 tímum sem þeir voru að hrekjast um sjóinn, suður með Vestfjörðum og á haf út undan Breiðafirði telst þeim til að bátnum hafi hvolft undir þeim 5 til 6 sinnum og alltaf tókst þeim að rétta hann við aftur. Þeir voru búnir að sjá flugvélina tvisvar fara framhjá og skjóta blysum án þess að áhöfnin sæi þau, en í þriðja sinn sem vélin sást koma sá áhöfnin neyðarblysin frá björgunar- bátnum.“ Heimildir til minnis: Leiðarbók Óðins frá 1964 Morgunblaðið og Vísir frá 1964 Dómabók sakadóms Ísafjarðar frá 1964 Guðjón Jónsson var einn af þessum eldkláru fagmönnum, sem greinarhöfundur kallar líka „afburða listamenn“. Hann réðst til Gæslunnar árið 1955 og næstu 32 árin flaug hann í hennar þágu. Mynd: Helgi Hallvarðsson 24 – Sjómannablaðið Víkingur

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.