Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2008, Qupperneq 10

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2008, Qupperneq 10
10 - Sjóm­annablaðið Víkingur­ sorta bylur og öskrandi rok, og sjólagið eftir því. Það var alveg foráttu brim. Svo þegar við erum búnir að dóla þarna vestur með landinu, ja við keyrðum nú fulla ferð þarna fyrst þá fer ég að hugsa að við gætum verið komnir nokkuð vest- arlega, því það muni hafa gengið nokkuð vel undan þessum ósköpum og ég var að giska á að við myndum vera komnir á móts við Galtarvitann að ég minnka við ferðina og reyni að sjá eitthvað, en það sást bara ekki nokkur skapaður hlutur, það sást bara ekki út úr augunum í orð- sins fyllstu merkingu og radarinn þá far- inn út líka, svo ég hafði enga landkenn- ingu. Og við þessar aðstæður var alveg vonlaust að ætla sér að fara þarna inn á fjörðinn, það var algjört glapræði, því ef maður hitti ekki rétt á þá var það bara beint í fjöruna því það sást ekki neitt. Helvítis loftnetið slitnaði Við vorum ekki vel mannaðir, við vorum þrír um borð, bróðir minn sem Guðmundur hét, ég gat látið hann vera við stýrið, hann var vanur sjómaður og var búinn að vera skipstjóri og var ágæt- is stjórnandi. En einn var alveg óvirkur hann var bara í koju. Ég var svo að velta fyrir mér hvað við gætum eiginlega gert, var helst að hugsa um að setja út bauju, og andæfa við hana en sá fljótt að það væri vita vonlaust því það sást ekkert og ég var farinn að velta fyrir mér hvern fjandann við gætum eiginlega gert í stöð- unni þegar Guðmundur stakk upp á að kalla í varðskip, hvort það gæti verið hérna einhversstaðar nálægt og þá vissi ég náttúrlega að ég hafði mætt varðskipi í Djúpinu og það hlaut að vera á Ísafirði. En það var nú sama, ég kalla í varðskip og fæ undireins svar. Og þá er það María Júlía sem var þá inná Önundarfirði. Ég spurði þá hvort þeir gætu leiðbeint okkur til lands og skipherrann tók vel í það, hann skyldi gera það sem hann gæti og reyna að miða okkur inn og mér fannst það bara ágætis lausn en mér fannst eftir stefnunni sem hann gaf okkur þarna fyrst að við hefðum verið komnir alveg á móts við Sauðanesið og svo var farið að færa sig nær landinu sem ekki gekk nú of vel því það var ekki hægt að keyra nokk- urn skapaðan hlut og við höfðum nóg að gera við að verja bátinn áföllum og ég var látinn vita hvað við áttum að stýra, (loftskeytamaðurinn á varðskipinu) en Guðmundur var við stýrið og gerði það sem hann gat og gerði það vel að forða vandræðum, en þá vill ekki betur til en svo að ég sé að það sendir ekkert út hjá mér. Þá hafði helvítis loftnetið slitnað. Og ég var nú ágætlega kunnugur þarna upp á þakinu á stýrishúsinu og mér fannst lík- legt að það hefði slitnað við inntakið sem reyndist svo rétt vera er ég hafði brotist upp á þakið í þessum andskotans látum. Og einhvern veginn æxlaðist það þannig að ég náði í loftnetið og gat tengt það aftur. Gat losað róna á inntakinu, komið endanum undir og hert. Þegar ég var svo búinn að klúðra þessu svona saman þá er ég búinn að redda sambandinu við varð- skipið og þá gat hann farið að miða mig aftur. En hann sagði mér seinna að hann hefði haft alltaf signalið frá okkur þó hann hafi ekki heyrt í mér. Lunningafullur af klaka Svo erum við að dóla þarna inn og djöfullinn hafi það, það sást ekki nokk- ur skapaður hlutur og hörkufrost, það var eins og frysi hver einasti dropi sem kom inn á bátinn. Ég sá það í hendi mér að hefðum við ekki fengið þessa aðstoð við að komast þarna inn að þá var ekk- ert annað að gera en að lensa, bara eins rólega og maður gæti, halda bara undan þessum ósköpum. En þá hefði ég þurft að færa mig aftur frá landinu til að vera nógu djúpt til að fara fyrir Barðann. En allt gekk þetta vel fyrir sig og endaði með því að skipherrann á varðskipinu sagði mér að við værum komnir alveg til sín. En það var alveg sama, ég sá ekki neitt, og ég man nú ekki alveg hvort hann sagði að það væru bara nokkrir metrar á milli okkar, mig minnir það nú og þá fer ég að grína og grína og þá loksins sé ég aft- urljósið á varðskipinu en þá voru bara 2-3 metrar á milli. Og svona gátum við elt þá innfyrir Flateyraroddann eins og hundur í bandi. Og svo segir skipherrann að hann sé kominn hérna að bryggjunni, hvort ég sjái ekki ljósin á henni? Neei, nei, ég sá ekki neitt og þá segir hann: „Renndu hérna fram með stjórn- borðs síðunni á okkur, ég ætla að legg- jast fyrir akkeri útá.“ Og það stóð heima. Ég var kominn á móts við bóginn á þeim þegar ég sá bryggjuljósin. Og þá var náttúrlega hægur vandi að komast það sem eftir var. Og þá var ég svo heppinn að bróðir minn sem bjó á Flateyri hafði haft fregn- ir af því sem var að gerast og hann var kominn þarna fram á bryggju til þess að taka á móti okkur og hjálpa okkur að binda, en það var vandamálið þá, það var að ná endunum því báturinn var lunn- ingafullur af klaka. Alveg hörmung að ná upp endunum. En það tókst nú fyrir rest og þar með var þetta búið. Við fórum heim til bróður míns og fengum þar góðar viðtökur. En kl 7 um morguninn þá er bara komið allt annað veður, frostlaust og svona einhver mygl- ingur en alveg frostlaust og við beina leið heim aftur. Og mig langar að segja það að ég verð áhöfninni á Maríu Júlíu ævinlega þakk- látur og hef alltaf haft mikið álit á varð- skipsmönnum okkar. Þetta eru hörkusjó- menn sem kunna sitt fag og eru alls góðs maklegir. Ég tek alltaf þeirra málstað ef ég heyri á þá hallað. Friðbert Guðmundsson við bryggju fyrir vestan.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.