Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2017, Blaðsíða 14

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2017, Blaðsíða 14
14 – Sjómannablaðið Víkingur H ann fæddist fullorðinn, sagði Sig- ríður Ögmundsdóttir um son sinn Grím Karlsson sem leit fyrst dags- ins ljós á Siglufirði hinn 30. september 1935. Þetta var ekki alveg út í hött. Að minnsta kosti var hann bráðger svo af bar, vinnufús, handlaginn og gjör- hugull. Athugulum barnsaugum fylgdist hann með bátunum fara og koma og þekkti þá brátt flesta á hljóðinu einu. Fjölskyldan bjó hátt í Hvanneyrarhlíðinni við Siglufjörð – í samnefndu húsi – þaðan sem strákpjakkurinn gat fylgst með öllu lífi á firðinum. Og Grímur var ekki gamall þegar hann tók að róa og færa björg í bú. Faðir hans, Karl Grímur Dúason, hafði komið að máli við norska síldveiðisjómenn og keypt af þeim lítinn árabát sem strákurinn fékk. Fjórtán ára gamall réði Grímur sig til móðurbræðra sinna sem áttu bát- inn Vögg GK 204. Aðeins tveimur árum síðar tók hann við skipstjórn á hinnum 20 tonna Mars GK 374 sem þeir áttu saman Karl Grímur og syn- ir hans, Dúi og Grímur. Sextán ára og skipstjóri. Til þess þurfti undan- þágu frá valdhöfum. Bjargaði þrívegis mannslífum Grímur Karlsson ætlaði sér þó aldrei að ganga lífsveginn á undanþágu. Slíkt var ekki að hans skapi. Hann fór í Sjómannaskólann og náði sér í 30 tonna réttindi og 1956 í Stýri- mannaskólann og tók skipstjórnar- réttindin. Eftir það varð ekki aftur snúið enda snemma ljóst að Grímur yrði ekki landkrabbi. Eftir áratugi á sjónum var það loks hjartað sem hrakti Grím skip- stjóra úr brúnni. Þetta var árið 1980. Hann hélt þó áfram að fara einn og einn afleysingatúr og hljóp undir bagga á ver- tíðum þegar þurfti en 1984 sagði Grímur - eða öllu heldur hjartað – nú er komið nóg, sjómennsku minni er lokið. Það er ekki ofsögum sagt að það var mikið lán yfir skipstjóranum Grími Karlssyni. Hann aflaði vel, missti aldrei mann fyrir borð og þrívegis varð áhöfn hans þeirrar gæfu aðnjótandi að bjarga mannslífum. Árið 1959 var Grímur með Heimi KE 77 þegar gerði vestan- storm. Nálægt þeim var nótabátur af Fram AK og skipti engum togum að bátnum hvolfdi og tveir menn fóru í sjóinn. Öðrum var bjargað um borð í Fram. Hinum náðu karlarnir á Heimi. Í apríl veðrinu mikla 1963 kom Grímur heldur betur við sögu og enn þegar hann var skipstjóri á Bergvík KE 55 en þá tókst honum og áhöfn hans að bjarga barni sem hafði fallið í Keflavíkurhöfn. Stöldr- um ögn við apríl 1963. Súlan EA ferst „Hann er einhleypur maður, en býr hjá foreldrum sínum í Njarðvíkum“, hljóðaði lýsingin sem Alþýðublaðið gaf í apríl 1963 á skipstjóranum á Sigurkarfa GK 480. Kvöldið áður – hinn 10. apríl – hafði skipið flutt að landi óvenju verðmætan farm. Skip- stjórinn var Grímur Karlsson. Blaða- maður ræddi við Grím um hinn vo- veiflega atburð þegar Súlan, hið sögufræga aflaskip frá Akureyri. fórst: „Við vorum á leið til Reykjavíkur með 400 tunnur af síld, sem við höfðum fengið út af Vestmannaeyj- um. Við höfðum farið frekar seint út og vorum þess vegna of seinir á mið- in til að fá góðan afla, þar sem tölu- verð bræla var komin þar um hádeg- isbilið. Fengu flestir hinna bátanna góð- an afla, þar á meðal Súlan, sem lagði á stað til hafnar í Reykjavík með afla sinn nokkru á undan okkur. Jón Hjaltason Hvernig geturðu smíðað með svona stórar hendur? – Grímur Karlsson 30. september 1935 – 7. júní 2017 – Grímur Karlsson andaðist 7. júní síðastliðinn. Hann fæddist á Siglufirði 1935. Fimmtán árum síðar, eða 1950, gerði mikið atvinnuleysi á Siglufirði og fluttist þá fjölskyldan til Njarðvík- ur og þar bjó Grímur upp frá því

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.