Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2017, Page 42
42 – Sjómannablaðið Víkingur
U m mánaðamótin ágúst – september 1947 voru staddir í
Hull, í Englandi, 12 sjómenn þeirra erinda að sækja
fyrsta hafnfirska nýsköpunartogarann. Skipið, b.v. Bjarni
riddari GK 1, hafði verið sjósettur þann 26. október 1946 hjá
Cochrane & sons Ltd, í Selby, en fullnaðar frágangur á skip-
inu fór fram í Hull. Þaðan var hinum nýja togara reynslusiglt
á Humberfljóti þann 19 ágúst 1947.
Hafnfirsku sjómennirnir sem áður höfðu verið á b.v. Óla
Garða GK 190 undir stjórn Baldvins Halldórssonar skipstjóra
og sem nú biðu afhendingar hins nýja skips, nutu dvalarinnar í
Englandi. Ensk sveitasæla heillaði aðkomumennina sem einn
daginn leigðu sér „privat“ rútubíl með einkabílstjóra í dagsferð
um nær liggjandi héruð.
GAMLA MYNDIN
„Riddarinn“ sóttur til Englands fyrir 70 árum
Áhöfnin sem sótti Bjarna riddara í enskri sveitasælu. Baldvin Halldórsson skipstjóri er klæddur jakkafötum fyrir miðri mynd.
Mynd: Baldvin Halldórsson