Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2008, Side 38

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2008, Side 38
Aðalheiður Ámundadóttir Um Íslenska fiskveiði- stjórnunarkerfið og skyldu íslenska ríkisins til að virða álit Mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna 38 - Sjóm­annablaðið Víkingur­ Inngangur Mannré­ttindanefnd Sameinuðu þjóðanna var stofnuð skv. 28. gr. Alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg ré­ttindi [hé­r eftir „mann- ré­ttindasamningurinn“] sem Ísland er aðili að.1 Mannré­ttindanefndin gegnir fjölþættu eftirlitshlutverki. Hún tekur, í fyrsta lagi, við skýrslum frá aðildarríkj- unum og gerir tillögur um breytingar á framkvæmd hans ef þurfa þykir.2 Í öðru lagi tekur hún við ábendingum ríkja sem telja önnur ríki ekki framfylgja samningnum með fullnægjandi hætti.3 Í þriðja lagi tekur nefndin við erindum frá einstaklingum sem halda því fram að mannré­ttindi þeirra sé­u ekki virt. Heimild Mannré­ttindanefndarinnar til að fara yfir og meta erindi einstaklinga eru þó háð því að lögsöguríki viðkom- andi einstaklings hafi þegar samþykkt lögbærni hennar til þess.4 Þann 14. desember síðastliðinn birti Mannréttindanefndin álit, þess efnis að íslensk lög nr. 38/1990 (með síðari breyt- ingum)5 um stjórn fiskveiða, brytu í bága við mannréttindasamninginn. Áður en gerð verður frekari grein fyrir álitinu og hugsanlegum áhrifum þess, er rétt að stikla á stóru yfir sögu þessara laga sem hafa óumdeilanlega verið uppspretta nokkurar ólgu meðal þjóðarinnar sem varað hefur í hartnær aldarfjórðung. Allt frá upphafi Íslandsbyggðar og fram á seinni hluta 20. aldar stund- uðu Íslendingar sjósókn án afskipta stjórnvalda. Takmarkanir á þorsk- veiðum hófust árið 1977, að tillögu Hafrannsóknastofnunar, með lögum nr. 81/1976 (nú lög nr. 79/1990), um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Á árunum 1982- 1983 þótti ástand þorskstofnsins orðið það slæmt að frekari aðgerða væri þörf. Vænlegast þótti, „eftir víðtækt samráð sjáv- arútvegsráðuneytisins og hagsmunaaðila í sjávarútvegi“6 að takmarka veiðar með úthlutun aflakvóta til einstakra skipa. Með lögum, sem giltu til eins árs í senn, fengu Þorskanetin dregin á Bárði SH. Kvótakerfið, segir Aðalheiður, hefur búið til forréttindastétt á Íslandi, tiltekna útgerðarmenn sem mega ganga í þjóðarauðlindina, miðin við landið – þetta er ekki einungis gagnrýnivert af sjónarhóli jafnræðis, heldur einnig í ljósi atvinnufrelsis og búseturéttar, segir Aðalheiður.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.