Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2008, Blaðsíða 14

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2008, Blaðsíða 14
14 - Sjóm­annablaðið Víkingur­ elskusemi. Hann tók því ekki illa, skaut inn eins atkvæðis orði á stangli, yfir- bótavilji hans var auðfundinn. Ég bjóst við að konan hefði brugðið sér fram einmitt þegar ég kom inn og fór að svipast um eftir henni en þó að hún væri nærstödd sá ég hana hvergi. Var hún dvergur og í hvarfi við manninn? Ég hallaði mér til hliðar, kíkti undir stólinn hans en þar var engin kona. Kraup hún bak við lágt afgreiðsluborð innst í herberginu? Var hún í öðru herbergi og talaði gegnum lúgu? Töluðu þau við í innanhúskallkerfi? Ég hvarflaði augum um allt herbergið, kann- aði alla felustaði fullvaxinna jafnt sem dverga, áður en rann upp fyrir mér að þetta var tveggja manna tal flutt af einum. Maðurinn hafði búið sér til konu til að tala við, til að leiðbeina sér og hafa á sig betr- Í fglda þegar hann var að pæla akurinn sinn árið 1975. Silkileiðin lá svo frá Xian vestur eftir Kína, sunnanvert við múrinn mikla, og þegar úlfaldalestirnar höfðu farið út um Jaðihliðið í borginni Dunhuang tók við eyðimörkin óttalega sem heitir Takla Makan. Sumir kræktu suður fyrir hana, aðrir norður fyrir undir hlíðum Tien Shan, sem þýðir „himnesku fjöll“, en þeir djörfustu fóru þvert yfir hana og voru á sandi í meira en mánuð. Þeir voru þá komnir í lönd Úigúra, sem er tyrknesk þjóð, þar sem heitir Sinkíang og er vestasti hluti Kína. Þá tóku við firnahá skörð og vandrötuð yfir til landanna sem nú heita Kýrgístan og Úzbekistan og eru fyrrver- andi Sovétlýðveldi. Kaupmennirnir gistu og hvíldust í sæluhúsum sem voru byggð kringum opinn garð; karavanserai hétu þau eða han. Uppi voru íveruherbergi, niðri básar handa úlföldunum og í garðinum var bænahús og samkomustaður þar sem langferðamennirnir skiptust á vörum og sögðu tíðindi; hvernig verð væru á mörk- uðunum, hvar væru viðsjár, hvar stigamenn. Silkileiðin lá um borgirnar Samarkand og Búkhara, vestur eyði- merkurnar að ströndum Kaspíahafs, eða sunnan við það til Persíu. Og eftir ferð sem aldrei tók minna en ár, barst loks varningurinn á basarana miklu í Antíokkíu, Damaskus, Bursa eða Istanbúl og hann var nógu verðmætur til að borga allt erfiðið og hættunar; pund af silki kostaði pund af gulli. Núna var ég á þessari leið; ætlaði að Kaspíahafinu 2007 og vorið 2008 austur til Kína. Vonandi. 3. Annan daginn á Svartahafsströndinni, upp úr hádeginu renndi ég inn á afskekkta bensínstöð. Ég lagði hjólið upp að veggn- um á kytru þar sem seldar voru veitingar og tók af mér hjálminn. Út úr húsinu bárust hrókasamræður; karlrödd og áber- andi mjóróma kvenrödd. Ég gekk inn og tjaldaði þeirri tyrknesku sem ég kunni, Merhaba, góðan daginn, og bað um te; cay. Talið féll niður meðan miðaldra afgreiðslumaðurinn, dökkleitu, þunn- hærður, grannur, næstum horaður, hellti teinu í glasið. Á undirskálinni var einn sykurmoli. Í fyrra voru þeir ævinlega tveir, stundum þrír. Lýðheilsuátak? Ég settist yfir teið og fór að glugga í landakort en maðurinn settist að hrísgrjónadiski sem hann hafði verið að borða af og sneri í mig baki. Þá hófst samtalið á ný og konan setti á langar ræður í mildilegum útásetn- ingartón. Það þurfti ekki að skilja orðin til þess að skynja að hún var að leiðbeina manninum og setja út á hann en af stakri andi áhrif. Notalegur nöld- urtónninn í konunni og art- arlegt hnussið í manninum bentu til að tilhugalífið væri að baki, ástarbríminn hefði nú þokað fyrir vana og vin- áttu, þau hefðu búið saman lengi, og yrðu saman til ævi- loka. Hvað sagði ekki séra Hallgrímur? Huggun er manni mönn- um að, miskunn Guðs hefur svo tilskikkað. 4. Aftur rann hjólið eftir götunni með ein- sleitar teplöntur á aðra hönd, flæðarmálið á hina og landamæri Georgíu fram undan. Vatnið var daufblátt og samlitt himninum svo úti í fjarskanum rann vatn og loft saman í eitt. Svartahafið stóð ekki undir nafni þennan dag. En nöfn eru tilvist- arsönnun og þurfa ekki endilega að vera réttnefni. Baskar eiga málsháttinn „Það sem á nafn, er til“, og það er engan veginn nóg fyrir landslag að vera til í raunheimi. Til þess að eignast stað í hugheimi, sem er bæði mikilvægari og ábyggilegri, þarf það að hafa heiti. Ekki endilega merkilegt heiti, því Miðnes og Háabrekka duga alveg eins vel og Feigðarboði eða Helgrindur, en sé landslag á annað borð komið á skrá undir nafni í hugheimi held- ur það velli glettilega lengi, og það eins þótt hin hægfara sjálfseyðing náttúrunnar geri út af við það. Steinboginn við Barðsnes austur heldur áfram að vera til í hugheimi þótt hann hafi nýlega hrun- ið í raunheimi og eins lifði Karlinn norðan við Drangey það af að hverfa í sjó fyrir meira en tveimur öldum. Svartahafið á sér ann- ars langa og margbrotna nafnsögu. Þegar Forn-Grikkir hófu að sigla þangað á öðru árþúsundinu fyrir Krist voru þeir komnir út undir heims- enda. Kjarni heimsins sem þeir þekktu var Miðjarðarhafið vestan frá Súlum Herkúlesar, sem við köllum Gíbraltar, og allt til austurstrandar þessa nýja hafs. Umhverfis þessi innhöf lágu meginlöndin en utan um þau ómælissjór eða úthaf, sem átti sér engin takmörk því á þessum tímum var jörðin ennþá flöt. Þvert yfir meginlöndin runnu nokkur stórfljót úr úthafinu í innhöfin. Fræðilega var hægt að sigla upp eitthvert þessara fljóta, til dæmis Níl og koma til baka eftir Dóná eða Don, en enginn hafði gert það, til hvers hefði það svo sem átt að vera? Nýja hafið kölluðu Grikkir Pontos Axeinos; dökka eða skuggalega hafið. Kannski var það af því það virtist dekkra á lit en hið grunna Nálægt Hopa, vestan landamæranna. Landamærastöðin í Sarpi, séð úr Georgíu. Terunnar í brekku.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.