Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2010, Qupperneq 9

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2010, Qupperneq 9
leynir sér ekki, menn vita, hvað má bjóða skipinu. Þá er hættuástand, allir sendir út að berja. Leggist hann á hlið- ina, þá er farið að styttast í það og betra, að ekkert klikki niðri í vélinni, ef keyra þarf skipið upp (og skrúfan er ekki upp úr!). Fossi sjór inn um skorsteininn, eða frekar inn um loftventlana og skælettið, þá gæti hann verið flatur. Hefur gerzt. Ekki góðar aðstæður. Á ísinn voru not- aðar brunaaxir, spannar og allur and- skotinn; gilsum var slegið utan um vantana og látið skralla upp, þrepin í vöntunum tóku á sig mikinn ís. Þessir Selby togarar voru góð sjóskip ... þetta var alveg úrvals skipshöfn, sem fór þarna niður með Júlí, Hafliði Þórð- ur Stefánsson, stýrimaður, Bensi sailor, Benedikt Sveinsson, netamaður, Búturinn og fleiri frægir togaramenn. Búturinn, Sigmundur Finnsson hét hann, fóstur- faðir hans var líka þarna, Magnús Guð- mundsson, og Jón Geirsson úr Borgar- nesi, man eftir honum. Annar stýri- maður, Þorvaldur (Valdi Benna) var sonur Benedikts Ögmundssonar, skip- stjórans á Júní. Skipstjóri á Júlí var Þórður Pétursson. Þekkti Þórð ekkert, en í gegnum árin vissi ég, hver hann var; hann hafði verið með togarann síðan 1952, aflamaður og harðsækinn. Var á gamla Gylfa frá Patreksfirði á stríðsár- unum og sigldi þá til Bretlands. Hvort skipinu var boðið of mikið, of lengi dregið að venda eða að skipið hafi verið keyrt niður eða lensazt niður og ekki verið við neitt ráðið, enginn veit það. Ólafur: Benedikt Sveinsson, neta- maður, kemur fyrir í togarasögu Hafliða, í kaflanum um stúlkuna í græna kjóln- um, byggt á atburði í Þórscafé. Bensi sailor var stríðinn húmoristi, meistari smásögunnar og lygasögunnar. Atburðir á dekki, sem höfðu farið framhjá mönn- um, urðu sprenghlægilegir, þegar hann sagði frá þeim eftirá inni í messa. „Upp kom leisið rifið og hlerarnir frá ...“ sungu þeir á flotanum undir lagi Carmi- chels, „Up the lazy river by the old mill Júpíter á siglingu á stríðsárunum. Víkingur hafði ekki nema rétt lokið við að kvarta yfi r skorti á myndum af Júpíter þegar Hafl iði Óskarsson, á Húsavík, sendi honum þessa stórkostlegu ljósmynd er hann fékk hjá Boða Björnssyni. Myndin hefur ekki áður birst á prenti. VERÐ TVENNUTILBOÐ VÉLAR ÞÚ SPARAR ROOMBA 520 RYKSUGA 69.900 + 520+385 10.486 ROOMBA 555 RYKSUGA 84.900 + 555+385 11.536 ROOMBA 564 RYKSUGA 92.900 ROOMBA 581 RYKSUGA 99.900 SCOOBA 385 SKÚRINGAVÉL 79.900 RYKSUGU- OG SKÚRINGAVÉLMENNI Sjómannablaðið Víkingur – 9

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.