Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2008, Side 12

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2008, Side 12
12 - Sjóm­annablaðið Víkingur­ 1 Úti var niðamyrkur og 56 stiga gaddur. Hraðinn 877 kílómetrar og hæðin rúmlega tíu. Ég var uppi yfir fjöllunum austan við Ankara á leið austur til bæjarins Trabzon. Það var miður apríl, árið var 2007. Ég hafði verið sextíu ára í tæpan mánuð, var níutíu og eitt kíló að þyngd og að leggja af stað í annan áfangann á Silkileiðinni á reiðhjóli. Árið áður hafði ég hjólað frá Istanbúl með Tyrklandsströnd Svartahafsins til Trabzon, sem er austur undir landamærum Georgíu. Endur fyrir löngu hafði Trabzon verið miklu merkari staður en óræktarlegi bærinn sem er þar núna. Þá var það miðstöð gríska ríkisins Pontus með höfuðkirkjum og keisarar sátu bak við óvinnandi borgarmúra. En jafnvel óvinnandi borgarmúrar falla og Tyrkir settu síðasta keisarann af litlu eftir að þeir lögðu Konstantínópel undir sig um miðja fimmtándu öldina. Löngu seinna, eða upp úr fyrri heimstyrjöldinni, hröktu þeir burt Grikkina sem höfðu búið þarna frá því áður en Jesús fæddist og nú er fátt grískt að sjá í borginni nema grónar rústir. Í fyrra hafði ég átt stefnumót í Trabzon við vin minn og ferðafélaga, Guðjón Magnússon. Við snerum þá baki við Svartahafinu, hjól- uðum um há skörð suður yfir tætt og ber Pontusfjöllin upp í hálendi Anatólíu og þaðan vestur um hið undarlega landslag Kappadókíu og til Istanbúl á ný. Nú var ég aftur á leið til Trabzun einn í för en þaðan ætlaði ég að þessu sinni að hjóla austur um Kákasuslöndin og að Kaspíahafinu. Þar næsti áfangi yrði austur um Mið- Asíu til Kína. Stefnan var háaustur og komið fram yfir miðnætti. Ég hafði verið daglangt á leið- inni, rogast með reiðhjól, kerru og farangur um flugstöðvar og borgað yfir- viktir. Meðferðis hafði ég Passíusálmana í vasabrots- útgáfu því í svona ferð þurfa allar föggur manns að vera bæði kjarngóðar og nettar. Strax í fyrsta sálmi tilkynnir Hallgrímur umbúðalaust: .... bænarlaus aldrei byrjuð sé burtför af þínu heimili. Það dylst ekki glöggum lesanda að hann hefur talað flátt og sagt heimile. Þegar ég fjórum árum fyrr lagði af stað hjólandi frá Gdansk í Póllandi suður til Istanbúl hafði gamall kunningi minn, Sverker, sókn- arprestur á Gotlandi, lesið yfir mér ferða- bæn. Að minnsta kosti milljón bílstjórum höfðu síðan gefist góð færi á að keyra yfir mig en allir létu það ógert. Sautján hundruð hunda sárlangaði að bíta mig, því einhverra hluta vegna fjandskapast hundar út í hjólreiðamenn með kerru, sumir gerðu heiðarlegar tilraunir til þess en aðeins einum tókst það. Bæn Sverkers hafði reynst vel og ég afréð að láta hana duga þennan áfanga líka, enda þótt séra Hallgrímur gefi í skyn að öruggara sé að endurnýja hana í upphafi hvers áfanga, en séra Hallgrímur var nú einu sinni hálf- gerður bænafíkill. Leiðin sem ég fór frá Gdansk suður til Istanbúl var einhver elsta verslunarleið- in í Evrópu, stundum kölluð Rafleiðin. Hálfgerðir villimenn sem bjuggu norður við Eystrasalt prikuðu upp með Vislu og yfir Karpatafjöll með húðir, stund- um þræla og þó einkum raf sem þeir tíndu upp á ströndunum til að selja þetta Grikkjum, Rómverjum og jafnvel Egyptum fyrir góðan pening. Um ferð mína eftir Rafleiðinni hafði ég skrifað bók sem hét Með skör járntjaldsins. 2. Núna var ég á Silkileiðinni en hún var elst og öldum saman mikilvægasta versl- unarleiðin milli Evrópu og Austurlanda fjær. Burðardýr, sem oftast voru úlfaldar, fluttu varning að austan sem ekki var til fyrir vestan og öfugt; einkum silkið sem Kínverjar kunnu að búa til. Rómverjar voru heillaðir af silki; eitt sinn elti rómverski herinn undir stjórn Crassusar ókunna hersveit á flótta við austurmörk ríksins nálægt Carrhae. Það voru Parþar. Rómverjar höfðu yfirburði og voru sig- urvissir svo þetta var bara orðin spurn- ing um mínútur. En þá staðnæmdust flóttamennirnir óvænt á hæðarbrún og röktu sundur stóra fána sem þeir höfðu meðferðis og þetta undursamlega skærlita efni, sem var á mörkum vefnaðar og andrúmslofts, flögraði létt eins og reykur í vindinum. Rómverjar höfðu ekki áður séð silki og í einhverri blöndu af undrun og hrifningu stönsuðu eftirreiðarmennirnir, misstu kannski ekki kjarkinn en einbeit- inguna og stefnufestuna því aldrei höfðu þeir séð annað eins. Þeir ráku flóttann ekki frekar en þegar heim kom sögðu þeir frá þessu undarlega efni og öldum saman voru Rómverjar sólgnir í, beinlínis háðir, þessum guðvef austan úr Kína. Silkileiðin var ekki einn vegur heldur margir, en þeir lágu í meginatriðum frá Kína, um Mið-Asíu vestur til Evrópu eða Austurlanda nær og öfugt. Það er varla hægt að tiltaka hvar þessi leið byrjaði né hvar hún endaði. Frá Kína séð var það oftast í borginni Xian. Núna er sú borg frægust fyrir að þar lét keisarinn Qin Shi Huang grafa mörg þúsund sérsmíðaða hermenn úr leir í fullri líkamsstærð og með alvæpni ofan í jörðu, til þess að hafa þá til taks þegar og ef hann þyrfti heyja stríð í hinu næsta lífi. Hann hefur verið friðsamari í því lífi en þessu, því aldrei kvaddi hann þetta varalið sitt í stríð. Leirmennirnir biðu þolinmóðir undir grassverðinum þar til fátækur bóndi rak skófluna sína í höfuðið á einum þeirra, Jón Björnsson Spölur af silkileiðinni Ayasofia kirkjan frá grísku öldunum í Trabzon. Skipasmíðar í Trabzon.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.