Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2010, Síða 28
hún til framkvæmda 13. júli sama ár. Fyrstu lögin um tilkynn-
ingarskylduna voru aftur á móti ekki sett fyrr en á árinu 1977,
lög nr. 40.
Sefur ekki hjá mér
Skipstjórar skipanna voru mispassasamir að tilkynna sig eins og
gengur sem leiddi til þess að oft mátti heyra í úvarpinu lýst eft-
ir þeim skipum sem ekki höfðu gert vart við sig á tilsettum
tíma.
Á þessum árum starfaði hjá Slysavarnafélaginu sem erindreki
Ásgrímur Björnsson skipstjóri. Hann tók sig gjarnan upp við og
við og fór um borð í skipin til þess að brýna skipstjórana til
þess að sinna þeim skyldum sem skyldan lagði þeim á herðar.
Eitt sinn þegar Ásgrímur var á ferð á Suðurnesjum þeirra
erinda að hvetja skipstjórnarmenn til að mæta vel í Tilkynn-
ingarskyldunni, vildi svo til að hann hitti fyrir í brúnni skip-
stjórafrúna en ekki skipstjórann er hafði brugðið sér frá. Frúin
spurði hverra erinda erindrekinn væri og sagði Ásgrímur henni
það. Spurði þá frúin hvort karlinn sinn mætti ekki vel í „skyld-
unni“ og kvað erindrekinn svo vera. Þá sagði frúin þessi eftir-
minnilegu orð.
„Látið þið mig bara vita ef hann mætir
ekki í skyldunni, hann sefur þá ekki hjá
mér þá nóttina.“
Áttin kom þeim ekki við
Annað atvik tengt skyldunni var eitthvað
á þá leið að síldarbátur, sem var að koma
austan úr hafi, var tilkynntur í hádeginu
og sagt að hann væri á leið fyrir Langanes
og til Akureyrar. Á vaktaskiptunum um
miðnættið vaknar skipstjórinn, við þann
vonda draum að skipið er á leiðinni til
Vopnafjarðar og komið vel inn í fjörðinn í
stað þess að stefna fyrir Langanesið.
Nú voru góðu ráðin dýr þar sem nú
þurfti að gefa upp stað og stund til skyld-
unnar. Skipstjórinn, sem var gamall í hett-
unni og ráðagóður, leysti málið á farsælan
hátt. Hann kallaði í skylduna og sagði þeim að skipið væri svo
og svo margar sjómílur frá Langanesi. Síðan sleppti hann fjöðr-
inni á tólinu sem skiptir á milli tals og hlustunar og sagði við
þá sem hjá honum stóðu: „Í hvaða átt, það kemur þeim bara
ekkert við.“
Sjóborgin
Önnur lítil saga af síldarmiðunum fyrir Austfjörðum, sem mun
hafa átt sér stað í kringum 1960, en þá var nýkominn í flotann
endurbyggður um 160-70 tonna eikarbátur. Körlunum á 60-70
tonna bátunum þótti þetta nú engin smá fleyta og ekkert síður
skipstjóranum þar um borð.
Einhverju sinni í brælu þegar þetta hafskip var einskipa á
miðunum fyrir austan kallaði einhver á minni bátunum í það til
þess að grennslast fyrir um veðurútlit. Skipstjórinn ansaði og
þegar spurt var um veður og sjólag svaraði sá á stóra skipinu:
„Viltu aðeins hinkra á meðan ég fer út og gái að því.“
Þvílík sjóborg var nú þetta 160-70 tonna eikarskip að það
fannst ekki á hreyfingum þess hvernig sjólagið var heldur þurfti
að rýna í ölduna.
Stígandi; Sjómannablaðið Víkingur sagði frá hvarfi skipsins og leitinni.
28 – Sjómannablaðið Víkingur
Níu skip fengu ATW kerfi á árinu 2010.