Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2008, Page 17

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2008, Page 17
að kasta og flauta niður í vél og bið um að sett sé á „góða ferð“ þar sem vind- ur var nokkur og við toguðum á móti. Smyrjarinn, sem var að fara sinn fyrsta túr á togara, varð fyrir svörum og skildi ekki hvað átt var við með því að setja á „góða ferð“ og svaraði að bragði í fullri alvöru: „Takk fyrir, sömuleiðis.“ Það varð líka að áhrínsorðum. Við fengu ágætis afla í fjórum hölum í kjöl- farið, að mestu ágætis graðýsa. Á Langabar var stundum leitað fanga til að fá áhafnarmeðlimi. Þar sátu menn á ýmsum aldri, sem blönduðu sterkt í gosið og voru stundum shanghæjaðir um borð án þess að vita almennilega af sér fyrr en komið var út á rúmsjó. Einn var þar oft og jafnan fínn í tauinu en hafði ekki hafið sinn togaraferil að ráði enn sem komið var. Var nokkuð hvatvís til orðs og æðis en þekking á fiskverkun var kannski í lágmarki í byrjun, svo að hann var hafð- ur í pontinu, er hann rankaði við sér í sinum fyrsta túr. Eitthvað þótti skipstjóra vinnubrögðin við fiskvaskið vera óbeysin, svo að hann kallar ofan úr brúarglugga: „Þú verður að vaska fiskinn betur upp, strákur.“ Strákur svarar að bragði: „Á ég ekki að bursta í honum tennurnar líka?“ Hundurinn þoldi ekki menn í einkennisbúningi Og svo var það trillukarlinn, sem taldi sig þekkja þriggja nátta fisk frá tveggja nátta og einnar nætur fiski af því að hann vissi hvenær netin voru lögð. Hann var gjarnan spurður, hvað hann héldi að fiskurinn í pokanum á vörpunni væri gamall ... Að öðru leyti get ég tæplega sagt, að einn maður hafi verið öðrum minn- isstæðari á Agli. Hins vegar var hundur einn munstraður á Egil um tíma. Var það Schäferhundur frá Þýskalandi. Það þurfti að hafa hann munstraðan á skipið því að honum var óheimilt að hafa heimilisfang í landi. Hann varð ágætis vinur minn, mjög hændur að mér, grimmur vel, ef því var að skipta en hlýddi mér út í hörgul og lét sig jafnvel hafa það að baða sig með mér. Eitt fyrirbæri þoldi hann alls ekki en það voru menn í einkennisbún- ingi. Þá fór hann alveg á taugina, urraði og lét illum látum. Einhverju sinni var mállaus maður í áhöfn okkar og lágum við við Ægisgarð og vorum að dytta að einhverju. Skip var á milli okkar og bryggju en amerískt skip lá utan á okkur. Sá mállausi fékk eitt sinn leyfi til að fara í óleyfilega gönguferð með hundinn út í Örfirisey meðal ann- ars til að viðra hann, en þar var þá eins konar afréttur og engar byggingar þar. Á vegi þeirra var rolluhópur og taldi hund- urinn sig nú hafa fundið sér verkefni við hæfi, rífur sig af þeim mállausa og ræðst á rolluhópinn. Sá mállausi getur ekkert talað eða skipað fyrir ellegar komið upp neinni stunu yfirleitt til að koma stjórn á hundinn, sem fær tækifæri til að sýna innsta eðli sitt í rolluhópnum. Gengur hann svo frá einni rollunni að aflífa þurfti hana og endaði þetta mál í einhverjum skaðabótum. Það þurfti alltaf að hafa hundinn tjóðr- aðan og undir eftirliti, þegar hafsögu- menn komu um borð. Einhverju sinni í Þýskalandi slapp einn lóðsinn rétt inn fyrir hurð og gat lokað á eftir sér áður en hundurinn réðist á hann, en náði þó að glefsa í hælinn á þeim einkennisklædda áður. Ég tala nú ekki um ósköpin, þegar uppábúnir amerískir liðsforingjar gengu um garða. Þá ætlaði allt vitlaust að verða. – Hann hefur lítið verið fyrir hermont- ara, sá góði hundur? – Hreint ekki en mér afar vinsamleg- ur. Einhverju sinni vorum við í höfn og bjuggum við hjónin þá í Eskihlíð og hafði ég stolist til að taka hundinn með mér heim. Einhverju sinni vorum við að fara á ball og gat ég auðvitað ekki haft hundinn með enda sækja ekki aðrir hundar dans- leiki en mannhundar. Varð ég því að loka hann inni heima en skildi eftir skó af mér hjá honum til að halda honum frek- ar rólegum. Þegar ég kem aftur er hann búinn að naga skóinn minn í tætlur Hundur þessi var hins vegar hinn mest kattavinur. Við höfðum eitt sinn skipskött og var samkomulag hunds og kattar jafn- an hið bezta og léku þeir sér oft saman og voru hinir mestu mátar enda á ungum aldri, þegar þeir kynntust.. Ekki varð séð að dýrin væru nokkurn tíman sjóveik og undu að öllu leyti hag sínum vel um borð, einkum þó hundurinn, sem var flestra vinur og sérlega hændur að mál- leysingjanum. Hann virtist hafa einhverja skynjun, sem mannfólkið hefur ekki. Kötturinn stóð styttra við enda hafa kettir ólíkt skapferli og háttalag, vilja fara eigin leiðir og hentar ekki að lúta skipsaga. Englendingarnir stálu – Þar með hefur lokið þínum togara- ferli í sátt við hunda, ketti og menn. En gætum við ekki lokið þessu með því að þú segðir frá skipulagi veiðanna á þessum tíma, sölum og löndunum erlendis eins og þetta kom þér fyrir sjónir? – Á þessum tíma var iðulega siglt með aflann og var hreint ekki sama fyrir hvaða markað var verið að fiska. Það þurfti því Sjóm­annablaðið Víkingur­ - 17

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.