Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2010, Side 10

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2010, Side 10
10 – Sjómannablaðið Víkingur run/ The lazy, lazy river in noon-day sun ...“ — stríðnislegt bros Bensa sailors sést vel á myndinni af honum7. Hafliði Þórður Magnússon, höfund- ur Togarasögunnar, og Hafliði Þórður Stefánsson, 1. stýrimaður á Júlí, voru systkinasynir, hétu báðir eftir Hafliða Þórði, syni Snæbjarnar í Hergilsey. Annar Benedikt var þarna, Benedikt Þorbjörns- son, háseti, kallaður Bessi. Hann var bróðir Péturs Þorbjörnssonar, skipstjóra á Pétri Halldórssyni, sem slapp heim úr þessu sama veðri með laskað skip, en fullfermi. Á Pétri Halldórssyni fylltu þeir skipið á 2–3 sólarhringum, töfðust þó í 10 tíma við að losa togvír, sem þeir fengu í skrúfuna8. Hvað, ef tekið hefði lengri tíma að losa togvírinn, eða þeir verið enn að baksa við það, þegar óveðrið skall á? Hörður Kristinsson hafði lengi verið á Júlí, var áður á Þorkatli mána. Auk loft- skeytaprófs var hann lærður útvarpsvirki og símvirki. Gylfi Guðmundsson, skóla- stjóri, var á Júlí sumarið 1958. Hann minnist þess enn, hve þessi loftskeyta- maður tók nýliðunum vel, hvað hann nennti að tala við þá; á stímvaktinni sýndi hann þeim loftskeytaklefann og hvernig tækin virkuðu. Stundum drakk hann með þeim kaffi á næturvaktinni, settist þá við undirmannaborðið. Minn- ingarnar um sumardvölina á Júlí eru góðar9. Aðalsteinn Júlíusson, háseti, var einn margra sona Júlíusar Jónssonar, bónda í Hítarnesi í Kolbeinsstaðarhreppi; allir dugnaðarmenn, þeir bræður. Aðalsteinn hafði bæði unnið í landi og verið til sjós, en á Júlí var hann að leysa kunningja sinn af, sem var fjölskyldumaður og vildi vera í landi. Aðalsteinn var einhleypur og hafði þá undanfarið verið dyravörður á Borginni10. Annar háseti var Björgvin Jóhannsson. Hann kom beint frá prófi í læknadeild hjá prófessor Niels Dungal; hafði ekki gengið sem skyldi; fyrsta sinn, sem hann fór á togara. Fór líklegast fyrir áeggjan kunningja síns og nábúa, Ragn- ars Guðjóns Karlssonar, sem var neta- maður á Júlí. Faðir Björgvins var Jóhann Axel Jóhannsson, skipstjóri og eigandi togarans Gudrun, sem gerður var út frá Nýja Englandi. Jóhann Axel fórst með þessu skipi sínu og allri áhöfn sunnan við Nýfundnaland í janúar 195111. Björgvin var hljóðlátur, lét lítið yfir sér, orti ljóð og þýddi William Saroyan; enn Trollið kemur upp óklárt, rifi ð og fl ækt. Bakstroffurnar í hlerann sjást vel. – Ljósmynd: Ásgrímur Ágústsson.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.