Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2008, Qupperneq 30

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2008, Qupperneq 30
komin til sögunnar. Ljóslega var síldarleit úr lofti til mikils gagns fyrir sjómennina og hefur klárlega oft á tíðum orðið til að auka aflabrögðin, auk þess sem flugrek- endur höfðu af henni miklar og árvissar tekjur og nefnt er, hve miklu hún skipti Loftleiðir, þegar þeir voru að koma undir sig fótunum. Níunda kaflanna skrifar Steinar J. Lúðvíksson og fjallar um aflaskip og aflakónga. Sá kafli er augnayndi, sagt er frá aflahæstu skipunum á árunum 1936- 1967, ár af ári, myndir af fjölmörgum skipum, oftast drekkhlöðnum og helstu aflaskipstjórunum. Lesturinn vakti upp gamlar minningar og ekki þótti grein- arhöfundi verra að sjá myndir af aflaskip- unum Snæfellinu og Jörundi, stolti Akureyringa á sínum tíma. Hreinn Ragnarsson og Steinar J. Lúðvíksson skrifa lokakaflann, sem er annáll íslenskrar síldarsögu, frá árinu 1867, er fáein norsk skip hófu síldveiðar við Eyjafjörð og fyrir austan, en það ár var fyrsta skipið sektað fyrir ólöglegar veiðar, og allt til ársins 1998. Fróðleg og aðgengilegt yfirlit, sem gefur lesandanum glögga heildarmynd.. Þá eru í lokin myndir af þeim mönn- um, sem voru í forystu fyrir síldarútvegs- nefnd og síldarsaltendur auk ítarlegra heimildaskráa. Niðurlag Þegar lestrinum var lokið rifjaði greinarhöfundur upp sögu föðurættar sinnar til að sýna afkomendum sínum hversu mikinn þátt síldin átti í lífi þeirra. Föðurafi hans var Ólafur Jakobsson, sem fæddur var í Efra-Skálateigi í Norðfirði fyrir réttum 130 árum og missti móður sína fárra mánaða gamall og var alinn upp á hreppsins kostnað, lengstum hjá góðu fólki niðri á Eskifirði. Ólafur fór ungur í siglingar, sigldi um flest heimsins höf, komst meira að segja til Kína, fyrstur síns fólks, en ekki síðastur, því sonarson- arsonur hans hefur nú búið þar í meir en áratug, hlaut af flakki sínu viðurnefn- ið Ólafur ellefu-landa og settist að við Eyjafjörð, þar sem hann kynntist henni Kristbjörgu Jónsdóttur frá Gyðugerði í Flatey og saman komu þau 9 börnum til fullorðinsára. Ólafur hafði lifibrauð af sjómennsku, einkum síldveiðum á sumrin og netagerð á veturna og stofnaði netaverkstæði á Akureyri. Honum hefur hlotnast sá heiður, að vera með elsta syni sínum á stórri mynd í netaskúrnum á Síldarminjasafninu á Siglufirði. Allir synir hans, fjórir talsins, fetuðu í fótspor hans og tveir tengdasonanna. Síldin varð því lífsuppspretta þessara fjölskyldna eins og svo fjöldamargra annarra. Skrásetjari man það úr bernsku sinni er faðir hans fór á síld, en þó miklu betur er hann fór sumar eftir sumar að vinna við netagerð- ina á Siglufirði meðan síldarvertíðin varði. Veiddist lítið, var vetrarvinnan oft rýr, veiddist vel, lék allt í lyndi. Svona var lífið. Umræðan bræðranna var um síld og aftur síld, afkoman byggðist á þessum silfurlita, sprettharða fiski. Sjálfur man greinarhöfundur vel vorvinnuna, sem hann fékk sem unglingur á netaverkstæð- inu, lyktaði af tjöru, því þetta var í þá daga, var síðar sjálfur svolítið á síld, vann á síldarplani á Siglufirði, var þrjú sumur í „nótabrúki“ á innanverðum Eyjafirði, veiddi smásíld til niðursuðu í hringnót, það var fyrir daga kraftblakkarinnar og komst síðar að því, að það var síldin, sem var uppspretta tilveru hans. Öll umgerð verksins er vönduð, ríku- legt myndefni og aragrúi innskotsgreina gefa því góðan svip. Að baki því liggur áratuga vinna, sem ekki verður í tímum talin. Verkið kostar margar krónur út úr búð, en þegar það hefur verið lesið, sést hvað það er í raun ódýrt, því SILFUR HAFSINS-GULL ÍSLANDS er sannarlega þrekvirki. Höfundur var skólameistari Verkmenntaskólans á Akureyri. 30 - Sjóm­annablaðið Víkingur­ Með fullfermi. Mynd: Síldarsaga Íslendinga
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.