Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2017, Blaðsíða 20

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2017, Blaðsíða 20
Í slenskum farmönnum er eiginlega blætt út. Þá meina ég sem stétt. Hverjum er um að kenna hvorki get ég eða vil dæma um. En eitt er víst, hverjum sem það er að kenna þá er virkilega illa komið fyrir þessari stétt. Þeirri stétt sem sigldi einhverjum fallegustu skipum sem prýddu höfin á þeim tíma. Þeirri stétt sem ekki síður flutti björg í bú Íslendinga, en fiski- mennirnir, með fullri virðingu fyrir þeim. Starf farmannsins misskilið Mér hefur oft fundist að farmenn fengju ekki þann sess í sögunni sem þeim ber. Ég minnist þess að við fiskimenn töluð- um stundum um „tuskubelli“ (þið fyrir- gefið orðbragðið), innfjarðarsjóara og svo framvegis. En farmennska krafðist ekki síður mikillar sjómennsku en fiski- mennska. Allra versta ísing sem ég lenti í var til dæmis um borð í farskipi. Mátt- arvöldin greina ekki farmenn frá fiski- mönnum. Þessi misskilningur stafaði ef til vill af því að farmenn sáust helst við að þvo og mála í höfnum, stundum hangandi í stillönsum einhvers staðar á skipinu. Þetta var misskilningur af sama toga og sagt var að við togarakallarnir værum alltaf fullir því að margir af okk- ur sáust ekki öðruvísi. Fólk sá ekki til okkar á sjó. Eins sá fólk ekki til far- manna að koma böndum á farm sem losnað hafði eða moka til í lestum og kolaboxum þegar á þurfti að halda. Misskilningur er oft út af vankunn- áttu um staðreyndir. Það gæti líka hafa örlað á einhverskonar öfund. Það fengu færri en vildu pláss á þessum skipum. Ég komst nokkrum sinnum í farmannspláss en komst fljótlega að raun um að við félagarnir, ég og „Bakkus“ áttum þangað lítið erindi. En maður verður hugsi yfir framtíð íslenskra siglinga Hvar endar þetta? Ný og fullkomin skip fást ekki mönnuð Íslendingum. Það getur varla verið langt í að útlendir hafnsögumenn verði ráðnir við hafnir landsins. Þó veit ég um eitt dæmi þar sem ekki skipstjórnarlærður hafnsögumaður sinnti því starfi og með svo miklum sóma að frægt varð út um heim. Þá meina ég hinn mikla atorku- mann Jón Sigurðsson, kenndan við Látra í Vestmannaeyjum. Hinir glæstu tvíburar Ég skrifaði einu sinni um Reykjavíkur- höfn í kring um 1953. Og lífið við hana og talaði um að hugur margs ungs manns hefði mögulega beinst að sjó- mennsku við að koma þangað. Kannski við að veiða kola við Verðbúðar- eða Loftsbryggju. Hvar sjá unglingar nútím- ans eitthvað í líkingu við það sem við sáum. Hvergi. Bryggjur, sem allavega flutningaskip liggja við, eru lokaðar al- menningi út ef einhverri hryðuverka- hræðslu lands sem fremur flest hryðju- verkin sjálft. En ekki út í þá sálma. En gullaldarskeið íslenskrar far- mennsku var ekki runnið upp 1953. Það áttu glæsileg stór og falleg íslensk farskip eftir að prýða þessa höfn. Skip eins og „tvíburarnir“, Selfoss og Brúarfoss, sem komu 1958 og 1960. Skip sem að mínu mati eru fallegustu farskip sem prýtt hafa úthöfin. Ef mig brestur ekki minnið þá var Esja 4 byggð 1983 fyrir Íslendinga, svo Brúarfoss V sem byggður var 1996. Þrettán árum seinna. Svo líða 18 ár þá er það Lagarfoss VII 2014. Að mínu minni er það síðasta íslenska (ef svo mætti kalla með íslensk- an fána sem gestafána) sem hefur verið hefur hleypt af stokkunum Ég vil meina að Brúarfoss V sé síðasta flutninga- skipið sem hleypt var af stokkunum með íslenska fánann í skut. Sem sagt 21 ár síðan. Ég tel ekki ferjurnar Baldur og Herjólf eða hafrannsóknaskip. Eða eld- gamalt dýpkunarskip sem sett var undir íslenskan fána fyrir nokkrum árum. Kannski er mér að yfirsjást einhver skip. Ekkert gert! Ég tel fánamálið gersamlega tapað. Mikið mega forráðamenn skipafélaganna og stjórnvöld þessa lands nú til margra ára skammast sín fyrir það. Þetta er Ís- land í dag. Hér á árum árum áttu sumir ráðamenn stóra drauma, allavega á Sjó- mannadag um að gera Ísland að stórveldi í siglingum. Já, það er sælt að láta sig dreyma en sú von hefur nú misst vængi. Ekkert hefur verið gert til hagræðis ís- lenskri farmennsku að mínu viti. Í þjóðvísu frá Álandseyjum segir meðal annars, „vem kan ro utan årar.“ Já, hver getur róið án ára. Íslensk stjórn- völd hafa ekki vilja í dag til að leggja til árarnar. Því miður. Ráðamönnum er oft tíðrætt um sjálf- stæðið og siglingarnar á hátíðardegi sjó- manna. Um hve þarft það sé sjálfstæðri eyþjóð að sjá um sínar siglingar. En þeir láta farmannastéttinni blæða út hægt og bítandi. Þá er eins og blóðið sé frosið í þeirra eigin æðum. Það er aldrei of seint í rassinn gripið að reyna að hvetja menn til dáða. Ég hvet íslenska sjómenn, hvaða flokki sjómennsku þeir standa til, að standa vörð um íslenskar siglingar hverju nafni þær nefnast. Látið ekki gamlan ríg standa í vegi fyrir því. Hvassafell við Torfunefsbryggju á Akureyri. Minjasafnið á Akureyri Ís lensk farmennska á hverfanda hvel i Ólafur Ragnarsson 20 – Sjómannablaðið Víkingur

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.