Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2010, Side 31

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2010, Side 31
Sjómannablaðið Víkingur – 31 sjóðsins þar sem allir virðast á einu máli um að kaup sjóðsins á dótturfélagi Landsbankans Vestia, sem felur í sér 100% eignahlut í farlit stórfyrirtækjum, fellur undir þá skilgreiningu að vera meiri áhættufjárfesting en svo að ásætt- anlegt sé fyrir venjulega sjóðfélaga.“ Stjórn Gildis hefur því frestað að auka hlutafé sitt í Framtakssjóðnum uns búið er að skoða til hlýtar innviði Vestia; hversu góð kaup eru þarna í raun á ferðinni? Að lokum skýrði Árni frá beiðni Jóhanns Páls Símonarsonar, sjóðfélaga í Gildi, til ríkislögreglustjóra um rannsókn á sjóðnum í aðdraganda hrunsins. Skemmst er frá því að segja að ríkislög- reglustjóri hefur svarað og segir ekkert tilefni til frekari sakamálarannsóknar. * Ýmis önnur mál bar á góma á formanna- ráðstefnunni. Oddvitum félaganna kom saman um að afnám sjómannaafsláttar væri hrein og bein vanvirðing við sjó- mannastéttina. Fagnað var endurskoðun laga um lögskráningu, er tryggir að lög- skrá verður alla sjómenn, og skorað var á stjórnvöld að banna leiguframsal innan fiskveiðiársins. Við viljum heldur ekki sjá skiljuhólf á miðum við landið, sögðu fundarmenn ákeðnir, en leyfum veiðar með 35 mm pokum. Svo eigum við að hætta þessum eilífu deilum um fiskverð. Látum mark- aðinn ráða, bjóðum fiskinn upp og eyð- um þannig allri annarlegri verðlagningu aflans. Enn og aftur var rætt hið grátlega ástand kaupskiptaflotans – sjá nánar hjá Hilmari í þættinum, Utan úr heimi. Um kaupskipadrauminn voru að vísu sett lög (nr. 38/2007) er áttu, að áliti þingmanna, að vera mikil hormónagjöf fyrir farskipa- flotann. Staðreyndin er hins vegar sú að lögin eru handónýt. Verri en engin, sagði einhver. Þau eru ekki til annars en að friða samvisku þingmanna sem ótrúlega oft telja réttara að veifa röngu tré en öngu. Ef þessum lögum fæst ekki breytt, svo þau þjóni þeim tilgangi er skapaði þau, á hreinlega að eyða þeim, afmá og ógilda. Eru della sem ekki á að líða alþingismönnum, var samdóma álit ráðstefnugesta. * Maður þarf sag með, sagði maðurinn þegar honum þótti þrettándinn gerast heldur þunnur. Jóhannes, og félagar hans í Vísi, vita þetta öðrum betur og höfðu undirbúið ráðstefnuna í þaula. Þeir buðu upp á heimsóknir í fyrirtæki sem voru bæði til gagns og gleði. Í Stakkavík hf. stóðu þau vaktina, Hermann Ólafsson forstjóri, Margrét kona hans og Guðbjörg dóttir þeirra. Boðið var upp á ljúffenga rækju- og sjávarréttasúpu, meðlæti og drykk. Tvö mjög svo fróðleg erindi voru flutt á ráðstefnunni. Pétur Pálsson, framkvæmdastjóri Útgerðarfélagsins Vísis, kynnti fyrirtækið, umfang þess á Íslandi og ítök í Kanada þar sem það hefur haslað sér völl í útgerðarfyrir- tækjum. Og hinir sögulega sinnuðu bræður, Eiríkur og Gunnar Tómassynir, fóru í saumana á fyrirtæki sínu, Þorbirni í Grindavík, og útskýrðu þróun þess frá upphafi til vorra daga. Hélt svo hver heim til sín, reynslunni ríkari. Formannaráðstefnan - haldin í Bláa lóninu SVALASTA ÆVISAGAN! Sveinn Sigurbjarnarson ævintýramaður á Eskifirði hefur oft komist í hann krappann, ekki síst uppi á jöklum. Hér segir hann frá mögnuðum ævintýrum þar sem oft var stutt á milli feigs og ófeigs, en horfir jafnframt á björtu hliðarnar og skortir þá ekki kímnina. Jóhannes Jóhannesson, formaður Vísis, spennir greipar, hugsandi á svip. Kannski er hann að velta fyrir sér framsali afl aheimilda en á ráðstefnunni urðu menn sammála um eftirfarandi: „Leiga á afl aheimildum innan ársins er ein megin ástæðan fyrir misferli við launauppgjör sjómanna. Eins ættu sjómenn sem ráða sig í skipspláss að geta treyst því að hafa a.m.k. tekjur í samræmi við útgefnar veiðiheimildir skipsins.“ Guðbjörg Hermannsdóttir fylgdi hópnum um húsa- kynni Stakkavíkur og fræddi um starfsemina þar.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.