Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2009, Síða 34
Í 3. og 4. tbl. Sjómannablaðsins Vík-
ings 2008 og í 1. og 2. tbl. 2009
birtist viðtal við Stefán Olsen, kyndara.
Ritstjóri Víkings hefur leyft, að hér
fylgi nokkrar athugasemdir við við-
talið.
Ekki hefur tekizt að bera kennsl á
þá, sem eru í bátsáhöfninni á myndinni í
upphafi viðtalsins (3. tbl., 2008, bls. 12)
utan Stefán Olsen og Halldór Dagbjarts-
son. Allar upplýsingar um þessa mynd
eru vel þegnar og mega sendast Víkingi
eða til ogb@hi.is. Vel má vera, að þetta sé
áhöfnin á mb. Svölu MB 27 frá Akranesi,
en Stefán og Halldór voru saman á þeim
báti, þegar hann fórst í janúar 1935.
Frásögn Stefáns af bv. Braga eru at-
hyglisverð. Togarinn kom til Fleetwood
eftir hættulega siglingu frá Íslandi, full-
hlaðinn af fiski til stríðshrjáðrar þjóðar,
þegar loftárásir voru harðastar á brezkar
borgir (Blitz) og neyða átti Breta til upp-
gjafar. Bv. Bragi varð að bíða á ytri höfn-
inni í Fleetwood yfir nótt, og Bretar fyrir-
skipuðu algera myrkvun um borð og
fylgdu því strangt eftir eins og lesa má í
bók Steinars J. Lúðvíkssonar, Þrautgóðir
á raunastund, II. bd., Rvk. 1970, bls.
130-135. Myrkvunin setti skipið í hættu
eins og fljótt kom í ljós. Þrátt fyrir sigl-
ingabann á nóttu í brezkri landhelgi,
sigldi farþegaskip brezku ríkisjárnbraut-
anna, SS Duke of York, á 17 mílna ferð
inn á ytri höfnina um nóttina og með
ljósum, en vissi þó lítið, hvert það var að
fara. Þetta 4000 tonna skip
keyrði togarann niður, klauf
hann í tvennt, og öll áhöfn
Braga fórst að undanskild-
um 3 mönnum. Stefán Ol-
sen hafði ekkert að segja
um sjópróf eða réttarhöld,
nema að tekin var skýrsla af
þeim, sem lifðu áreksturinn
af, og útgerðin borgaði það,
sem þeir töpuðu, sængina,
já, líklegast allt nema fötin.
SS Duke of York lenti aftur
í árekstri tæpum 20 árum
seinna, eða í maí 1953, og
þá í þoku á Ermarsundi.
Flutningaskipið Haiti Vict-
ory, sem var mun stærra
skip en Duke of York, sneiddi þá framan
af stefni farþegaskipsins, og 11 farþegar
fórust. Í sögu Duke of York er þessa slyss
getið, en um áreksturinn við togarann
Braga er ekkert að finna. Það væri náms-
verkefni að kanna, hvernig íslenzk
stjórnvöld héldu á þessu máli fyrir að-
standendur þeirra, sem fórust á togaran-
um Braga, en skjöl um réttarhöld vegna
áreksturs Duke of York og Haiti Victory
eru í: http://www.chanrobles.com/usa/us_
supremecourt/354/129/case.
php
Myndin af SS Duke of
York á bls. 11 í 2. tbl. 2009
er af skipinu í upphaflegri
gerð þess. Þar er það tví-
strompa eins og það leit út,
þegar það lenti í árekstr-
inum við bv. Braga haustið
1940. Eftir stríð var skipinu
breytt eins og sjá má á
mynd-inni af því í 3. tbl.
2008.
Í viðtalinu við Stefán er
lítið rætt um kafbátinn, sem
sökkti Goðafossi, enda vissi
Stefán ekkert um hann. Kaf-
báturinn var U-300 (gerð VIIC) og var
innan við ársgamall, þegar ráðizt var á
Goðafoss í nóvember 1944. Hann var
undir stjórn Oberleutnat Fritz Hein
(f. 25. des. 1919). Saga U-300 varð ekki
löng. Árás var gerð á bátinn 19. febrúar
1945 og hann laskaður; þann 22. febrúar
gafst áhöfnin upp fyrir brezkum herskip-
um, og var kafbáturinn þá vestur af
Cadiz á Spáni. Þegar áhöfnin forðaði sér
frá borði, var skotið á hana og létust
nokkrir kafbátsmanna; alls fórust 9 úr
áhöfninni, en 42 björguðust. Kafbátsfor-
inginn Hein var einn þeirra, sem lézt. Er
þessum atburði lýst í bók Óttars Sveins-
sonar, Útkall - árás á Goðafoss, Rvk.
2003.
Ástæðuna fyrir skotárásinni sögðu
Bretar vera, að hindra átti að Þjóðverjar
sökktu bátnum, en það tókst þeim þó að
gera. Kvartað var undan þessum verkn-
aði, en málið var þaggað niður. Í neðan-
málsgrein á bls. 9 (1. tbl. 2009) er sagt,
að áhöfn olíuskipsins Shirvans hafi verið
bjargað í vopnaða togarann Honningsvåg
og dráttarbátinn HMS Northern Reward.
HMS Norther Reward var einnig vopn-
aður togari og smíðaður í Þýzkalandi,
var síðar Vörður BA142 og fórst í sigl-
ingu 1950.
Á bls. 9 í 2. tbl. 2009 (miðdálki
neðst) er ranglega sagt, að tengdamóðir
Stefáns hafi búið á Hringbraut 86, rétt er
Hringbraut 82 eins og stendur í mynd-
texta á bls. 8 í sama tbl.
All nokkrar skiptingarvillur orða á
milli lína eru, en vandgert er við því að
gera í nútímaprentun. Í myndatexta á
bls. 14, í 3. tbl. 2008, neðri mynd, á að
standa Lambhúsasund í stað Lambhús-
sund.
Ólafur Grímur Björnsson
Bragi; verðugt námsverkefni
- Athugasemdir við viðtal
U-185 sökkt. Bretarnir vildu helst þegja örlög U-300 í hel.
Eftir að Stefán slapp lifandi frá strandi Svölunnar í janúar 1935, fór
hann strax á línuveiðarann Goluna (MB 35) frá Akranesi og var á
henni út vertíðina.
34 – Sjómannablaðið Víkingur