Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2008, Blaðsíða 8

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2008, Blaðsíða 8
8 - Sjóm­annablaðið Víkingur­ Súganda í þessu veðri radarlaus og spurði hvort við gætum leiðbeint honum þangað inn. Ég sagði honum strax að ég treysti mér ekki til þess en skyldi reyna að lóðsa hann inná Önundarfjörð sem hann þáði með þökkum. Akkeri var létt í skyndi og haldið út. Gyro kompás var ekki í Maríu Júlíu og miðanir voru framkvæmdar þannig að þegar miðun tókst á radar eða miðunarstöð var kallað NÚ til mannsins við stýrið er las þá stefnuna af stýrikomp- ásnum. Hornið um bakborð eða stjórn- borð var svo heimfært uppá stefnuna. Þegar við vorum komnir á stefnuna út fjörðinn byrjuðum við strax að miða þá á „radiomiðunarstöðina“ og fljótlega þóttumst við þá nokkuð vissir um að þeir voru þá ca. NV af Sauðanesinu og gáfum þeim fyrstu stefnu inn fjörðinn og gerðum ráð fyrir 25 gráðum í drift. Radarar voru á þessum tíma mjög ófull- komnir miðað við slík tæki í dag og að mér setti nokkurn ugg hvort okkur myndi takast að sjá þá í radarnum okkar við þessar aðstæður, haugasjór, stormur og mikil snjókoma. Til þess að hægt sé að sjá endurvarp frá bát við þessar aðstæður þurfa nokkur atriði að smella saman. Þau helstu eru að: a) sendigeislinn geti hitt bátinn (fari ekki upp í loftið eða niður vegna veltings), b) báturinn sé ofarlega í öldu (í sjónmáli radars) þegar geislinn fer yfir stað bátsins og c) báturinn halli ekki mikið þegar geislinn hittir hann. Ég ákvað því að að reyna að halda snúnings- fleti radarloftnetsins eins mikið láréttum og mögulegt væri með því að sigla fram og aftur (upp í og undan öldunni er lagði inn fjörðinn) á hægustu ferð, nokkru innan við Sauðanesið. Þannig taldi ég mestar líkur á að ná þeim á radarinn því mér hugnaðist ekki að treysta eingöngu á miðunarstöðina. Hér fylgja þær miðanir sem bókaðar voru: kl 2230 mv. 343° , kl 2255 mv. 325°, Kl 2310 mv. 315°, kl 2320 mv. 311°og kl 2350 mv. 316°. Hvar er bryggjan? Og viti menn. Eftir heila eilífð að mér fannst – um kl 2300 held ég - sást lít- ill punktur innan um endurvörpin frá brotsjóunum sem sást svo aftur – og aftur – nei og aftur og við gátum gefið þeim nýja stefnu inn fjörðinn. Við vorum þá 3,6 sml utan við Flateyri, 1 sml frá N- strönd fjarðarins og F.G. var 3,2 sml utan við okkur. (Þeir voru á hægustu ferð og mig minnir að við höfum dregið 20° frá stefnunni til viðbótar fyrir drift sem þá var orðin 45°. Þegar þeir breyttu stefn- unni inn fjörðinn snerist endurvarps- flötur bátsins og hann sást mun verr. Já, ég missti hann alveg út af radarnum um stund og það hvarflaði að mér að eitthvert brotið hefði gleypt hann, en þeir svöruðu strax kalli frá okkur). Ég lét þá sigla norðan við miðjan fjörð til að hafa meiri tíma til viðbragða ef vélin bilaði hjá þeim. Við misstum þá alltaf út af radarnum á snúningnum og eftir einn snúninginn út um þegar þeir voru komn- ir inn á móts við Sauðanesgrynningar, fann ég þá ekki þar sem þeir áttu að vera. Ég spurði þá hvort þeir hefðu nokkuð breytt um stefnu eða ferð. Skipstjórinn sagðist vera á sömu stefnu en hafa farið að keyra meira þegar sléttaði sjóinn. Þá sá ég bátinn sem var þá kominn all nærri landi rétt innan við Sauðanesið, bað þá beygja hart í stjór og gaf þeim nýja stefnu inn fjörðinn. Við fylgdumst svo með þeim í rad- arnum og biðum eftir þeim rétt utan við Flateyrar-oddann. Þar var logn en mikil snjókoma. Ég leiðbeindi honum að skutn- um svo hann sá skutljósið okkar og svo héldum við á hægustu ferð að bryggju. Ég lagði svo bakborðsbóg að bryggjukant- inum rétt innan við ytra bryggjuhornið og beið svo eftir að Friðbert Guðmundson kæmi fram með stjórnborðssíðunni og að bryggju. En það dróst. Ég sá ljósið í frammastrinu hjá honum og stefnið um 2-3m frá skut Maríu Júlíu þar sem hann var stopp og spurði því í talstöðinni hvort hann ætlaði ekki upp að bryggjunni. „Jú, jú,“ sagði skipstjórinn, „en hvar er hún?“ Hann hefur í stýrishúsinu ekki verið meira en 50-55 m frá ysta bryggjuljós- inu en sá það ekki. Svona þétt var nú snjókoman. Þetta var kl 0107 föstudaginn langa 12. apríl 1963. Við lögðumst svo aftur fyrir akkeri á sama stað. Spáin rættist ekki – sem betur fer Áhlaup eins og þetta, sem var spáð í hálf fimm veðrinu, verða þegar lægð vest- an Grænlands leiðist allt í einu veran þar, skeiðar yfir jökulinn og eflist verulega á niður-leiðinni. Svona sinnaskiptum lægða er mjög erfitt að spá. Ég minnist þess að eitt sinn seinni part vetrar (1968 eða 9) vorum við á v/s Þór búnir að vera marga klukkutíma að mjakast í gegnum hafís frá Óðinsboða á leið fyrir Horn. Vorum að koma frá að flytja séra Pétur Sigurgeirsson frá Dalvík til Grímseyjar. Leikurinn hafði borist eftir lænum upp undir land austur af Hornbjargsvita og sóttst seint. Oft þurfti að stjaka við jökum. Ljóskastara var ekki hægt að nota vegna ísþoku og lænur sem sáust í radarnum reyndust stundum bara vera skuggar af ísröst eða ruðningi nær okkur. Þarna var logn og ládautt, klukkan að verða eitt eftir miðnætti og mér datt í hug að kasta akkeri í blíðunni og bíða birtu. Beið samt eftir spánni kl. eitt sem ég gleymi ekki: „Gengur skyndilega í NA ofsaveður með snjókomu.“ Akkerunum var auðvitað haldið inn- anborðs og við mjökuðumst áfram og vorum komnir út úr ísnum út af Horni í sama logninu um kl. 0330. Ofsaveðrið kom aldrei. Mér fannst ólíklegt þá að Þór myndi þola þá miklu pressu og þrýsting sem yrði á síður hans ef við værum enn í ísnum þegar óveðrið skylli á. Sú skoðun hefur ekki breyst. Ég spurði Borgþór Jónsson veðurfræð- ing seinna af hverju hann hefði spáð þessu ofsaveðri sem aldrei kom. Hann sagði að fall loftvogar í Angmagsalik og Scoresbysundi hefðu gefið svo ákveðnar vísbendingar um að lægðin væri á leið yfir jökulinn og að ef svo hefði orðið þá hefði spáin kl. 0430 komið of seint. Gúmmíbátur kemur að síðu Maríu Júlíu. Ljósmynd: Helgi Hallvarðsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.