Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2017, Page 47

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2017, Page 47
Þ róunarverkefni Hampiðjunnar og HB Granda hafa leitt af sér nýja trollhönnun, þar sem unnið var út frá því að fá sem mesta trollbreidd með sömu eða minni tog- mótstöðu. HAMPIÐJAN WIDE var hannað af Vernharði Hafliðasyni netagerðarmeistara og Einari Skaftasyni veiðarfærahönnuði hjá Hampiðjunni. Yfir- og undirvængir eru skornir með fjórum mismunandi skurðum sem gefur bogalögun á vængina í kring- um rokkhopperlengjuna. Við það opnast möskvarnir mun betur og falla vel að T90 möskvum í aftari belgbyrðunum og auka þar með breidd í trollið. Þrátt fyrir þessa nýja hönnun er breið- trollið einnig hugsað sem notendavænt í notkun. Megnið af trollefninu er úr grænu venjulegu Magnet neti, þar á meðal er fyrsta spólan í belgnum en þar fyrir aftan tekur við T90 þvernet. Reynslan af T90 neti hefur leitt í ljós að það hentar ekki öllum, sérstaklega í viðhaldi og viðgerðum en að öðru leyti frábært til að minnka viðnám og auka útflæði úr trollinu. 5 stærðir Hampiðjan býður upp á fimm stærðir í HAMPIÐJAN WIDE. Það stærsta er með 125 metra strekkt ummál. Við prófuðum 67 metra trollstærðina í tilraunatanknum í Hirsthals í fyrravetur sem er minnsta trollstærðin og hentar vel fyrir skip með 20 til 30 tonna toggetu. Skipstjórar á Höfrungi III, frystitogara HB Granda, voru fyrstir til að taka hið nýja 94 metra troll í notkun um síðustu áramót. Það mælist með 6 metra höfuðlínuhæð á 3,5 mílna toghraða og við gerum ráð fyrir að 125 metra trollið nái að minnsta kosti 7 metra höfuðlínuhæð á sama toghraða. Samkvæmt mælingum á Höfrungi III eru þeir að fá um 20% meiri breidd á þverveginn „en þeir hafa séð áður á svipuðum trollgerðum áður, “ segir Einar Skaftason. Með því að nota T90 þvernet í belgnum hefur tekist að minnka verulega efnismagnið sem þar af leiðandi léttir troll- dráttinn til mikilla muna á togi. Haraldur Árnason og Arnar Haukur Ævarsson, skipstjórar á Höfrungi III, hafa eins og áður sagði notað HAMPIÐJAN WIDE frá ársbyrjun „og eru mjög ánægðir með þær niðurstöður sem þeir fengið,“ sagði Einar. „Þeir hafa hingað til notað Hemmer trollið og segja að HAMPIÐJAN WIDE sé með svipað átak á togvírum, þrátt fyrir að þetta sé töluvert stærra troll sem þeir eru að draga með sömu Thyborön hlerunum,“ sagði hann og bætti við að nýja Engey muni einnig byrja með HAMPIÐJAN WIDE þegar þegar hún fer til veiða. „Niðurstöður hingað til hafa verið mjög uppörvandi,“ sagði hann og bætti við að trollið hafi verið hannað fyrir botnfisk- tegundir sem veiðast á Íslandsmiðum en gæti einnig hentað ýmsum öðrum tegundum. Nýja breiðtrol l ið HAMPIÐJAN WIDE frá Hampiðjunni Sjómannablaðið Víkingur – 47

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.