Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2008, Blaðsíða 24

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2008, Blaðsíða 24
24 - Sjóm­annablaðið Víkingur­ gamlar eru þær flestar og tæknilega börn síns tíma, segja þær einnig mikla sögu. I. bindi Fyrsta bindið fjallar, auk dálítils sögulegs inngangs, um upphaf síldveiða við Ísland á síðari hluta 19. aldar, þegar frændur okkar, Norðmenn, tóku sér sum- arbólfestu á Austfjörðum og Norðurlandi og veiddu síld, söltuðu og fluttu út. Sum árin var afli lítill, önnur mikill, eins og 1880, þegar 113 þúsund tunnur voru fluttar til Noregs og fjöldi Norðmanna, sem veiðarnar stundaði, komst hæst í rúmlega 1800 manns árið 1883. Tengsl frændanna urðu fljótt mikil og þekk- ing barst frá einni þjóð til annarrar. Þá er kafli um síldina sem beitu, varðveislu hennar í klakakældum geymslum, íshús- um eða frosthúsum. Enn er sagt frá gerð og búnaði í frosthúsunum, en þau munu flest hafa verið á Austurlandi. Næsti kafli fjallar um skip, veiðar, vinnslu og útflutn- ing. Hver er munurinn á skonnortu, jakt og galías? Þetta var auðvitað á tímum seglskipa og árabáta og munurinn á þess- um skipum er ágætlega skýrður í máli og myndum á bls. 86-87 og þar er sjón sögu ríkari. Þá er frásögn af veiðarfærum, lagnetum, kastnetum, reknetum, fyr- irdráttarnótum, landnótum, snurpunót og stauranót, sem nær öll heyra nú sögunni til er tekur til síldveiða. Þá er síldarsölt- unin tekin til umfjöllunar, vandkvæði við vinnslu og vöruvöndun eins það heitir nú til dags, vinnuaðstæður söltunarstúlkna Í síld á Siglufirði. Mynd: Síldarsaga Íslendinga Bernharð Haraldsson Silfur hafsins – gull ÍslandsRitverkið SILFUR HAFSINS-GULL ÍSLANDS, síldarsaga Íslendinga kom út fyrir síðustu jól. Merkt rit, þarft og fræðandi. Var reyndar kominn tími til að þessum hluta atvinnu- og menn- ingarsögu okkar væru gerð heildarskil. Ritið er í þrem bindum, alls 991 bls. og eru höfundarnir átta, sagnfræðingar, vís- indamenn og rithöfundar, allir kunnir á sínu sviði. Að baki ritinu liggur óhemjumikil vinna. Ekki er unnt að segja til hvenær hugmyndin fæddist. Hreinn Ragnarsson, kennari og sagnfræðingur, skrifaði loka- ritgerð sína við Háskóla Íslands um veið- ar og vinnslu síldar á árunum 1930-1935. Árið 1984 var hann ráðinn til að afla heimilda og með góðri hjálp frá frænd- um okkar, Norðmönnum, varð til mikill heimildabrunnur, sem ausið var drjúgum úr við gerð verksins. Þá er í ritinu urmull mynda, sem margar hverjar hafa ekki sést áður á prenti og er að þeim mikill fengur, því þó margar þeirra séu tækifærismyndir, fólkið á þeim óþekkt erfiðisfólk, áratuga
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.