Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2010, Síða 11
Sjómannablaðið Víkingur – 11
minnistæður þeim, sem voru með hon-
um í háskólanum12. Ragnar Karlsson var
frægur sjómaður, sagður hafa verið á
málmgrýtisbáti í Noregi á stríðsárunum,
fékk ásamt öðrum sjómanni leyfi Þjóð-
verja til að fara frá Bergen með Esjunni í
Petsamoförinni haustið 1940. Ásgeir Sig-
urðsson, skipstjóri, tók við þeim, en
Bretum þóttu þeir mjög grunsamlegir,
þegar komið var til Reykjavíkur, og þeir
voru fluttir til Bretlands, en þó sleppt
fljótlega. Ragnar var einn þeirra, sem
sóttu Langabar í Aðalstræti 8, Café
Adlon, og það gerðu margir aðrir af
Júlí13.
Kristján Ólafsson (Kiddi kokkur), 1.
matsveinn á Júlí, var líklegast með Guð-
mundi Hallgrímssyni, vélstjóra, á Brim-
nesinu frá Seyðisfirði, og þar var Sig-
mundur Finnsson þá líka. Kristján var 2.
kokkur á Brimnesinu, og ólíkt sumum í
þeirri áhöfn var Kristján kurteis. Það var
vinsælt á togara, ef kokkar sýndu lið-
legheit, hann gerði það, góður togara-
kokkur14. Yngstur um borð á Júlí var Jón
Haraldsson, nýlega orðinn 16 ára, einka-
barn foreldra sinna. Þetta var hans fyrsta
ferð. Hann þekkti ég vel. Móðir hans
sagði einmitt, að hann hefði verið svo
hreykinn að hafa fengið plássið.
Haukur: Þegar ljóst var að Júlí hafði
farizt, var ekki mikið um það rætt í
borðsalnum á Guðmundi Júní. Að flíka
tilfinningum eða fjasa um orðinn hlut
var ekki háttur þessara manna. Í því fólst
þó örugglega hvorki virðingarleysi né
Gott fi skirí á bv. Óla Jóh. Troðfullur belgurinn, og pokagjörðin sést vel. Blandaður fi skur. - Ljósmynd Bene-
dikt Brynjólfsson.
Bv. Júpíter RE 61; smíðaður í Englandi árið 1925,
394 brl. með 700 ha. gufuvél. Skipið var í eigu
Júpíters hf. í Reykjavík (áður Belgaum hf. og
Júpíter hf. í Hafnarfi rði). Árið 1951 var það selt
Togarafélagi Dýrfi rðinga hf., Þingeyri og skírt
Guðmundur Júní ÍS 20; selt Einari Sigurðssyni,
útgerðarmanni 1955, og hélt óbreyttu nafni. Örfáar
myndir eru til af Júpíter og því vel þegið ef einhver
lesandi á slíka í fórum sínum. Sama gildir um bv
Júlí GK 21 (og reyndar Hvalfellið líka); svo nú
reynir á ykkur lesendur góðir, eigið þið myndir af
þessum þremur skipum (nú eða öðrum sem þið
hrífi st af) að senda Víkingnum?
AIS
CLASS-B
12 wött
NÝTT
FAJ
Hvar sérð þú
enska boltann
Intellian móttökudiskur
fyrir gervihnattasjónvarp.
- Næmari en áður hefur þekkst, min EIRP 40dB
- Innbyggður GPS móttakari
- 3ja ása stöðugleikabúnaður
- Intellian WRS og DBT leitunar og læsingartækni
- Mjög vandaður frágangur á búnaði.
- Sterkbyggt fyrir okkar aðstæður
- Einfalt í uppsetningu - aðeins 4 coax kaplar
- Afar einfalt í notkun - aðeins ein snerting til að
- skipta á mill hnatta í stað flókinna innstimplanna
- Læsingartíðnir uppsettar fyrir Ísland
Talstöðvar
Nú eru fáanlegar talstöðvar frá
Simrad með þráðlausu símtóli
Einnig eigum við hand talstöðvar
með innbyggðum GPS og plotter
Nú hefur Blue Traker aukið sendiorkuna
á AIS Class-B úr 2 wöttum í 12 wött
Líklega langdrægasta Class-B tækið í dagSIMRAD til sjós er skipstjórans ljós
FRIÐRIKA. JÓNSSON EHF
Akralind 2 - 201 Kópavogi - Sími: 552-2111 - Netfang: faj@faj.is - www.faj.is
FAJ OlexSTENTOFON