Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2008, Síða 34

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2008, Síða 34
þegar þau eru dregin úr hákarlinum, á þeim eru himinbláar slikjur eða litir og stundum sem bregði fyrir ýmsum fögrum himinlitum á þau sums staðar, en þetta hverfur undra skjótt þegar skíðin skilja við hákarlinn. Lífið um borð Tvö pláss voru fyrir menn á skipi, káeta og lúkar. Káetan var aftarlega í skipi en lúkarinn fremst. Lág yfirbygging var á þeim báðum sem nefnd var kappi, káetu- kappi og lúkarskappi, ekki hærri en svo að hægt var að sitja á þeim. Formaður og stýrimaður voru í káetu, stundum sá þriðji líka er hélt þá til í félagi við stýri- mann, og svaf í koju hans, en formaður hafði sér koju. Kaldranalegt var að fara upp úr volgum „kojum“ eða svefnbólum í vondu veðri, kannski frosti og hríð í svarta myrkri kl. 12 að nóttu og taka við vakt. Var það harðvítugur skóli fyrir viðvaninga en góður til hreysti og dugnaðar. Enda var aðeins um tvennt að velja fyrir viðvaning í hákarlalegum – annað hvort að duga eða drepast. Millivegur var þar enginn. Kl. 12 – 4 að nóttu var nefnd langa- vakt, henni stjórnaði formaður. Kl. 4 – 6, kl, 6 – 9 og kl. 9 – 12 voru vaktirnar. Vanalega skiptust menn á að standa við stýrið á vaktinni, klukkutíma í einu. Þegar kalt var og sama sem enginn byr leiddist mönnum það. En strax og fór að gola og vindur fyllti seglin varð stýrimað- ur glaður og fór að kveða, oftast sigl- ingavísur eins og þessar: Þenjast voðir, reiði, rá, rísa dætur Unnar, freyða boðar breiðum á brjóstum Hafsúlunnar. Sailor skríður sílajörð sveipaður þýðum voðum inn á fríðan Eyjafjörð undan stríðum boðum. Stóra mastrið stend ég við, storminn fast í góni, aflið rastar út á hlið öldu- kastar ljóni. Hinir á vaktinni hagræddu seglum. Menn reyndust misjafnlega byrsælir sem kallað var. Meðan siglt var eða ef legið var inni á höfnum tóku menn lífinu glaðir og gerðu sér margt til skemmtunar; ræddu saman, sögðu sögur, spiluðu á spil, sungu, kváðu o.s. frv. En þetta glaða líf breyttist skjótt í stranga alvöru ef lent var í hákarlahrotu og líka ef skall á óveður eða ef mikið var af ís er þurfti að varast. En allt hákarlalíf- ið var spennandi og ævintýraríkt, og fyrir það varð það öllum svo minnisstætt og að öllu leyti ógleymanlegt. 34 - Sjóm­annablaðið Víkingur­ Hákarl skorinn um borð í nútíma skuttogara. Ljósmynd: Þorgeir Baldursson

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.