Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2008, Side 9
Við vorum ennþá á Önundarfirði
um hádegið á föstudaginn langa
þegar Óðinn kom þar við á suð-
urleið. Veður hafði þá gengið
niður. Þórarinn heitinn Björnsson
skipherra sagði að þeir hefðu lent í
aftakaveðri með biskupinn á norður
leið og hefðu orðið að berja af sér
klaka í vari undir Látrabjargi því
Óðinn hefði verið orðinn svagur.
„Er biskupinn enn um borð hjá
þér?“ spurði ég.
„Nei góði,“ sagði Þórarinn, „það
var mikil Guðs blessun að losna við
hann.“
Það var hjátrú margra á þessum
árum að prestar um borð í skipum
orsökuðu fárviðri.
Í þessu páskahreti fórust 16
íslenskir sjómenn á svæðinu frá
mynni Eyjafjarðar að Garðskaga.Um borð í Óðni III. Tryggvi Bjarnarson háseti á
brúarvæng. Ljósmynd: Valdimar Jónsson
Hér kemur svo lýsing Einars
Guðnasonar skipstjóra á ferðinni
frá Ísafirði í fyrrnefndu Páskahreti.
Upptakan fór fram í ágúst 2007. Einar
er fæddur 6. nóvember 1926.
Vildi komast í páskafrí – en
Botnsheiðin var ófær
Aðdragandinn að þessari ferð okkar
má segja að sé er ég var heima hjá mér
að morgni Skírdags 1963. Þá kom til mín
Ísfirðingur sem reri með mér þennan
vetur og langaði til að vera heima hjá sér
yfir Páskahátíðina, en við vorum komn-
ir í páskafrí. Ég vildi nú gjarnan leyfa
honum það og skutla honum norður, en
Botnsheiðin var ófær eins og reyndar oft
var á þessum árum. Veður var jú þannig
að hann var nokkuð brælulegur og ég
man að barómetið heima stóð mjög illa,
eða 972 mm. Nú jæja, við fórum svo
af stað til Ísafjarðar um tíuleytið um
morguninn. Radarinn var í einhverju
ólagi eins og oft var á þeim tíma og
ég hugðist nota ferðina og reyna að fá
einhverja hressingu fyrir hann hjá við-
gerðarmanninum á Ísafirði. Hann kom
strax um borð og var að snudda í honum
fram eftir degi. Ég man ekki nákvæmlega
hvað klukkan gæti hafa verið þegar við
fórum frá Ísafirði, get ímyndað mér að
það hafi verið á milli kl. 5 og 6. Mér er
það minnisstætt líka að þegar við vorum
á leið út djúpið þá mættum við varðskipi
þarna undir Óshlíðinni, sem ég held að
hafi verið Óðinn og ég vissi að varðskip
var væntanlegt til Ísafjarðar með bisk-
upinn því hann átti að fara að vígja kirkju
inn í Súðavík.
Svo held ég nú áfram út með land-
inu eins og leið liggur og það var svona
kafalds-hraglandi og bara tiltölulega
hægur en þegar við vorum komnir svona
útundir Bolunga-víkina þá er hann far-
inn að leiða asskoti þykkan sjó inn og
ég finn að það muni kominn haugasjór
útifyrir. En hann var svona hæglátur og
ég hafði landkenningu þarna út með, og
radarinn líka þangað til vorum komnir
út fyrir Deild og út á siglingaleið vestur
með. En þá er nú bara eins og hendi veif-
að að það er kominn svoleiðis þreifandi
Í þreifandi byl
Þórarinn Björnsson skipherra um borð í Óðni III
1966. Ljósmynd: Helgi Hallvarðsson