Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2008, Blaðsíða 57
Sjómannablaðið Víkingur - 57
lystisemdum að bráð þar sem hún telst ekki lengur uppfylla
þær væntingar sem farþegar gera til siglinga í dag. Mun hún
nú hverfa af heimshöfunum en nafnið mun þó brátt prýða
nýtt skip því útgerðin tilkynnti í október að búið væri að
leggja inn pöntun fyrir 92 þúsund tonna skipi sem muni fá
nafnið Queen Elisabeth III. Þá verða þrjár drottningar á ný hjá
Cunard en nýlega varð sá einstaki atburður að allar drottn-
ingarnar, Elisabeth, Mary og Victoria voru samtímis í höfn í
Southampton. Aldrei áður hafa þessi skip verið öll í sömu höfn
á sama tíma áður.
Fölsun
Netið er til margs nýtilegt en það getur einnig orðið fólki
að falli ef ekki er rétt með farið. Nýlega uppgötvaði breska
siglinga- og strandgæslustofnunin (MCA) falsað skipstjórn-
arskírteini fyrir seglskútu (yachtmaster) sem kona ein hafði
útbúið fyrir sjálfa sig. Hún hafði fundið mynd af slíku skírteini
á netinu og breytti því þannig að það leit út fyrir að hafa verið
gefið út á hennar nafn. Falsaða skírteinið notaði hún síðan til
að leigja sér skútu til skemmtisiglinga. MCA hefur nú gefið
út aðvörun til réttindamanna að setja ekki myndir af atvinnu-
skírteinum sínum á Internetið. Konunnar bíður nú dómur fyrir
svikin.
Gámakranarnir fallnir í Felixstowe.
Hrundu niður
Það var heldur dökkur dagur í höfninni í Felixstowe í Englandi
þann 1. mars s.l. Fyrir þá sem ekki þekkja til Felixstowe þá er
þetta stærsta gámahöfn þar í landi og tók á sínum tíma við af
London sem umskipunarhöfn. Skip Eimskipafélagsins sigldu
til margra ára á þessa höfn. En nú að fyrsta degi marsmánaðar.
Mikið óveður gekk þá yfir Suffolk hérað og náði vindhraði allt
að 27 metrum á sekúndu. Í höfninni lá þá stundina all sérstakt
skip sem er hannað sérstaklega til flutninga á gámakrönum.
Hafði skipið, Zen Hua 23, komið deginum áður eftir tveggja
mánaða siglingu frá Kína með fimm risavaxna gámakrana.
Aðeins þrír þessa krana voru ætlaðir höfninni í Felixstowe og
fögnuðu menn mjög svo komu skipsins enda orðinn hörgull
á gámakrönum við höfnina. Í óveðrinu vildi ekki betur til en
að landfestar skipsins slitnuðu með þeim afleiðingum að skip-
ið rak meðfram bryggjunni sem það lá við og er talið að einn
krananna um borð hafi rekist í krana í landi með þeim afleið-
ingum að hann hrundi. Skömmu síðar hrundi svo annar krani
sem var næstur þeim sem hafði áður fallið.
Í valnum lágu sem sagt tveir risavaxnir gámakranar en lánið
í óláninu var þó að enginn slasaðist þar sem öll vinna lá niðri
sökum veðurs. Víst er að hafnaryfirvöld þurfa að bíða nokkuð
til viðbótar eftir gámakrönum enda eru slík verkfæri engin smá-
smíði og tímafrekt að flytja þá milli heimsálfa.
Nýtt hlutverk
Hraðskreiðasta farþegaferja allra tíma, Finnjet, hefur nú verið
seld frá Finnlandi en hún var í eigu Silja Line skipafélags-
ins. Hin 32 þúsund tonna ferja sem smíðuð var árið 1977 var
búin gastúrbínum sem gáfu henni ganghraða upp á 33 hnúta.
Eitthvað kostaði síðan sopinn á skipið því árið 1981 voru gast-
úrbínurnar teknar í land og hagkvæmum diesel vélum komið
fyrir í þeirra stað. Var þá ekki lengur sama hraða náð og áður en
skipið sigldi á þessum árum milli Helsinki, Travemunde og síðar
Rostock.
Árið 2005 hélt skipið reyndar úr Eystrasaltinu yfir til
Bandaríkjanna þar sem því var lagt í Baton Rouge sem húsnæði
fyrir háskóla í kjölfar fellibylsins Katarínu. Nú hefur skipið
verið selt til Ítalíu og fengið nafnið Da Vinci’s. Ekki er vitað
hvað á að gera við skipið annað en að það er komið til Genúa
þar sem búist er við að umtalsverðar breytingar verði gerðar á
því. Hugsanlega mun það breytast í skemmtiferðaskip sem mun
lenga líftíma skipsins svo um munar.
Klettháls 15 - 110 Reykjavík
Sími: 588 8881 - Fax: 588 8944
Heimasíða: jonbergsson.is - E-mail: orn@jonbergsson.is