Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2017, Side 45
Sjómannablaðið Víkingur – 45
skipafélaginu þar sem fjögur þeirra eru
einnig af Pegusus gerð en þau eru MSC
Eloane, MSC Mirjam, MSC Rifaya og
MSC Leanne. Tíunda stærsta gámaskipið
er svo MSC Jade en það skip getur flutt
19224 TEU.
Einkavæðing heldur áfram
Í byrjun ágúst hófu rússnesk stjórnvöld
viðræður við fjárfesta í Asíu um einka-
væðingu á ríkisskipafélaginu Sovcomflot.
Skipafélagið samanstendur af 149 skip-
um upp á 13,123,594 tonn og er það
jafnframt það stærsta þar í landi.
Nýtt bann
Það hefur ekki farið framhjá mörgum
vaxandi vinsældir væpunnar eða rafsíga-
rettunnar hér á landi en mikil umræða
hefur verið um ágæti hennar. Í banda-
ríska sjóhernum segja menn einfaldlega
að menn geti kallað þær hvað sem er
bara ekki koma með þær um borð í
nokkurt herskip, kafbát eða flugvél
bandaríska flotans. Þetta var tilkynnt að
hverskonar rafrænar sígarettur væru
bannaðar með öllu og væri það óháð
starfi eða stöðu innan flotans. Ástæða
bannsins er sprengjuhætta sem stafar frá
rafhlöðum í rettunum. Þetta bann næði
einnig til borgaralegra sjómanna, starfs-
manna og gesta. Reglurnar voru settar í
kjölfar fjölda slysa þar sem rafhlöðurnar
höfðu ofhitnað og hefur fjöldi sjóliða
orðið fyrir alvarlegum slysum af þeim
sökum, að ótöldum fyrsta og annars-
stigs bruna í andliti. Sjóliðar sem
vinna í landi mega þó áfram nota rafsí-
garettur en þá á sérstökum reykingar-
svæðum.
Stöðvuðu för
Í apríl síðastliðnum þurfti stjórnstöð
danska sjóhersins, í samvinnu við lög-
reglu, að stöðva kaupskip á leið í gegn-
um Eyrarsund. Ástæðan var sú að megin
þorri áhafnarinnar að skipstjóra með-
töldum voru drukknir. Eftir að skipið
hafði verið í talstöðvarsambandi við land
mátti greina að þeir skipverjar sem rætt
var við voru undir áhrifum, vægt til orða
tekið, enda dröfuðu þeir illilega í sam-
tölunum. Lögreglan var fengin til að fara
um borð í skipið og kallaði hún þegar í
stað á aðstoð læknis til að taka blóðpruf-
ur af skipverjunum. Skipið, Wilson
Bergen, fékk að halda för áfram sólar-
hring síðar eftir að læknirinn hafði geng-
ið úr skugga um að allir skipverjar skips-
ins væru orðnir edrú.
Reiði í Álaborg
Mikill titringur er nú hjá hafnaryfirvöld-
um í Álaborgarhöfn eftir að Royal Arctic
Line (RAL) tilkynnti að þeir ætluðu að
færa starfsemi sína yfir til Árósa árið
2019 en útgerðin hefur hafið samstarf
með Eimskip. Það er einmitt þegar nýju
skipin fara að verða tilbúin sem verið er
að byggja fyrir þessar tvær útgerðir.
Samningur RAL er um að útgerðin hafi
starfsemi sýna í Álaborg alla vega til
ársins 2022 og hafa hafnaryfirvöld sagt
að þessi breyting eigi eftir að kosta út-
gerðina ekki undir 200 milljónum Dkr.
Samningur útgerðarinnar og hafnaryfir-
valda var gerður árið 2010 og fól í sér
verulegar fjárfestingar fyrir Álaborgar-
höfn sem reisti vöruhús auk þess að
stækka gámahöfnina. Fjárfesting sem
kostaði hundruð milljóna og nú sjá þeir
fram á að endurgjaldstímabilið verði stytt
um 3-4 ár. Því má búast við vaxandi
hörku í málinu nema ef vera skyldi að
samningar takist um aðra lausn.
Skipað til hafnar
Það er víða sem vandræði hafa skapast
sökum ölvunar um borð í skipum.
Flutningaskipið SALIX var nýlega skipað
að halda til hafnar í Bozcaada á Marm-
arahafi undir stjórn yfirstýrimanns skips-
ins og bíða þar. Ástæðan var sú að skip-
stjóri skipsins var í sambandi við vakt-
stöð siglinga þar í landi og hellti úr
skálum reiði sinnar um Erdogan forseta
landsins en það sættu vaktmennirnir sig
ekki við. Höfðu þeir þegar samband við
strandgæsluna sem fyrirskipaði að siglt
skyldi til hafnar. Skipt var um skipstjóra
á skipinu þegar til hafnar kom en skip-
stjórinn var tyrkneskur. Skipið var á leið
frá Berdyansk í Úkraníu á leið til Mersin
í Tyrklandi og var að fara í gegnum
Dardanellasundið þegar skipstjórinn lét
Erdogan heyra það.
Átök milli skipverja
Hnífaárás átti sér stað um borð í skipinu
Leah sem statt var í Atlantshafinu norður
af Skotlandi í byrjun maí. Deilur komu
upp á milli tveggja skipverja sem enduðu
með því að 32 ára Rússi var stunginn
tvisvar sinnum. Var hann sóttur af þyrlu
sem fór með hann á sjúkrahús í Storn-
oway. Leah var á leið frá Rotterdam til
Straumsvíkur og tóku hollenskir lög-
reglumenn á móti skipinu en þeir fóru
með rannsókn málsins. Leah hefur verið
í áætlunarsiglingum til Straumsvíkur frá
Rotterdam til nokkurra ára en skipið
siglir undir hollenskum fána.
Kyrrsetning
Yfirvöld í Sómalíu kyrrsettu nýlega
gámaskipið MSC Alice eftir að skipið
hafði dregið akkeri á legu fyrir utan
höfnina í Mogadishu. Það er ekki svo að
skip megi ekki draga akkeri heldur eru
grunsemdir um að akkeri skipsins hafi
slitið mjög mikilvægan streng sem lá
neðansjávar. Þann 24. júní sl. rofnaði allt
internet samband við landið og beindust
augu yfirvalda strax að gámaskipinu.
Sérfræðingar útgerðarinnar fóru þegar á
staðinn til að skoða, ásamt sérfræðingum
landsins, hvort mögulegt væri að skipið
hefði valdið þessum skemmdum. Áætlað
er að tjónið geti numið um 10 milljón-
um dollara á dag í töpuðum viðskiptum
meðan landið er netlaust en búist var við
að viðgerð myndi ljúka á vikutíma.
Lokadagar Costa Concordia
Niðurrif og endurvinnslu á óheillafleyt-
unni Costa Concordia er loksins lokið á
Ítalíu sem setur endapunktinn á það sem
talið er stærsta björgunarstarf siglinga-
sögunnar. Þeir aðilar sem önnuðust
niðurrif skipsins tilkynntu um miðjan
MSC Alice er talið hafa svipt Sómalíu netsambandi í heila viku.